Leita í fréttum mbl.is

Hjólastóll farinn :)

Jebbs hentum hjólastólnum hennar Þuríðar minnar í hjálpartækjamiðstöðina áðan sem var ákveðin léttir og við búin að týna fatlaðarmerkinu hennar eða það fauk útur bílnum einn daginn í rokinu.  Þvílíkur léttir að vera búin að skila honum og vera "laus" við merkið, mikið og stórt skref og höldum áfram að taka þessi skref.  Næst verður að losa okkur við "brunninn" hjá henni eða þar sem blóðprufurnar eru teknar hjá henni, veit nú ekki hvursu stutt er í það en vonandi ekki mjög langur tími.  Maður þorir samt ekkert að tala um þessa hluti en það eru fullt af skrefum frammá við og við höldum áfram að taka þessi skref þó þau verði bara hænuskref.  Bara gaman!!

Einsog ég sagði í gær þá fórum við í góðan og skemmtilegan göngutúr og hérna er ein af Þuríði minni frá honum en hún fór í "fýlu" held samt að hún kunni ekki að fara í fýlu því hún nennti ekki að labba meir og vildi bara snúa við og fara heim eða láta pabba sinn taka sig á háhest hún veit líka að það virkar hehe.
P6080068
Einsog þið sjáið á hún mjög erfitt með að brosa ekki :)

Damn get ekki sett fleiri myndir inn.  Grrrr.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Vaki Hann yfir sérhverju spori ykkar og þökkum fyrir allar gjafirnar.

Ég er í það minnsta afar þakklátur fyrir gjafirnar til mín og minna barna og barnabarna.

Sendi ykkur öllum hugheilar óskir um gjöfult sumar.

Bjarni Kjartansson, 9.6.2009 kl. 10:39

2 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Það eru bara sigrar á sigra ofan, mikið er þetta skemmtilegt. Það er víst smábros á "fýlupokanum" svo þetta er ekki ekta fýlupoki. Bestu kveðjur og bros

Hólmfríður Bjarnadóttir, 9.6.2009 kl. 21:35

3 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Hvert hænuskref fram á við er stórsigur. Til hamingju.

Helga Magnúsdóttir, 9.6.2009 kl. 22:02

4 Smámynd: Halldór Jóhannsson

  Eruð perlur....Kveðja.

Halldór Jóhannsson, 9.6.2009 kl. 23:40

5 Smámynd: Aprílrós

Þessi stelpa kann ekki að vera í fílu eins og þú segir, það sést alveg á prakkarasvipnum á henni gullinu litla . Hún þurfti bara að hvíla sig og kanski ekki nema von ;)

Svo dugleg þessi elska ;)

Knúsaðu hana frá mér og hina krakkana líka.

Ljós og knús í kotið og til ykkar ;)

Aprílrós, 9.6.2009 kl. 23:52

6 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Já yndislegt er þetta líf og þessi litlu skref sem eru hrein kraftaverk og elsku fagra litla hetjan mín til  hamingju með þessi litlu stóru skref og nú höldumst við í hendur og höldum áfram að taka litlu stóru skrefin....:)

Knús inn í ykkar dag elsku fagra fjölskylda.....:)

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 10.6.2009 kl. 12:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband