Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2006

Örlitlar fréttir

Jiiiminn eini hvað hann litli pungurinn minn hann Theodór er orðinn mikill tætari, engar skúffur eru látnar í friði á þessum bæ.  Við erum með svona nokkrar skó-skúffur nei ég get eiginlega sleppt því að vera með þessar skúffur fyrir skóna þar sem hann tætir jafn óðum uppúr þeim.  Hann er á þvílíkum þeytingi um alla íbúð í göngugrindinni, eltir systur sínar um alla íbúð og þær draga hann á eftir sér.  "Læsa" hann oft inní herbergi þá sérstaklega Oddný Erla þegar hún er orðin leið á þessum þeytingi á honum eheh frekar fyndið og verður alveg brjáluð ef ég leysi hann útur prísundinni.

Hann er farinn að "skríða" reyndar togar hann sig áfram á maganum eða fer á rassinum sínar ferðir og svo er hann farinn að setjast upp sjálfur þegar hann er settur uppí rúm og finnst það obboslega fyndið eheh!!  Hann er líka farinn að reyna toga sig upp en ræður samt ekki alveg við það, well þá er hann rétt í þessu búinn að ná sér í álpappírs-rúlluna og varð ótrúlega reiður þegar ég tók hana af honum. thíhí!!  Oh mæ hvað hann er mikil frekja og svo stendur hann hliðina á mér og öskrar á "mamma mamma" og vill greinilega að ég fari að taka sig.  Ætli það fari ekki að koma tími á það.

Þá eru stelpurnar mínar rétt í þessu að koma til mín rétt í þessu með "matinn minn" en þær eru að baka og elda handa mér inní herbergi og eru ótrúlega stolltar með afraksturinn eheh!  Æðislegar!!  Þannig ég ætti kanski að fara inní herbergi til þeirra og "borða" þetta allt saman hjá þeim.  Slurp slurp!!

Ætlum annars að hafa það rólegt í dag, jú ætlum aðeins að stússast en Þuríður mín  má nú ekki fara í mikið af búðum þessa dagana vegna þess hvursu lág hún er í öllu þannig ég verð aðeins að senda hana til pabba síns í vinnuna sem henni finnst ekki leiðinlegt.  Ræktin kallar á mig seinni partinn og svo ætla ég að fara útí TBR aðeins að vinna í mótinu og á morgun líka og verður það Sálin baby Sálin.

Þannig ég vill bara óska ykkur góðra helgar.

Þið viljiðs sem sagt einhverjar fréttir?

Þið eruð væntanlega að bíða eftir einhverjum krassandi fréttum, well ég hef engar þannig fréttir að segja frá.

Þuríður mín fer lækkandi í öllum gildum en hún fór í blóðprufu í gær og allt var orðið frekar lágt þannig mar á von á því að stúlkukindin verði veik á næstu dögum.  Aaaargghh!!  Er ekki alveg að meika það að vera uppá spítala en það þýðir ekkert að græta það, geri allt fyrir stelpuna mína svo henni líði sem best og ég veit að henni líður ekkert illa að vera uppá deild.  Finnst svo hrikalega gaman að fara í “leikskólann” sem er þar og svo hitta alla doktorana, vildi að ég væri svona kát að fara þangað.  Well mar hugsar það versta en vonar það besta.

Hún er alltaf krampandi það eru víst engar nýjar fréttir, stundum er hún einsog versta fyllibitta eftir krampana þar sem hún verður alveg hrikalega völt.  Hún ætlar sér samt alla hluti alveg sama hvernig henni líður sem er alveg yndislegt að sjá. 

Það er verið að minnka einn lyfjaskammtinn hennar þar sem hann var EKKERT að gera fyrir hana, munum klára minnka þann skammt í næstu viku en þetta verður víst að taka eina til tvær vikur, má ekki gerast of hratt.

Á morgun er frídagur á leikskólanum, hmm hvað eigum við þá að gera?  Ætli við verðum ekki heima fyrir hádegi og dundum okkur hérna heima, læt stelpurnar þrífa íbúðina.  Það væri óskandi að þær væru komnar á þann aldur eheh verst að þær myndu ekkert nenna því þótt þær væru það en það væri kanski hægt að “kaupa” þær fyrir að gera það.  


Ef Þuríður mín verður ekki orðin lasin á laugardaginn þá verða þær systur sendar uppá Skaga í næturpössun þar sem við Skari ætlum að halda smá teiti á laugardagskvöldið (þið eruð velkomin) og halda svo beint á Nasa á Sálina en ekki hvað? Theodór minn Ingi verður sendur til Lindu og strákana well það minnir mig á það að hringja í Lindu og ath statusinn þar á bæ.


Annars vorum við að fá miðana okkar á Abba-showið og ég er hrikalega spennt að fara, hlakka svo til að fara gera ekki neitt með Skara mínum.  Spenntust!!  Reyndar er ég búin að fá lista frá Dísu skvísu hvað við eigum að gera hmmmm!!  Leist reyndar ansi vel á hann, víííí!! 

Ætli það sé ekki best að fara halda áfram að fara vinna í heimilisbókhaldinu, djöh er það leiðinlegt!!


Hefði getað barið þennan kennara

Um daginn var ég stödd á ákveðnum stað þar sem leikfimi var í gangi sem er kanski ekki frásögufærandi nema hvað það kemur stúlka til leikfimiskennarans sem er greinilega eftir á sá ég.  Hún spyr kennaran bara saklausa spurningu sem honum fannst ótrúlega heimskuleg þannig hann svarar henni leiðinlega tilbaka og lætur sig líta út sem heimskan og hálfpartinn hlær framan í stelpuna.  Þegar hún labbaði í burtu eða var ekki einu sinni farin alveg frá honum þá fer hann að hlæja að henni og lítur á mig og hlær til mín því honum fannst hún svo ótrúlega heimsk. 

Vitiði það ég varð svo reið að ég hefði getað barið kennarann, ég beið eftir að hann segði eitthvað við mig sem hefði ekki verið gott því ég hefði æst mig svo hrikalega við hann sem ég er ekki vön að gera og eitthvað annað ljótt geta gerst.  Aaaaarghh!!  (hann á greinilega engin börn þessi fáviti sorrý)

Þetta var bara einelti, það eru greinilega margir kennarar í þessum ákveðna skóla sem leggja nemendur sína í einelti(ég hef verið vitni af því).  Afhverju haldiði að ég sé orðin stressuð að senda hana Þuríði mína í skóla? Eru margir kennarar svona?  Jú hún Þuríður mín er öðruvísi en önnur börn, hún er eftir á í þroska og á erfitt með að einbeita sér þannig það þarf mikla þolinmæði til að sinna henni.  Kennarar eru ekkert betri en börnin, ég er ekkert að segja allir kennarar séu svona enda þekki ég marga góða kennara en þeir leynast samt þarna inná milli.


Ritstífla

....sorrý en það hefur orðið einhver ritstífla hjá ritaranum og svo er netið eitthvað að bögga ritarann. 

Þanga til síðar....

Fasteignir

Afhverju þurfa þessir stýrisvextir alltaf fara hækkandi, ég get aldrei keypt mér nýja íbúð.  Þetta er hræðilegt!!  Mar horfir á lánið á íbúðinni sinni hækka og hækka á netbankanum, hvenær fer þessu að linna?  Það er alveg að fara með mann að búa í þessum stigagangi sem ég bý í, íbúðin sjálf er kanski ekkert orðin of lítil þótt manni langi alltaf að leyfa börnunum sínum að vera í sérherbergi en ég vorkenni samt ekkert stelpunum að vera saman í herbergi. Eru ennþá svo ungar en bara þegar ástandið er svona einsog það er hefði ég vilja flytja héðan fyrir einhverjum mánuðum.  Ömurlegast!!  Ekki nóg með að mar þarf að berjast fyrir veikindum barnsins sem fer oft með mann hvað þá þessu sem við erum líka að berjast fyrir, aaaaaaaarghhh!! No komment!! 

Getur mar ekki tekið lán að utan? Ótrúlega bjartsýn, er ekki allt betra en hérna á klakanum?  Var annars að sjá eina draumaíbúð, lovely!!  Hérna er slóðin http://www.mbl.is/mm/fasteignir/fasteign/?eign=217466 hvílir þvílíkt á henni, fólkið greinilega tekið sér lán til að minnka greiðslubirgðina á sínum tíma þegar vextirnir voru sem bestir.  Getur mar sem sagt ekki yfirtekið lán ef það er í öðrum banka en mar er sjálf með viðskipti í?

Mig langar að flytja héðan NÚNA!!

Annars er ástandið á heimilinu svipað og það hefur verið, ekkert betra allavega!!  Þuríður mín krampar og krampar, Oddný Erla hress og kát með nýju klippinguna sína (gat orðið ekki séð út fyrir hári) og Theodór minn vill bara láta mömmu sína hafa fyrir sér.  Algjör dós!!

Stelpurnar eru þvílíkt að taka vaxtakippi þessa dagana, öll fötin að verða of lítil eheh!! Fyndið að fylgjast með þessum vaxtakippum sem þær fá, ég man að þær fengu svona kippi síðast í mars.  Greinilega sirka tvisvar á áriUllandi.  Þannig þær eru að kalla á ný föt, "mamma þeim vantar ný föt" eheh!!

Best að halda áfram að gera ekki neitt eða kanski skúra, skrúbba og bóna......

Ný könnun!!

Jámm flestir sögðu að ég bloggar bara temmilega, ekkert of lítið.  Sumir finnst ég blogga of mikið og geta næstum því ekki lesið allt sem ég skrifa, hmmm!!

Endilega svarið næstu könnun!!

Endalaust margir krampar

Þuríður mín er búin að vera krampa endalaust mikið síðustu daga og er að sjálfsögðu gjörsamlega ónýt eftir þá.  Jú hún vaknaði súper hress í gærmorgun krabbameinslæknarnir voru einmitt í heimsókn hjá okkur uppá deild og þeir einmitt sögðu það að þeir hefðu ALDREI séð hana svona hressa enda var æðislegt að sjá til hennar.  Hún var að leika sér sem hún gerir næstum því aldrei enda líður henni alltaf svo illa og lyfin fara þannig í hana að hún ekkert að einbeita sér í mínútu.  Tónlistarkennarinn kom í heimsókn til hennar (er í smá verknámi uppá spítala) og þær voru að tralla saman og það var ótrúlega gaman að sjá hvað hún var glöð þennan klukkutíma og það var sungið Kolakassalagið og öll fjölskyldan tekin fyrir þar ehehe.  Bara gaman!!

Um hádegi í gær byrjaði Þuríður mín að krampa og krampaði endalaust mikið og var líka þvílíkt óhamingjusöm þar sem eftir var af deginum nema þegar Linda og Sindri Snær komu, það lyfti henni aðeins uppHlæjandi.  Linda kom með fullt af buffum og húfum handa Þuríði sinni og gaf henni sem hún getur notað í vetur, hún var heldur ekki lengi að velja sér eitt stk flíshúfu frá Lindu og co til að taka mér sér á leikskólann.  Bara gaman!!  Knús til ykkar!!

Við vorum á smá "fundi" í gær með doktor Ólafi og ræða statusinn á henni Þuríði minni sem er alls ekki góður, við erum ekki ánægð með það hvað hún krampar mikið og við viljum það sé reynt að gera eitthvað meira fyrir hana.  Það er bara kanski mjög erfitt að reyna gera eitthvað fyrir hana en við vitum það kanski/vonandi eftir næstu myndatökur sem verða 10.okt.  Ef æxlið heldur áfram að stækka verður væntanlega ekkert hægt að gera sambandi við flogalyfin, við lyfjum nebbla láta hana fá alveg nýjan skammt af lyfjum þar að segja henda gömlu lyfjunum út og fá alveg ný í staðin en það verður víst ekki hægt ef æxlið heldur áfram að stækka það gæti bara gert illt verra því verr og miður.  Við höldum samt í vonina og vonum að það sé ekki að stækka þótt þeir munu ekkert vita hvort það sé vegna lyfjameðferðar eða hvort það sé að stækka í raun og veru sem væri verst í heimi þannig ég ætla að reyna ekki að hugsa svo langt.

Við hittum félagsráðgjafan upp spítala líka en hún ætlar að reyna koma því í gegn að leyfa Þuríði fá stuðningsaðila 1-2 helgar í mánuði sem væri fínt fyrir alla.  Reyndar vill ég ekki neinn ókunnugan þannig við fáum Þuru tengdó til að hjálpa okkur í þeim pakka og vonandi fer það í gegn.

Loksins erum við að fá það í gegn að láta hana fara til sjúkraþjálfara, veitiggi alveg hvenær hún byrjar en það fer vonandi að líða af því.  Hittum iðjuþjálfara fyrir sirka hálfu ári og hún sagði að hún þyrfti ekki á neinu að halda, dööööö!!  Hvursu heimsk hélt hún að við værum, hún á erfitt með að hlaupa og þegar hún er á sterku krabbameinslyfjunum labbar hún á tám sem eru fylgikvillar.  Hún er ótrúlega stirð, hún lamast í hægri hendi eftir krampa og smávegis í hægri fæti en samt ekki eins mikið og hún gerir í hendinni enda dettur hún alveg út.  Þannig hún þarf hjálp við að styrkja sig bæði í sjálfri krabbameinsmeðferðinni og eftir hana og við hefðum viljað byrja fyrir hálfu ári neinei þá fáum við þá slettu í andlitið að hún þurfi ekki á þessu að halda.  Ætli þessi iðjuþjálfi hafi verið lærð?

Það er búið að panta aðra höfuðhlíf fyrir hana þannig ein getur verið alveg föst á leikskólanum og hin heima því oft gleymist þetta heima eða öfugt og það er ekki gott sérstaklega þegar hún kemur ekki með hana á leikskólann.  Svo vildi sjúkraþjálfinn fá hjólastól fyrir hana?  Ég veitiggi alveg afhverju ég var bara svo dofin og þreytt í gær þegar hún var að gera þetta allt saman að ég hafði ekki einu sinni orku í að spurja.  Nottla snyðugt að geta keyrt hana í honum þegar hún fer með leikskólanum eitthvað og okkur því hún kemst ekki endalaust í kerrur en samt?  Æjhi ég veitiggi?

Það var verið að rannsaka Theodór minn Inga líka í gær, settur poki á typpið því það þurfti að taka smá sýni hjá honum er nebbla ekki alveg ánægð með drenginn minn og svo verður mar alltaf ennþá hræddari um börnin sín þegar mar á eitt veikt fyrir.  Doktor Ólafur var fyrst að ath hvort hann væri sykursjúkur (það væri þá til að senda mann á klepp) eða hvort það væri eitthvað að nýrunum hans en það kom sem betur fer allt gott þar en ég vill líka að það sé tekin blóðprufu því það er eitthvað að bögga hann.  Nenni ekki að útskýra hvernig hann aktar, sorrý!!  Förum uppá spítala á miðvikudag (vonandi ekki fyrr) og þá bið ég þá að skoða hann betur, ég er sko ekki hætt ég vill fá svör.

Helgin framundan og við mæðgur ætlum að skreppa loksins segir Þuríður mín allavega ehehe á Grettir á sunnudag en Oddný Erla er orðin voðalega spennt að fara í bíó eftir að hún fór í leikhús á sunnudaginn í boði leikhússins (boðið fjölsk. í styrktarfélaginu á Hafið Bláa) sem var geggjað stuð.  Búin að lofa stelpunum mínum líka að fara í nammibarinn í Hagkaup á morgun þar sem það er nammidagur, sjitt hvað ég ætla líka að nýta hann ehehe enda bara orðið einn nammidagur hjá mér á viku.  Víííí!!  Slurp slurp!!

Ætli það verði ekki bara video-kvöld hjá okkur Skara í kvöld, fætur uppí loft þegar börnin verða sofnuð og sofna uppí sófa fyrir framan imban. 

Hey ef þið ætlið á Sálina á Nasa laugardaginn 30.sept þá getiði kíkt í bergið á undan balli, við erum nebbla næstum því búin að redda pössun og við ætlum að reyna tjútta þetta kvöld og vera með smá partý.  Víííí!!  ÞAr að segja ef Þuríður mín verður ok.

Góða helgi alle sammen, farin að sinna litla mömmulingnum sem má ekki missa sjónar af henni.  Bara yndislegastur!!

Engu er að kvíða?

Reyndu ef þú getur
að gleyma og hvílast betur
hugsaðu helst ekkert
engu er að kvíða..........

Jamm ég vildi að það væri svo einfalt og auðvelt að geta bara hvílst vel og hugsað helst ekkert um veikindin hennar Þuríðar minnar, þetta hvílir á manni alla daga.  Það koma þessir dagar og oft finnst mér erfitt að kvarta og kveina hérna því þið eruð alltaf að tala um hvað við séum dugleg, miklar hetjur og höndlum þetta vel og þá finnst mér erfitt að vera eitthvað neikvæð hérna.  Mar er bara ekkert syngjandi glöð alla daga með svona veikt barn einsog Þuríði og vita ekki neitt og neitt? 

Þetta er nottla ekkert leggjandi á nema sterka einstaklinga og ég hef kynnst því þessi "tvö" ár sem Þuríður mín hefur verið veik hvað við erum sterk og hvað við erum sterk saman og hvað þetta þjappar manni bara meira saman.  Það er líka svo "skrýtið" en þá hef ég bara kynnst jákvæðum og sterkum foreldrum í gegnum þessa veikinda súpu, greinilega útvalið fólk sem er valið í þetta verkefni, afhverju ætli það sé?

Þessa dagana finnst mér ég allavega vera búin á því, þessir dagar koma svona inná milli.  Ég er samt ekki eins þreytt ég hef verið og ég tel það vera ræktinni að þakka, er ótrúlega dugleg þar enda í þvílíku átaki.  Hætt að drekka kók og það tekur nú held ég gífurlega miklu orku frá manni þegar mar drakk það á hverjum degi, nammið næstum því farið nema um helgar að sjálfsögðu. 

Þuríður mín er mjög slöpp núna, búin að fá tvo krampa í morgun og það stóra.  Það gjörsamlega slökknaði á henni eftir fyrsta krampan, sofnaði bara í fanginu hjá mér en núna liggur í sjúkrarúminu og horfir á Mikka Ref með bros á vör.  Við erum sem sagt komin uppá spítala og verðum hérna þanga til á morgun vonandi ekki lengur en það er komið frekar mikið slím í mína þannig þá verð ég bara að krossa fingur að hún sé ekki að verða lasin.  Aaaarghh!! 

Tengdó er svo sæt í sér að hún ætlar að vera hjá henni í nótt og í dag, ég ætla að reyna gera eitthvað skemtilegt með frk. Oddnýju minni og Theodór.  Má ekki gleyma hinum tveimur!!

Þið megið alveg koma með hugmyndir fyrir okkur Skara hvað við getum gert í London annað en að fara á ABBA, sofa, borða eitthvað gott jámm og svo má ekki gleyma að hvíla sig ehehe.


ATH

Ný könnun!!

Þórdís ef þú ert stærri en ég þá er ég 180cmHlæjandi

Hef enga fyrirsögn?

Í dag hefði Þuríður mín Arna átt að fara í sneiðmyndatökur en þeim var frestað til 10.okt, þeir segja að þær hefðu ekkert verið nógu marktækar fyrir þá ef hún hefði farið í dag. Well ég hef heldur enga trú á því að þær verði eitthvað marktækari fyrir þá (læknana) eftir fjórar vikur, kanski verður æxlið búið að stækka eitthvað þá en þeir munu þá ekkert vita hvort það sé vegna lyfjameðferðarinnar þar að segja bara bólgur í því eða hvort það væri virkilega að stækka og þeir mundu heldur ekkert vita það í des þegar hún fer aftur og svo koll af kolli.  Hvursu lengi þurfum við að bíða í þessari óvissu, já mar þarf að vera virkilega sterkur en það sem líður lengra á veikindasögu Þuríðar minnar finnst ég verða veikari og veikari þar að segja ekki nógu sterk og ég var þegar hún veiktist fyrst. 

Ótrúlega skrýtið eða kanski ekki, mar hélt þá að það myndi finnast strax lækning fyrir hana eða að þeir myndu geta gert eitthvað strax fyrir hana en nei það eru liðnir næstum 23mánuðir og "engin" lækning hefur fundist.  Það er ennþá verið að prufa hitt og þetta en aldrei gerist neitt gott fyrir hana en þjáist hún á hverjum degi og það tekur rosalega á taugarnar hjá manni.  Alltaf bregður mér þegar hún fær krampa samt ekki einsog fólkið í kringum mig sem hefur aldrei áður séð hana í krampa það fær nett sjokk sem er ekkert skrýtið, hún hrinur niður og skellir oftast höfðinu í þar sem hún dettur, hún stirðnar upp, augun verða oft skrýtin og svo getur hún orðið mjög ofvirk eftir krampana eða hún dettur hreinlega út þar að segja hún sofnar bara um leið.  Hún er ennþá að lamast í hægri hendi eftir krampa og oft getur hún ekki staðið upp eftir þá en hún er fljót að bjarga sér þessi hetja þá notar hún bara höfuðið til að hjálpa sér upp.  Yndislegust!!

Hún fékk marga krampa í gær einsog flesta daga það kemur engin góður dagur hjá henni, hún er líka sofnuð fyrir sjö á kvöldin við rétt náum að moka smá mat uppí hana og gefa henni lyfin og svo búúúúmm sofnuð og sefur alla nóttina.

Hún er að fara uppá spítala á morgun og verður þar í sólarhring en hún er að fá krabbameinslyfin sín og ég er doltið kvíðin hvernig þessi lyfjameðferðin mun fara í hana þar sem þetta er sú sama sem hún varð svo veik af í sumar. 

Oft gleymir mar að tala um hin börnin í þessari veikindasúpu, Theodór minni Ingi er farinn að reyna standa upp við leikfangakassann sinn en veit samt ekki alveg hvað hann á að gera frekar fyndið að sjá hann.  Hann segir "mamma" á fullu og mér finnst það endalaust gaman, alltaf þegar hann er að kvarta og vill að mín taki sig þá er það bara "mamma mamma", hann segir reyndar líka "babba" en það er nú ekki eins oft eheh enda algjör mömmukarl. Má ekki missar sjónar af mömmu sinni þá verður hann alveg snar, litli pungurinn er að fara fá rör í eyrun og svo ætla ég reyndar líka að biðja doktorinn hennar Þuríðar að kíkja á hann á morgun þar sem ég er ekki ánægð hvernig hann er, nenni reyndar ekki að útskýra.  Later!!

Oddný Erla er ekki einsog tveggja ára gamalt barn, æjhi ég veit eiginlega ekki á hvaða þroska hún er.  Við Skari vorum einmitt að tala um það um dagin hvar fær hún þetta að vera svona vitur það hlítur að vera laaaaaaaaaaaaaangt aftur í ætt ehehe.  Hún kallar alltaf á okkur þegar Þuríður fær krampa og svo er hún líka farin að hugsa um hana í krampa því hún veit alveg hvað hún á að gera, skiljiði barnið er rúmlega tveggja ára.  Hún er sko algjör mamma kanski einum of þroskuð og hefur kanski of miklar ábyrgðar tilfinningu fyrir systir sinni.  Mar verður kanski að passa uppá það?  Hún kann að skrifa stafi jamm ég sagði stafi en hún getur alveg gert stafinn sinn og verður alltaf jafn stollt þegar hún er búin að gera hann og við líka eheh.

Annars var snilldin ein á Sálartónleikunum, vávh mar spáh mar!!  Mar sat dofin í sætinu sínu alla tónleikana og gapti bara, oh mæ!!  Flottastir!!  Ég mun kaupa dvd-diskinn heitann og cd-inn líka, hlakka svona líka mikið til þegar þeir koma út hvenær sem það verður.  Núna langar mig að fara á Sálarball, veit að þeir verða á Nasa 30.sept, hver hver og vill verður að lofa bannað að svíkja?  Þar að segja að passa yndislegustu börn everGlottandi.

Við Skari erum búin að panta okkur miða á Abba föstudaginn 13.okt, púffh mig langaði nú ekki að fara þennan dag en það var ekkert annað í boði.  Damn!!  Mig hlakkar endalaust mikið til að fara ein með honum, oh mæ!!

Farin að passa Jón Karl og Lindu Björg frændsystkin mín en þau eru að koma til mín og ég veit að stelpurnar verða endalaust ánægðar með þaðBrosandi


Næsta síða »

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband