Leita í fréttum mbl.is

Ég á góðan vin.

Þegar ég er þreytt,
þegar heimurinn vondur er,
huggar  mig það eitt
bara að vita af þér hér.

Þú ert aldrei ein - 
þótt eitthvað hendi þig, 
þú ert aldrei ein
af því þú átt  mig
- og af því þú átt mig áttu góðan vin.

Þegar Maístjarnan mín kom af vöknun í dag var það fyrsta sem hún bað um var ipodinn sinn og þetta var fyrsta lagið sem hún setti á og brosti.  Mér hlýnaði ofsalega í hjartanu að horfa á hana raula þennan texta sem er hennar uppáhald.

Aðgerðinni á henni gekk þrusu, hún var reyndar dáltið lengi að vakna almennilega eftir aðgerðina, var óglatt og gubbaði sem hún er reyndar ekki vön að gera eftir svæfingar.  En núna er hún súper hress, situr í sjúkrarúminu sínu, japlar á Doritos og horfir á Bangsimon, við gætum ekki haft það kósýara hérna á Hringnum.

Skurðlæknirinn okkar frábæri settist niður með okkur hjónakornunum eftir vöknun og mikið er ofsalega gott að tala við þennan mann sem er endalaust jákvæður og þá verður líka svo léttara yfir manni.  Það var eitt en að bætast í það sem væri hægt að gera fyrir Maístjörnuna mína en ég ætla ekkert að ræða það fyrr en það kemur úr sýninu í næstu viku og stúlkan losnar við saumana.  Þá verða læknarnir búnir að ákveða hvert næsta skref verður, þetta leggst allt saman ofsalega vel í mig og ég VEIT að þetta mun allt saman fara vel enda ekkert annað í boði.
P5268428
Hérna er Maístjarnan mín á "vöknun" mikið ofsalega fannst henni gott að sofa.  Endalaust falleg og flott.
P5268439
Svo loksins þegar hún gat vaknað þá varð hún svona líka kát og hress.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frábærar fréttir!! Auðvitað gekk allt vel, þið eruð hetjur. Gangi ykkur allt í haginn og bjarta framtíð :)

Linda (ókunnug) (IP-tala skráð) 26.5.2010 kl. 22:26

2 identicon

Yndislegt, þá get ég farið að sofa

Halla (IP-tala skráð) 26.5.2010 kl. 22:26

3 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Mikið er gott að lesa þessa færslu þína Áslaug. Gefðu honum Óskari og hann þér, kærleiksknús frá okkur hjónunum. Skrifaði Þuríði í bænabókina okkar. Bið Guð að vera með ykkur og öllu fólkinu sem annast hetjuna

Hólmfríður Bjarnadóttir, 26.5.2010 kl. 22:28

4 identicon

Elsku hjartans BROSdúlla,altaf brosir þessi elska sama hvað gert er við hana,hún er engum lík,þvílíkt kraftaverkabarn sem hún er og bræðir mann alveg að innstu hjartarótum,megi algóður GUÐ gefa ykkur góða daga framundan,baráttukveðjur.Hrönn.

Hrönn (IP-tala skráð) 26.5.2010 kl. 22:30

5 identicon

Guð hvað ég er glöð elsku fjölskylda. Við hér höldum áfram að sameinast í bæn og trúum að þetta fari allt vel. Þið massið þetta. Knús á hetjuna. YESSSSSSSSSS 

Berglind Hafþórsdóttir (IP-tala skráð) 26.5.2010 kl. 22:32

6 identicon

Yndislegt  - sannkölluð hetja svo brosmild og sæt, hef fylgst með ykkur frá byrjun en er að kvitta inn í fyrsta skipti núna - Ég veit af mörgum kertum sem loguði í gær og loga áfram henni til innblásturs  !

XOXO

Unnur Magna (IP-tala skráð) 26.5.2010 kl. 22:35

7 identicon

Frábært að allt gekk vel nú get ég farið að sofa Sofið rótt.

Ókunnug (IP-tala skráð) 26.5.2010 kl. 22:35

8 identicon

gott að heyra að þú ert jákvæðari núna eftir aðgerðina það er svo rosalega erfitt að ganga i gegnum svona með börnin sín aldrei hægt að setja sig í ykkar spor

sigrun (IP-tala skráð) 26.5.2010 kl. 22:54

9 identicon

En gott að allt gekk að óskum, varð að kíkja áður en ég leggst á koddann.  Góða nótt öllsömul

Kristín (IP-tala skráð) 26.5.2010 kl. 22:55

10 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Æ þessi fallega elska,síkáta hetjan ykkar sama hvað blæs á móti.....Dreymi ykkur vel <3<3<3<3<3<3..

Halldór Jóhannsson, 26.5.2010 kl. 23:03

11 identicon

Yndislegt að heyra að gengið hafi svona vel.  Held áfram að fylgjast með ykkur og sendi ykkur hlýjar hugsanir og netknús.  Góða nótt kæra fjölskylda.

Jóhanna Svava (ókunnug) (IP-tala skráð) 26.5.2010 kl. 23:09

12 identicon

Þetta eru dásamlegar fréttir að heyra að allt gekk vel. Hún er svo flott þessi stelpa ykkar. Arína Bára er mikið búin að spyrja um hana í dag og það verður mikið gott að segja henni í fyrramálið að Þuríður Arna hafi verið að borða dorritos og horfa á mynd.

Við höldum áfram að kveikja á kerti og hugsa fallega til ykkar allra.

Vonandi getið þið öll sofið í nótt, góða nótt

Þórunn Ragnarsdóttir og fjölskylda

Þórunn Ragnarsdóttir (IP-tala skráð) 26.5.2010 kl. 23:13

13 identicon

Frábærar fréttir :) hugsaði mikið til ykkar í dag og sendi alla mína strauma!!! vonandi kemst hetjan fljótt heim og ég trúi því af öllu mínu hjarta að þessum veikindum fari að ljúka fljótlega !! Þuríður Arna er sko sönn hetja eins og þið fjölskyldan öll !!! :) knús á ykkur :)

Sigrún (ókunnug) (IP-tala skráð) 26.5.2010 kl. 23:17

14 identicon

Elsku Áslaug og Óskar. Ég frétti bara af þessu í gær. Sendi ykkur risaknús og orku til að bretta enn og aftur upp ermar og takast á við þetta erfiða verkefni.

Gott að vita að stelpan ykkar er í höndum frábærra lækna og að allt gekk vel í aðgerðinni.

Fylgist með úr fjarska og bið fyrir ykkur duglega fjölskylda.

Knús knús

Þóra Skb mamma

þóra Pálsd (IP-tala skráð) 26.5.2010 kl. 23:20

15 identicon

Takk kæra Áslaug fyrir að leyfa okkur að fylgjast með þessu - hún Þuríður hefur verið ofarlega í mínum huga síðustu daga - og baráttustraumar streyma stöðugt héðan.

Ótrúleg hetja stelpan þín og þú ekki síður! Þú kennir manni hvernig maður lætur drauma barnanna sinna rætast :)

Ragnhildur, ókunnug (IP-tala skráð) 26.5.2010 kl. 23:31

16 identicon

Kæra fjölskylda. Gott að heyra að aðgerðin gekk vel. Kveiki á kerti og sendi góða strauma til ykkar og hetjunnar hennar Þuríðar Örnu.

Kv. Hulda og fjölskylda.

Hulda Gunnarsdóttir (SKB mamma) (IP-tala skráð) 27.5.2010 kl. 00:34

17 identicon

Ofsalega er gott að lesa að þetta gekk vel og að hún vaknaði kát og hress og lík sjálfri sér. Það liggur við að hún gefi okkur hinum styrk þegar við erum að reyna að gefa henni og ykkur styrk. Takk fyrir að leyfa okkur að fylgjast svona vel með. Hugur manns er hjá ykkur alla daga og nætur. Knús og kossar til ykkar allra. Kveðja úr Borgarnesi.

Kristín Amelía Þuríðardóttir (IP-tala skráð) 27.5.2010 kl. 00:42

18 identicon

Hugsa til ykkar :)

Þórir S. Þórisson (IP-tala skráð) 27.5.2010 kl. 01:27

19 identicon

Yndislegt að lesa hvað þetta gekk vel, og að hún hafi vaknað brosandi og glöð. Ótrúlega dugleg stelpa, sem þið öll.

Edda Björk (IP-tala skráð) 27.5.2010 kl. 06:08

20 identicon

Mikið eru þetta nú góðar frétt hjá ykkur og af hetjunni. Gangi ykkur rosa vel núna á þessari vikur í óvissunni  Var sjálf með kvíðahnút í maganum í gær og get þvi ekki ýmundað mér hvernig ykkur líður með þetta!!!! knús á línuna

MaggaK (IP-tala skráð) 27.5.2010 kl. 08:23

21 identicon

Elsku Áslaug og Óskar

Það lyftir deginum á hærra plan að heyra þessar fréttir.

En það sem ekki síður lyftir honum það er tónninn í blogginu.  Það má sjá brosið kraftinn og gleðina í þér, sem er náttúrlega bara FRÁBÆRT.

 Það bara kemur ekkert annað til greina en sigur.

Kærleikskveðja í húsið og til allra aðstandenda ykkar.

frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 27.5.2010 kl. 09:18

22 identicon

Gott að heyra - kæra fjölskylda !! <3

Aldís Páls. (IP-tala skráð) 27.5.2010 kl. 10:11

23 identicon

Að sjá Maístjörnuna svona brosmilda, kalla fram tár og bros hjá manni. Gangi ykkur vel í framhaldinu. Þvílíkur dugnaður í ykkur öllum.

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 27.5.2010 kl. 10:26

24 identicon

  • Sendi ykkur fullt fang af hlýju.

gþ (IP-tala skráð) 27.5.2010 kl. 11:14

25 identicon

Æ en frábært að þetta gekk svona vel :) Bið áfram fyrir ykkur öllum ... Þvílíkar hetjur!

Dagbjört ókunnug (IP-tala skráð) 27.5.2010 kl. 11:20

26 identicon

Yndislegt.  Kærleikskveðja til ykkar.

Þorgerður. (IP-tala skráð) 27.5.2010 kl. 12:27

27 identicon

Frábært að heyra að þetta gekk vel , gott að sjá hana brosa

sendum ykkur Ofurkrafta og Risaknús

kveðja að austan

Dagrún (IP-tala skráð) 27.5.2010 kl. 16:09

28 identicon

Æ hún er bara yndislegust þessi litla fallega hetja

Áslaug ókunnug (IP-tala skráð) 27.5.2010 kl. 18:14

29 Smámynd: Signý og Svenni

Í tilefni af þessari færslu langar okkur til að deila með ykkur uppáhalds textanum okkar þessa dagana. Gangi ykkur endalaust vel.

Signý, Gunnar Hrafn og fylgifiskar.

 

Ef eitthvað reynist ómögulegt

fyrst um sinn

aftur skaltu reyna

kæri vinur minn

Ei þýðir að gráta,

þú verður að játa

að með því að halda áfram

þú alltaf finnur

einhverja leið,

já treystu því að þú finnir

alltaf einhverja leið,

trúðu á þinn eigin mátt

ef vopnið er vilji,

þá ég vil að þú skiljir

á endanum

finnur þú farsæla leið

Signý og Svenni, 27.5.2010 kl. 19:33

30 identicon

Yndislegar fréttir...mikið líður mér vel í hjartanu :)

Sirrý (IP-tala skráð) 27.5.2010 kl. 21:37

31 identicon

Frábærar fréttir...  Þessi unga dama er algjör hetja, hún er endalaust dugleg.  Guð blessi ykkur.

Klara (IP-tala skráð) 27.5.2010 kl. 22:19

32 Smámynd: Ragnheiður

fallega fallega

Ragnheiður , 27.5.2010 kl. 23:46

33 identicon

Þekki ykkur ekkert - en hér var kveikt á kerti í allan dag! Gangi ykkur vel.

kv, ein tveggja barna móðir

Guðrún (IP-tala skráð) 28.5.2010 kl. 00:00

34 identicon

Frábærar fréttir af hetjunni ykkar, gott að aðgerðin tókst svona vel. Þið eruð alveg dýrlingar í mínum augum og eigið allt það besta skilið .Ég hef kveikt á kerti á hverjum degi fyrir ykkar indislegu hetju, en lítið gert í að kvitta, mér líður betur í hjartanu og hugurinn er alltaf hjá ykkur. Ég sendi STÓRT knús á stórfjölskylduna. Guð veri með ykkur öllum.

Kærleikskveðja Birgitta

Bigritta (IP-tala skráð) 28.5.2010 kl. 09:37

35 identicon

Þessi stúlka er svo ótrúleg að það er ekki hægt að lýsa því með neinum orðum. Ég fæ gæsahúð þegar ég heyri af því hvað hún er dugleg og sé myndir af henni.

Sigrún Þórisdóttir (IP-tala skráð) 31.5.2010 kl. 15:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband