Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2011
23.2.2011 | 10:07
Á uppleið
Ég þori varla að nefna það er en Maístjarnan mín er á uppleið, er svo hræddum að allt hrynji ef ég fer að nefna þetta. Sú allra flottasta fór útí leiki með nágrannavinum sínum um helgi og skemmti sér svona líka vel. Í morgun þegar hún var að fara í skólann þá var hún ekki lengi að drífa sig að finna útifötin sín því hún ætlaði að fara útí frímínútur sem hefur ekki gerst síðan í byrjun des. Við meir að segja löbbuðum í skólann sem hefur heldur ekki gerst síðan í byrjun des, það er ekkert langt í skólann en þá er þetta langur spölur fyrir barn einsog hana en hún kvartaði ekki, naut sín bara að labba og anda að sér fersku lofti. Blómarósin mín var líka ótrúlega hamingjusöm að stóra systir ætlaði að hitta hana í frímínútum og fara með henni í "eina krónu". Bara gaman!!
Þó svo hún líði fyrir það að komast ekki í einhver "gellu"föt og vera ennþá svona útþanin þá trúi ég því að þetta er ALLT AÐ KOMA hjá henni. Hún er allavega búin að vera ótrúlega hress síðustu daga og sjá hana fara út að leika er það besta sem ég hef séð síðustu mánuði. Ég vona að það verði hægt að minnka sterana en meira um mánaðarmótin.
Hún er reyndar ekkert lengi í skólanum í einu ...ennþá en við ætlum að fara lengja þann tíma en meira á næstu dögum.
Stutt í dag, er að fara ná í Maístjörnuna mína og hlakka til að heyra hvernig henni gekk í frímínútunum og svo er það sjúkraþjálfun.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (51)
18.2.2011 | 19:36
Erfitt ástand
Mikið ofsalega er þetta ástand farið að taka sinn toll á Þuríði minni, hún er ofsalega leið á því að vera einsog hún er þar að segja útþanin vegna stera. Hún á ekki mikið af fötum sem hún getur klæðst vegna þess hvað maginn er stór og hún er orðin ofsalega leið á að vera alltaf í sömu fötunum, auðvidað langar manni að "gellast" stundum þó svo maður sé bara 8 ára gömul. Hún t.d. renndi í gegnum fataskápinn sinn í dag og langaði svo að klæða sig í gallabuxur, mátaði allar sínar buxur og komst að sjálfsögðu ekkert í þær og fannst það ofsalega leiðinlegt. "æji mamma þetta er svo erfitt", "mig langar svo að fara í þessar buxur". Nei hún gafst samt ekkert upp, ákvað að prufa þær samt allar þó svo ég reyndi að segja henni annað. Auðvidað er þetta "bara" tímabundið ástand en það er líka komið á þriðja mánuð og ekkert skrýtið að henni langi að fara í einhver önnur föt en hún hefur verið í síðastliðnum tæpum þremur mánuðum. Þau föt sem hún hefur klæðs verða líka "ónýt" eftir að líkamninn hennar fer í rétt form (orðin frekar teygð) og ég er líka búin að lofa henni því að við förum í mollið og verslum gelluföt á hana þegar þetta allt lagast. Ég er þegar orðin spennt fyrir þeirri stelpuferð okkar en ég trúi því að þetta er allt í áttina hjá henni.
Þuríður mín byrjaði á miðvikudaginn að mæta tvo tíma í skólann en það hefur hún ekki gert síðan í byrjun desember. Hún fer samt ekkert í neinar frímínútur þar sem hún ræður ekkert við að vera úti að leika sérstaklega í þessari hálku. Hún er byrjuð í sjúkraþjálfuninni sinni, mætir þangað 2x í viku og er gjörsamlega búin á því eftir hvern tíma en getur samt ekki beðið eftir þeim næsta. Henni finnst æðislegt að vera þar sem hún er þó svo þeir geti stundum verið erfiðir fyrir viðkvæma kroppinn hennar.
Oddnýju Erlu minni líður aðeins betur í hjarta sínu, þegar Þuríði minni líður ágætlega þá líður þeirri yngri betur.
Hérna er ein af Oddnýju minni:
Kæru lesendur góða helgi, við ætlum allavega njóta þess að gera eitthvað skemmtilegt saman um helgina.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
8.2.2011 | 14:07
Stuttar fréttir...
Það er mikil þreyta á heimilinu sérstaklega held ég hjá foreldrunum og jú hjá Maístjörnunni minni. Dekrið sem ætluðum í þar síðustu helgi misheppnaðist aðeins þar sem við veiktumst bæði af magakveisunni sem börnin voru búin að vera með svo við eyddum sólarhring á hóteli með magakveisu, frekar leiðinlegt! Okkar tími kemur!
Maístjarnan mín fékk krampa í morgun, lét mig vita rétt áður en hann kom sem var gott því þá gat ég haldið í hendina hennar sem mér finnst frekar mikilvægt að hún finni að ég er hjá henni. Það á að minnka steraskammtinn hennar en það er samt alveg allavega mánuður í viðbót af þessum "viðbjóði" sem jú virkar en fer hrikalega illa í hana. Maístjarnan mín er svo að byrja í sjúkraþjálfuninni sinni, við fengum inn hjá okkar uppáhalds á greingarstöðinni og hún gæti ekki verið hamingjusamari með það(og ekki við heldur). Hún þarf nefnilega að byrja byggja sig upp frá grunni og þá viljum við líka vera hjá "okkar" fólki, þeir sem þekkja Maístjörnuna mína best og ná best til hennar. Einsog ég hef OFT sagt áður þá erum við ótrúlega heppin með ALLT fólkið sem hefur raðast í kringum okkur, að sjálfsögðu hefði ég viljað geta sent hana bara beint í fimleikana sína en það er því miður ekki í boði fyrir veika kroppinn hennar. Hún verður í staðin orðin flott fyrir þá næsta haust en ekki hvað?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
5.2.2011 | 20:49
Bætist í safnið.
Einsog ég hef oft nefnt hérna áður er eitt af því sem Maístjarnan mín elskar þessar vikurnar er að perla sem er að sjálfsögðu æðislegt þar sem hún þarf að æfa fínhreyfingarnar sínar. Það er líka mikill skjálfti í höndunum sem tengjast eitthvað veikindum hennar (lyfjunum) og henni finnst það líka virkilega óþægilegt en hún gefst samt ekki upp að perla sem sýnir líka bara að viljinn er MIKILL. Í vikunni kom flottur pakkinn til Maístjörnunnar minnar en það voru perlumunstur með umferðarmerkjunum sem hún var ekki lengi að byrja á og fyrsta merkið sem hún gerði var STOP merkið (verst að ég klikkaði á mynd) og það var gjöf til prestsins okkar uppá spítala. Hérna fleiri meistaraverk eftir elsku Maístjörnuna mína:
Við pössum að sjálfsögðu vel uppá þetta eða einsog gullið okkar.
Annars er Maístjarnan mín hægt og rólega að byggja sig upp, tökum bara einn dag í einu og mætum í klukkutíma í skólann á dag. Hún er ennþá ofsalega þreytt og orkar ekki mikið í einu en ÉG VEIT að þetta kemur allt saman, tekur sinn tíma. Förum og hittum lækni okkar á mánudaginn og þá verður framhaldið rætt og vonandi búið að ákveða með nýju rannsóknina hennar til að skoða æxlið betur.
Við kíktum að sjálfsögðu út í dag en þar orkaði Maístjarnan mín kanski korter en það er líka korter meira en síðustu vikur. Hin voru dregin inn í kvöldmat. Yndislega skemmtilegur þessi snjór. Hérna er nokkrar frá deginum í dag en ég ákvað ekki að birta mynd af Maístjörnunni minni hérna þar sem henni er ekkert ofsalega vel við myndatökur útaf útliti og líðan.
Theodór minn var sko kátur með snjóinn.
Hinrik mínum fannst alveg svakalega fyndið og skemtilegt þegar pabbi hans henti snjó yfir hann.
Systkinin í snjóhúsinu.
Snjórinn bragðast alltaf jafn vel. Hverjum finnst ekki snjór góður?
Ég verð svo að nefna það en mín yndislega systir og hennar maður voru að eignast sína þriðju stelpu á fimmtudaginn, jiiiidúddamína litla "óskin" mín. Þvílíkur draumur í dós og hvað ég ætla að dekra við þessu litlu "ósk". Yndislega falleg og ég get ekki beðið með að knúsa hana aftur á morgun.
Eigið góða daga, hér tökum við bara einn dag fyrir í einu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
3.2.2011 | 08:34
Niðurstöður
Það er engin hjöðnun í æxlinu síðan í byrjun des, 70% líkur á að þetta eru "bara" bjúg en það gæti líka verið einhver æxlisvöxtur í meininu en þetta er í fyrsta sinn sem þessi læknir okkar getur ekki sagt okkur 100% hvað er að ske "þarna uppi" og það er vont. Maístjarnan mín á væntanlega að fara í einhverjar aðrar myndatökur sem eru alveg nýjar hér á landi en byrjað að nota í "útlandinu"til að fá betri niðurstöður. Svo er fleira í stöðunni sem ég ætla ekkert að ræða hér.
Nei mér líður ekki vel við þessar niðurstöður (ég þrái svo mikið að heyra eitthvað gott), þetta er gjörsamlega að éta mig að innan og þessi helvítis óvissa er að ganga frá mér/okkur.
Maístjarnan mín ákvað að kíkja í skólann í dag, verður í ca klukkutíma og það er ofsalega gott fyrir hana að komast aðeins út á meðal aðra en hérna á heimilinu. Það var erfitt fyrir hana. En núna þurfum við að fara byggja hana upp hægt og rólega (aftur og aftur á byrjendarreit) og það er SKÍTT að þurfa alltaf að byrja uppá nýtt.
Blómarósin mín á ótrúlega erfitt og það er rosalega erfitt að horfa uppá hana svona óhamingjusama og miklar áhyggjur af systir sinni. Hún er gjörsamlega að horast niður (og ekki má hún við því að borða lítið) því henni er alltaf svo illt í maganum sem eru áhyggjur af systir sinni og 6 ára gamalt barn á ekki að þurfa hafa svona miklar áhyggjur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (43)
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
105 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.9.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 4870654
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar