Leita í fréttum mbl.is

Helgin framundan

Júmm fékk smá job um helgina, víííí!!  Þar sem mín getur því verr og miður ekki verið með fasta vinnu vegna aðstæðna þá verður mín svona vara útí TBR og að sjálfsögðu hafði ég að plata Fúsa að leyfa mér að vinna um helgina, gott að eiga góða aðHlæjandi.  Þannig ég verð að vinna í kvöld, laugardag og hálfan sunnudag, ekki amalegt að komast aðeins út og vinna sér inn aur.  Að sjálfsögðu vona ég að það verði mikil veikindi hjá kvöldvaktinni svo síminn minn stoppi ekki ehe þannig ég fái mikla vinnu þegar vel stendur á hjá Þuríði minni. Ekki það að ég haldi að ég geti unnið mikið en mar veit aldrei? Finnst líka bara endalaust gaman að vera útí TBR að hitta allt gamla liðið hvort sem það eru kúnnarnir eða krakkarnir í babbóGlottandi.

Þið hefðuð átt að sjá glottið á mínum manni Theodór þegar ég var að gefa honum hafragrautinn sinn thíhí.  Ákvað að dekra aðeins við hann og hella smá skyr.is jarðaberja útí hafragrautinn þvílíkt nautnaglott kom á honum, ótrúlega sætt!!  Hann nebbla fær aldrei jógúrt hjá mér alveg nógur tíminn að fá þetta mjólkursull en að sjá hvað honum fannst það gott, hann mun ö-a lifa á þessu næstu vikuna.  "slurp slurp". 

Er að fara með töffarann til læknis í dag, hann er nebbla að gera móðir sína og föður gráhærð og nógur er nú tíminn í gráuhárin en þau eru farin að birtast núna.  Hann sefur nebbla ekkert á nóttinni bara grætur sárum gráti þannig eyrun eru væntanlega eitthvað að bögga hann, sjáum það allavega í dag annars er hann bara frekjudósHissa

Ég má ekki hverfa þá verður hann alveg snar ok kanski ekki snar en fer að væla þessum frekju tóni og þótt hann sé hjá pabba sínum, dóóhh!!  Algjör mömmusnúlli!!  Er það nokkuð skrýtið þar sem við erum tvö ein rúmlega hálfan daginn bara að dúllast, knúsast, kelast og fíflastGlottandi.  Æjhi mér finnst það bara sætt kanski bara verra ef ég ætla að skilja hann einhversstaðar eftir, dóóhh!!

Statusinn á Þuríði minni er bara sá sami, krampandi og þreyttust.  Hún er alltaf að biðja mig um að koma í bíó, ótrúlega sætt!!  "mamma koma sjá Grettir!.  Þannig ef ég er að vinna stutt á sunnudaginn þá ætlum við Þuríður að skreppa í bíó, bara gaman en Oddný Erla er skíthrædd í bíó þannig það verður bara dekrað við hana heima á meðan.

Takk allir fyrir yndislega góð komment og falleg mail sem ég fengið undanfarna daga, ótrúlegt hvað það hlýjar manni í hjartanum að fá þetta allt samanUllandi.  Knús, kossar og eigið yndislega helgi.
Slauga


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er líka svo gaman að hitta þig í TBR ;)

Hafðu það gott um helgina í jobbinu og góða skemmtun í bíó....

Knús frá DK

Dúsdús (IP-tala skráð) 1.9.2006 kl. 16:36

2 identicon

þú ert alveg ótrúlega dugleg alveg endalaust dugleg ...vonadi líður ykkur sem skárst.. kv Birna Hrönn

Birna Hrönn (IP-tala skráð) 2.9.2006 kl. 20:28

3 identicon

já...Palli og Kjartan minn voru sáttir með \"afgreiðsluna\" þína ;) hehe

Elsa Nielsen (IP-tala skráð) 3.9.2006 kl. 09:52

Bæta við athugasemd

Hver er summan af sjö og nítján?
Nota HTML-ham

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband