Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2006

Þolinmæðin borgar sig

Ágætu lesendur þið verðið að vera þolinmóð næstu daga á meðan ég er að átta mig á þessu bloggkerfi og reyna finna rétta útlitið.  Þetta tekur allt sinn tíma, þarf bara að fikra mig áfram. 

Annars hef ég ákveðið að setja inn alltaf nýja könnun vikulega bara fyrir Lindu frænku þar sem hún dýrkar að svara könnunum ehheHlæjandi En þið megið samt vera duglegri að svara henni, bara rúmlega tuttugu manns búin að svara og yfir 300manns sem lesa síðuna það kalla ég nú ekki gott.Gráta

Hey Þórdís Van-skórnir hans Theodórs eru þvílíkt að slá í gegn hér heima, víííí!!  Þurfti að fara í kringluna áðan að kaupa brúðargjöf en nota bene að meðaltali munum við Skari fara aðra hverja helgi í sumar í brúðkaup, geri aðrir betur.  Það var þvílíkt horft á drenginn í flottustu skóm ever og meira að segja stoppuð til að spurja útí þessa skó.  Hjúkkurnar hér á spítalanum eru þvílíkt heillaðar af skónum og spurja endalaust hvar maður kaupir svona litla "vanskó" eheh!!Glottandi  Farið bara í heimsókn til Dísu skvísu þá getiði keypt þá, bara flottastur!!


Taka tvö!!

Ég er samt ekki í jafn miklu bloggstuði og ég var áðan en ætla samt að drita niður nokkrum setninum bara fyrir ykkur.Hlæjandi

Einsog þið sjáið þá er komið kommenta-kerfi sem er virkt annað en hitt sem ég var með, grrrr!!  Endilega verið dugleg að nota það því mér finnst ótrúlega gaman þegar einhver skrifar hjá mér eða alveg jafn gaman og ykkur finnst þegar ég skrifa nýja færslu eða finnst ykkur það ekki gaman?Óákveðinn

Skari ákvað líka að gera sér svona síðu en slóðin hjá honum er
www.oskarorn.bloggar.is svo endilega kíkið við hjá honum en hann mun skrifa um eitthvað annað en fjölskyldumálin frekar eitthvað sem honum mun liggja á hjarta þar að segja pólítík, Silvía Nótt (argh þoli ekki þegar hann byrjar að ræða um hana) og fleira.

Við erum stödd uppá spítala í dag og nótt, Þuríður að fá stóra krabbameinsskammtinn sinn.  Þura tengdó verður hjá henni í nótt, brjálað að gera hjá stórfjölskyldunni og þá er gott að eiga góða að.Hlæjandi Skari er sem sagt að byrja í nýju vinnunni sinni á morgun hjá Styrktarfélaginu og er mjög spenntur að byrja í nýja jobbinu og svo var hann líka orðinn of mikil húsmóðir að hann þurfti að fara komast út á markaðinn og fjölskyldunnar vegna líka.  Theodór að byrja í ungabarnasundi í fyrramálið þannig við mætum beint úr sundinu í fyrramálið uppá spítala.  Frekar spennt!!

Theodór er orðinn doltið mikill mömmukall eftir Londonferðina, sumir ekki glaðir með það.  Dóóhh!! Farinn að gráta á pabba sinn svo Skari er búinn að banna fleiri ferðir sem ég og Theodór förum bara ein ehehe en síðan hvenær fór Skari að ráða ég bara spyr ehe??Óákveðinn

Ég finn hvað ég varð endurnærð eftir ferðina, æjhi bara að breyta um umhverfi og gera eitthvað annað en ég var vön að gera.  Bara yndislegt!!  Maður þarf á svona að halda stöku sinnum ekkert endilega að fara til London eheh þótt það hefði verið yndislegast knús til Þórdísar en og aftur að nenna fá okkur eheKoss. Næst fer ég með Skara eitthvað og jú Theodóri fer ekki langt án litla mömmukallsins.

Æjhi nenni ekki að skrifa meira ef þessi færsla fer til einskis en endilega verið dugleg að kommenta þá verð ég duglegri að skrifaBrosandi

Farin að horfa á Granna!!

Arghhh!!!

Byrjar ekki vel, var búin að skrifa þvílíkt langa færslu og búmm hún hvarf.  Nú er ég alveg snar og nenni ekki að byrja á nýrri allavega ekki alveg straxGráta  Ég lofa samt að reyna gera hana aftur í dag.
Farin í fýlu!!

Velkomin á nýju heimasíðuna

Velkomin á nýju síðuna mína.  Ástæðan fyrir þessari nýju síðu er sú að vegna fjölda áskorana ákváðum við að reyna að finna eitthvað hentugt form þar sem hægt væri að setja komment við hverja færslu.  Oddný systir setti svo upp síðu á þessu kerfi og leist okkur ágætlega á.  Vonandi mun fólk átta sig fljótlega á þessari nýju síðu en gömlu síðunni okkar (komdu fagnandi) verður eytt út í sumar og þá mun þessi síða taka endanlega við.  En frá og með deginum í dag verða engar nýjar færslur þar inni.

Kveðja
Áslaug og Óskar.


Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband