Leita í fréttum mbl.is

Aðgerðin í dag

Þuríður mín er að fara í aðgerð í dag og bíður spennt eftir henni, alveg ótrúleg þessi stúlka.  Var vakin fyrir sjö í morgun svo hún gæti fengið hafragrautinn sinn en svo þarf hún að vera fastandi til hálf tvö í dag eða þanga til aðgerðin verður gerð.  Ætli ég þurfi ekki að "berjast" við hana kringum ellevu þegar hún byrjar að vera svöng aftur, þá verðum við bara að fara læra stafina og þess háttar til að reyna láta hana hugsa um eitthvað annað hvernig sem það fer.  Hún verður líka ö-a orðin þreytt þá og þarf væntanlega að leggja sig enda vakin mjög snemma og það mun væntanlega bjarga okkur frá "barningnum" og halda henni frá matnum.  Að sjálfsögðu þarf ég að taka þátt með henni og vera fastandi líka og þá verður ö-a litla krílið brjálað í mallanum.  Dóóhh!!

Bumban mín er annars orðin huges, oh mæ god!!  Fólk er farið að nefna það hvort hún sé ekki farin að síga? eitt er víst að hún er orðin frekar þung ehhe enda ekki kanski skrýtið þegar ég er farin að skríða í níunda mánuð.  Úúúúffh hvað ég get ekki beðið þegar þetta klárast þó svo mér finnist æðislegt að vera ólétt en þá mættu verkirnir vera minni en þeir fara versnandi núna.  Grrrrr!! 

Áðan lág ég fyrir og þurfti að standa upp sem er orðið ansi erfitt þessa dagana, Þuríður mín hefur greinilega verið búin að taka eftir því enda var hún snögg að standa upp og rétta mér aðra hendina sína til að hjálpa mér. 

Þetta kreppuástand er farið að snerta fólkið mitt, allir að missa vinnurnar sínar.  Ótrúlega sorglegt og erfitt, kanski mun ég líka missa "mína vinnu" frá Tryggingastofnun(eru þeir líka að fara á hausinn?).  Þetta ástand er skítt, erfitt og tekur ofsalega á hjá fólki.

Ætli ég haldi ekki áfram að kúra með Þuríði minni og horfa á Ísöld.
Eigið góða helgi, verum góð við hvort annað og ekki gleyma knúsunum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Emma Vilhjálmsdóttir

Elsku fjölskylda,

ég óska þess að aðgerðin gangi vel hjá Þuríðu duglegu skólastelpu og vona að þetta sé ekki eitthvað alvarlegt. 

Leitt að heyra að margir eru að missa vinnuna í kringum þig.  Erfitt ástand og þá sérstaklega hjá fólki sem er að kljást við veikindi sín eða sinna, um leið.  Ég vona svo innilega að kerfið reynist mennskara en það, að láta þig vera launalausa þegar litla krílið fæðist.  Ömurlegt að heyra þetta.  Kerfið er svo ósanngjarnt og ómannúðlegt.  Það hálfa væri hellingur. 

Gangi þér og ykkur vel og ég hugsa til litlu hetjunnar í dag.  Þetta fer allt vel hjá ykkur. 

Baráttu og kærleikskveðja,

Emma

Emma Vilhjálmsdóttir, 31.10.2008 kl. 09:24

2 Smámynd: Elsa Nielsen

KNÚÚÚS - gangi ykkur vel í dag!!

Elsa Nielsen, 31.10.2008 kl. 11:01

3 Smámynd: Þórunn Eva

knús í klessu fallegust... gangi ykkur ofsalega vel í dag... knús í kotið

Þórunn Eva , 31.10.2008 kl. 11:40

4 identicon

Baráttukveðjur, biðjum fyrir hetjunni.

kær kveðja Guðrún, Jói og dætur

Guðrún Bergmann (IP-tala skráð) 31.10.2008 kl. 12:25

5 Smámynd: Halldór Jóhannsson

KNÚS

Halldór Jóhannsson, 31.10.2008 kl. 12:46

6 Smámynd: Aprílrós

Knús til ykkar sæta fjölskylda ;)

Aprílrós, 31.10.2008 kl. 19:50

7 identicon

Allar góðar hugsanir til ykkar.  Góða helgi. Kveðja Þorgerður.

Þorgerður (IP-tala skráð) 31.10.2008 kl. 20:23

8 identicon

Góðar kveðjur og hugsanir til þín og þinna Áslaug.

Vona að aðgerðin hafi gengið vel hjá dótturinni.  Knús til ykkar.  Stella A.

Stella A. (IP-tala skráð) 31.10.2008 kl. 21:37

9 identicon

 Jesús  vaki yfir ykkur.

Hörður Halldórsson (IP-tala skráð) 1.11.2008 kl. 07:19

10 Smámynd: María Guðmundsdóttir

vonandi gekk vel i adgerdinni

María Guðmundsdóttir, 1.11.2008 kl. 09:34

11 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Vona ad allt hafi gengid vel kæra fjölskylda

Kvedja frá

Jyderup

Gudrún Hauksdótttir, 1.11.2008 kl. 10:58

12 identicon

Elsku hetja vonandi hefur allt gengið vel.  Þú og þín fjölskylda eigið sko hrós skilið standið allan storm af ykkur.

 Hjartans hlýja frá mér og mínum 

Rebekka Halldórsdóttir (ókunnug) (IP-tala skráð) 1.11.2008 kl. 11:03

13 Smámynd: Bergdís Rósantsdóttir

Bergdís Rósantsdóttir, 1.11.2008 kl. 13:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband