Leita í fréttum mbl.is

"ég veit hvað ég vil fá um jólin"

Núna gengur tíðin sú í garð
er gjafmildin er svo hrein.
Á óskalistanum er aðeins ósk ein.

Ég veit hvað ég vil fá gefins í ár.
Mín von er sú óskin rætist brátt.
Ég er pínulítið kvíðin
það er kannski of mikið
sem ég vil fá.
Ég vona ég eigi það skilið
ég skyldi mega dreyma
það megar allir jólunum á.

Jámm það vita allir hvað ég vil í jólagjöf og það kostar ekkert nema kraftaverk, það gerðist kraftaverk síðustu jól og ég vona svo heitt og innilega að það verði aftur í ár.  Hún getur, hún ætlar og hún skal.

Nóttin í nótt var erfið hjá Þuríði minni og á móti svaf ég að sjálfsögðu ekkert, hún var með mikin hita í nótt og andardrátturinn hjá henni lísti bara líðan hennar.  Ég sem hélt að hún væri á uppleið í gær, bwaaahhh!!  Hún er t.d. nývöknuð núna eftir nóttina en er samt að sofna hérna hliðina á mér, ömurlegt að sjá hana svona. 

Ég og Skari vorum búin að ákveða fyrir sirka tveim mánuðum að við ætluðum að hafa kósý helgi núna um helgina, planað var að senda börnin uppá Skaga í næturpössun eða meira eiginlega í sólarhringspössun.  Fara snemma á laugardeginum og ná í þau aftur aðeins seinna á sunnudeginum en það verður víst ekki úr því en við ætlum samt ekki að sleppa pössuninni þannig séð en tengdamóðir mín yndislega mun mæta hingað í sveitina og passa grislingana.  Við ætlum að halda okkur við plönin okkar þar að segja fara í Bláa lónið og svo um kvöldið á laugardaginn munum við fara á jólahlaðborð á Nordicca með familíunni minni.  Vávh hvað ég hlakka til.  Stebbi og Eyfi að spila þannig það skemmir ekki heldur.  Ég vona bara að Þuríði minni fari að lagast svo við komumst á mánudaginn en það væri þá ekki hundrað í hættunni þar sem heilsan hennar gengur fyrir, hún er ekki pínd í neitt sem við höldum að hún ráði ekki við.

En hvað haldiði?  Ég ákvað að hringja í hjálpartækjastöðina útaf nýju kerrunni sem Þuríður mín á að fá en hún átti ekki að vera til fyrr en eftir hmmm fimm/sex vikur en okkur sárvantar hana ef við komumst á mánudaginn því það fer svo illa um hana í okkar kerru.  Viti menn konan sem sá um afgreiðsluna á kerrunni ætlar að láta okkur fá hana á morgun, setur bara bráðabirgðabelti á hana því hitt er ekki tilbúið.  Þvílík góð þjónusta og ég sem hef kvartað og kveinað undan þjónustunni hjá TR en þetta er reyndar ekki það sama en samt, þannig mig langar að hrósa þeim hjá hjálpartækjastöðinni fyrir frábæra þjónustu þó við þurfum að skila kerrunni aftur þegar við komum heim en það er bara til að fá betra belti fyrir hetjuna mína.  Vááávvvhh!!

Ætla koma hetjunni minni fyrir á betri stað, alveg búin á því eftir klukkutíma vökuFrown.  Búa vel um hana í mömmubóli en svo ætlum við að fara uppá spítala í tjékk með hana, reyndar eftir að hringja í doktorana en þeir vildu fá hana í dag ef hún væri ekki orðin góð og hún er bara orðin verri síðan á mánudag.  Ömurlegt.

Ekki gleyma því að gefa knús, þið vitið hvað þau gefa manni ofsalega mikið.
Knúúúússs til ykkar allra.
Slaugan


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Elsku kerlingarnar mínar! Mikið er þetta erfitt..nú þufum við öll sem komum hér við að tendra ljós handa Þuríði...við höfum gert það áður og nú sláum við met á kertasíðuna hennar...því það hjálpar!

Knús á ykkur, ætla að skella mér í kertin

Kærleikskveðja 4 barna mamman

4 barna mamman (IP-tala skráð) 6.12.2007 kl. 08:45

2 Smámynd: Þórunn Eva

gangi ykkur vel sæta mín...koss og knús

Þórunn Eva , 6.12.2007 kl. 09:34

3 identicon

KNÚS TIL YKKAR FRÁ DANAVELDI!!!!!

Vonandi fer hún að ná sér elsku dúllan.

Góða skemmtun á jólahlaðborði.

Hilsen frá DK.

Brynja (IP-tala skráð) 6.12.2007 kl. 09:35

4 identicon

Elsku elsku ,mikið er sárt að lesa núna,en þar sem mikil kraftakona sem á í hlut ,þá á hún eftir að hrista þetta af sér þessi elska,megi góður GUÐ vaka og vernda ykkur öll.Kv.Hrönn.

Hrönn (IP-tala skráð) 6.12.2007 kl. 09:41

5 identicon

Vonum innilega að Þuríður fari að hrista þetta af sér. Gangi ykkur vel í öllu sem er frammundan.

Kveðja Elfa

Elfa (SKB) (IP-tala skráð) 6.12.2007 kl. 09:47

6 identicon

Risa knús, þið eruð fallegust

Katrín (IP-tala skráð) 6.12.2007 kl. 10:01

7 identicon

Fáið endilega lyf fyrir hetjuna ykkar, hún verður þá  farin að hressast á mánudag. Góða ferð í Danaveldi´

Jóhanna (ókunnug) (IP-tala skráð) 6.12.2007 kl. 10:39

8 identicon

hæ elskuleg

ææ hvað er erfitt að lesa þetta, vona að allt gangi og allt fari að lagast þið egið það svo innilega skilið knús og kossar til ykkar

mundu slauga mín þú ert yndisleg og alltaf svo sæt :-)

rakel (IP-tala skráð) 6.12.2007 kl. 11:17

9 identicon

 Þjáningar viljum við ekki sjá

Hugsun og líðan  er erfitt að tjá

Gleði í hjarta og  engin tár

Kraftaverkið kemur í ár

kveðja

Asa

ása (IP-tala skráð) 6.12.2007 kl. 11:36

10 identicon

Ég áttaði mig á því MÉR TIL SKELFINGAR að ég fór að hugsa. Hvernig getur HÚN farið út að skemmta sér og barnið hennar svona veikt. Ég varð svo reið útí sjálfa mig fyrir þessa hugsun og verð að játa það að gamla hugarfarið er lífseigt og ég verð virkilega að passa mig.

Ég er mjög glöð með það að þið skulið BÆÐI ætla að eiga góða helgi saman og njóta þessa að vera með vinum og kunningjum.

Bið svo heitt og innilega um að henni Þuríði batni sem allra allra fyrst. Kaupmannahöfn er auðvitað draumurinn, en eins og þú segir þá er það heilsan hennar Þuríðar sem er aðalmálið. Bið Guð að blessa ykkur öll Fríða

friða (IP-tala skráð) 6.12.2007 kl. 11:57

11 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

vonandi hressist nú ofurhetjan okkar um helgina og verður spræk á mánudag, ég trúi ekki öðru

Njótið ykkar dekursólahrings fram í fingurgóma krakkar mínir. Guð veri með ykkur öllum

Guðrún Jóhannesdóttir, 6.12.2007 kl. 13:07

12 identicon

Góða skemmtun um helgina. Þetta mun bara hafa góð áhrif á ykkur hressa svolítið upp á sálartetrið.  Bið algóðan Guð um að láta Þuríði litlu batna fljótt hún er sannkallað kraftaverk blessunin.

Kristín (IP-tala skráð) 6.12.2007 kl. 14:27

13 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Hinn Hæsti HImnasmiður verði með ykkur og lini þj´ningarnar.

Kertin loga sem tákn um vonina og tilfinningarnar sem eru alltumlykjandi.

Mér ber að þakka fyrir ljósið sem þú sendir okkur sem lesum um kærleikann og fórnfýsina, sem er foreldrum svo nær en í amstri hverdagsins, svo fjarrænn.

Búmannssorgirnar verða svo ofur léttvægar ef speglað er í þeirri hugarátök, sem vanmáttarkenndin er gangvart vanlíðan ástvina, hvað þa´barnanna sem eru Guðsgjafir sem við höfum mis lengi að láni.

Ég mun hugsa til ykkar þegar kertaljósin kvikna heima hjá mér og mun senda bænakvak út í það óráðna ykkur tileinkaðar.

Bjarni Kjartansson, 6.12.2007 kl. 15:07

14 identicon

Knús til hetjunnar

Þórunn (IP-tala skráð) 6.12.2007 kl. 17:04

15 identicon

Þegar ég kíkti hér inn bað ég til Guðs að fá góðar fréttir, en þær hefðu mátt vera mikð betri. Ég kíki alltaf annað slagið á ykkur hér á síðuna, en enda oftast með tárin í augunum og sorg í hjarta.

Gott hjá ykkur að gefa ykkur tíma saman, öðruvísi gengur þetta sennilega ekki, þetta er eitt af því sem við þurfum að æfa okku í, það er að skilja börnin eftir annarstaðar og fá smá tíma án þeirra. Ég kveiki á kerti fyrir Þuríði, og ykkur öll.  Risa faðmlag

Kveðja frá Kanada.

3 barna móðir (IP-tala skráð) 6.12.2007 kl. 17:32

16 identicon

Knús á ykkur elskan mín !!

Marianna (IP-tala skráð) 6.12.2007 kl. 17:46

17 identicon

knús til ykkar allra

Boston ( Guðrún) (IP-tala skráð) 6.12.2007 kl. 18:35

18 identicon

Elsku snúllan litla!  Allar mínar hugsanir og bænir eru hjá ykkur hetjufjölskylda, knús til ykkar

Guðrún Hafsteinsdóttir (IP-tala skráð) 6.12.2007 kl. 19:09

19 identicon

KNÚS TIL YKKAR.Eigið góða helgi.Kveðja

Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 6.12.2007 kl. 19:44

20 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

Stórt knús......hef lesið síðuna þína síðustu vikur, en aldrei commentað....en, verð núna....elsku reynið að slappa af, hvort sem það er sólarhringur eða 4-10 klst. Það munar um allt. Á eftir eruð þið sterkari, og getið gefið börnum ykkar alla ykkar orku. 

Svanhildur Karlsdóttir, 6.12.2007 kl. 19:58

21 identicon

Gangi ykkur vel.

Jóhanna (IP-tala skráð) 6.12.2007 kl. 20:19

22 identicon

Sæl verið þið kæra fjölskylda,

                                               ég sendi ykkar hér og me'ð stórt knús.Ég vona svo sannarlega að hetjan ykkar fer nú að batna af þessu híta og það ,bara svo hún gæti farið og skemmta sér aðeins með ykkar á Mánudaginn,Við erum öll að biðja á fullu fyrir hana og ykkar öll.Ég óska þess að þið njotið þess að slaka á í bláalónið,systur mín vinur lækningalind megin og hefur boðið okkur að prufa og váaaa hvað það er nótalegt.Guð verið með ykkur öll og guðs englar vaka yfir Þuríður og styrkja hana.Guð bleeið ykkar .Kær kveðja Dee

Dolores (IP-tala skráð) 6.12.2007 kl. 21:29

23 identicon

Sendi ykkur stórt knús og óskir og von um að litla hetjan nái sér fljótt og hristi þetta af sér, eins og annað sem á hana hefur herjað.  Hún er kraftaverk þessi stelpurófa.   Bestu kveðjur,  Stella A.

Stella A. (IP-tala skráð) 6.12.2007 kl. 21:30

24 identicon

Sendi ykkur öllum Riiiiiissssssa riiiiiiissssssa KNÚS

Með kærri kveðju frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 6.12.2007 kl. 22:01

25 identicon

Knús til ykkar allra - Guð - sem allt skilur og allt bætir - veri með ykkur alla daga - þið eruð ótrúleg og eigið ALLA mína aðdáun!!!!

Ása (ókunnug) (IP-tala skráð) 6.12.2007 kl. 22:53

26 Smámynd: Nanna Katrín Kristjánsdóttir

Þið eruð svo dugleg, ég trúi á kraftaverk og finnst í raun saga ykkar nú þegar kraftaverk.  Knús og kveðjur

Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 6.12.2007 kl. 23:07

27 identicon

Kraftaverk eru raunveruleg og óskir rætast. Kærleiks og batakveðjur. 

Kristjana (ókunn) (IP-tala skráð) 6.12.2007 kl. 23:27

28 identicon

Guð, gefi ykkur áfram kraftaverk. duglega fjölskylda. Litla hetjan ykkar er kraftaverk, knús og kveðjur Sólveig

Sólveig Jónsd (IP-tala skráð) 7.12.2007 kl. 00:01

29 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Fríða skrifaði:  Ég áttaði mig á því MÉR TIL SKELFINGAR að ég fór að hugsa. Hvernig getur HÚN farið út að skemmta sér og barnið hennar svona veikt. Ég varð svo reið útí sjálfa mig fyrir þessa hugsun og verð að játa það að gamla hugarfarið er lífseigt og ég verð virkilega að passa mig.

Mikið er þetta einlægt hjá Fríðu. Auðvitað dettum við öll annað slagið í neikvæðar og ósanngjarnar hugsanir, við erum nú öll mannleg. En mér finnst svo aðdáunarvert þegar við tökum eftir þessum augnablikum, nýtum okkur þau og lærum af þeim. Breytum sjálf hegðun okkar og hugsunum!

Knús tilbaka á línuna! Njótið Nordica Spa og alls þessa í botn. Nú þurfum við kallinn minn einmitt að fara að gera eitthvað svona áður en við súrnum hér hvort í öðru ;o) Þetta er nauðsynlegt fyrir hvert gott hjónaband.

Luv, Ylfa

Ylfa Mist Helgadóttir, 7.12.2007 kl. 00:29

30 identicon

Knús til ykkar allra við vonum bara það allra besta. Þuríður er svo mikil hetja að það kæmi mér sko alls ekki á óvart ef hún kæmi með annað kraftaverk!

Sólveig systir hennar Sóleyjar (IP-tala skráð) 7.12.2007 kl. 01:18

31 identicon

Elsku þið . ég sendi allar mínar bænir ykkur til handa. Megi algóður Guð gefa kraftaverk og það sem fyrst. en mig langar líka að fá leiðbeiningar um kertasíðuna, hvernig ég kveiki á kerti og allt það ( staf fyrir staf þar sem ég er ekki mikil tölvukona) er marg oft búin að reyna að kveikja á kerti og veit ekki hvort það hafi tekist. ef einhver væri til í að kenna mér (og kannski eru fleiri svona klaufar eins og ég, það væri vel þegið svo ég geti kveikt á kertum fyrir hetjuna ungu. með fyrirfram þökk og baráttukveðjum

kv.Guðný

Guðný (IP-tala skráð) 7.12.2007 kl. 08:58

32 identicon

Kæra Guðný,

þú ferð inn á kertasíðuna, ferð með bendilinn á kerti, sem ekki er kveikt og smellir á það.Á næstu mynd smellir þú á continue. Á næstu mynd merkir þú reitinn á miðri mynd með nafni eða stöfum og smellir á continue, þá kemur mynd af kerti með kveik, sem þú smellir á, þá kviknar á því og þú smellir á continue. Síðast smellir þú á yes eða no, og þetta er komið.

Kveðja Helga Har.

Helga Haraldsdóttir (IP-tala skráð) 7.12.2007 kl. 11:13

33 identicon

Stundum óska ég þess að ég vinni í lottó en ég gef þér óskina mína: Ég óska þess heitt og innilega að þú fáir gjöfina sem þú átt svo sannarlega skilið!

DoctorE (IP-tala skráð) 7.12.2007 kl. 20:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband