8.11.2011 | 10:26
Slöpp Maístjarna
Maístjarnan mín er ennþá drulluslöpp, liggur nánast alveg fyrir og sefur. Hún neitar alfarið að borða en ég næ að koma í hana nokkrum dropum af svala en þegar hún neitar kóki þá er nú mikið sagt, á venjulegum degi væri hún til í að drekka það í morgunmat. Hún reyndar labbaði aðeins um í gær sem er meira en hún hefur gert síðustu daga en hún er líka fljót að þreytast og vill bara leggjast aftur fyrir og fara sofa. Það eru ca 3kg farin af henni síðan á föstudag sem er að sjálfsögðu mjög mikið af svona litlum kroppi.
Núna tökum við bara einn dag í einu og reynum að byggja hana rólega upp, maður er svo oft komin á "byrjendareit" en eitt er víst að hún ÞARF að borða sem hún vill EKKI.
Hérna eru tvær myndir frá því um helgina en hún var send í myndatökur á höfðinu til að vera vissum að allt væri í lagi:
Ég verð líka að láta eina fylgja af Sjarmatröllinu okkar sem telur niður dagana í þriggja ára afmælið sitt því hann er alveg 100% viss hvað hann eigi að fá í afmælisgjöf og jú auðvidað hefur hann rétt fyrir sér.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
31 dagur til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Seigur stráksi að vita það
Halldór Jóhannsson, 8.11.2011 kl. 10:32
Trú, von og kærleikur
Helga (IP-tala skráð) 8.11.2011 kl. 12:14
Guðrún unnur þórsdóttir, 8.11.2011 kl. 13:04
Baráttu og batnaðarkveðjur til ykkar
Sæunn ókunn (IP-tala skráð) 11.11.2011 kl. 22:23
Langaði bara að senda ykkur koss og knús!!! Vonandi fer Þuríði að batna og allir geta skemmt sér vel í afmælinu hjá litla kút:o)
Ásdís (IP-tala skráð) 12.11.2011 kl. 00:00
Kristín (IP-tala skráð) 12.11.2011 kl. 09:56
Kæra fjölskylda, ég hef fylgst með í allt of mörg ár, það á engin að upplifa svona mikil veikindi hvað þá lítið barn. Ég á sjálf uppkominn son sem hefur glímt við veikindi sl. 13 ár en þvílíkt og annað eins og þið hafið lent í mann setur hljóðan. Sendi ykkur allar mínar góðu hugsanir og styrk, góðar óskir og kærleik, óskir og vonir um að nú fari að birta upp, að litla fjölskildan fái að lifa og njóta hversdagsleikans án þessara váskýja sem verið hafa. Kærleikskveðja til ykkar allra
Berglind Hallmarsdóttir (IP-tala skráð) 12.11.2011 kl. 12:27
Æ, hvað er að heyra. Hélt að allt væri á réttu róli hjá ykkur.
Ég sendi Maístjörnunni batakveðjur.
Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 13.11.2011 kl. 16:08
Knús á ykkur fallega fjölskylda. Hugsa svo ótrúlega oft til ykkar og fylgist með þó ég þekki ykkur ekki neitt. styrkur þinn, Áslaug, hefur haft gífurleg áhrif á mig. Vona, óska og bið þess að hún Þuríður Arna, og þið öll raunar, eigið betri tíma framundan og bestu jól sem þið hafið upplifað.
Svandís (IP-tala skráð) 13.11.2011 kl. 21:42
Hvað er að heyra , svo langt síðan að ég hef heilsað upp á ykkur hér , vonandi hristur hún þetta af sér og verður ofurhress þegar litli pjakkur á afmæli :) sendi ofurkrafta og knús ,
kveðja að austan
Dagrún (IP-tala skráð) 15.11.2011 kl. 00:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.