Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2012

Snillingarnir mínir...

580336_469138329787612_1588409177_n.jpg

 

 

 

 

 

 

 


Snillingarnir mínir skelltu sér í  myndatökur til Bonna um helgina og hérna er ein góð af þeim - endalaust flott!
577094_10151094674524611_786671842_n.jpg

 

 

 

 

 

 

 









Sjarmatröllið mitt hefur alltaf haft mikinn áhuga á gítar og langað lengi að læra á hann þrátt fyrir að verða bara fjagra ára gamall en draumurinn hans rættist í dag en þá fór hann í sinn fyrsta gítartíma hjá Þráni í Skálmöld og fílaði það í tætlur.  Fékk sína fyrstu gítarnögl og svo næst á dagsskrá er kassagítarinn.  Verður gaman að fylgjast með honum í gítarkennslunni.  Stefnan er tekin á að spila í útskrift sinn á leikskólanum eftir tvö árWink.

Maístjarnan mín er búin að eiga tvo krampadaga á aðeins fimm dögum sem er að sjálfsögðu ekki gott en hún er búin að vera fljót að jafna sig.  Alltaf jafn erfitt þegar það koma svona dagar hjá henni.

Later.....


Afsakið..

Afsakið að ég skrifaði ekkert hér í gær en það er bara svo mikið að gera að ég gleymdi aðal atriðinu sem var að sjálfsögðu GÓÐAR fréttir sem algjörlega FULLKOMNAÐI septembermánuð.  Ég trúi því að þetta sé orðið gott af kvölum hjá Maístjörnunni minni og nú fer allt uppá við hjá henni (okkur).  En það er en meiri minnkun í æxlinu og líka blöðrunum sem eru þarna og læknarnir vita ekkert hvað eru sem er bara ennþá betra. 

Stutt í dag þar sem konan hefur engan tíma í að skrifa hérna vegna anna sem er bara gaman.

Núna getum við farið að halda jólin og andað léttar næstu fjóra mánuði.Tounge


Dagurinn í dag....

Maístjarnan mín fór í rannsóknirnar sínar í dag en niðurstöðurnar fáum við á morgun en hérna eru nokkrar myndir frá deginum:
420854_10151083586999611_1734694957_n.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Verið að setja upp legginn hjá henni og það heyrist auðvidað ekkert í henni - sú allra duglegasta sem ég þekki.
247647_4475831304110_31491369_n.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 


Ný vöknuð eftir svæfinguna - ekki sátt með mömmu sína að hafa gleymt samlokunni sinni með hangikjöti og salati ásamt kókómjólkinni en verð ég oftast að vera tilbúin með það þegar ég kem og hitti hana á vöknun en klikkaði í þetta skipti og bauð henni uppá hamborgara og franskar í staðin se hún var alls ekki ósátt með.
404608_4475669780072_174336081_n.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 


Á meðan Maístjarnan mín var í rannsóknum sínum voru þessi tvö að dunda sér uppá leikstofunni að mála á gifs - þeim leiðist aldrei þar enda flottustu leikskólakonurnar að vinna þar.
561667_4475724781447_214224718_n.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 




Oliver trúður kemur stundum á þriðjudögum til að skemmta krökkunum sem eru á spítalanum en komst ekki í dag svo Blómarósin mín fór bara í gervi hans í staðin til að skemmta sér, bróðir sínum og leikskólakonunum.

Ég trúi því að það koma góðar fréttir á morgun - dagurinn í dag gekk rosalega vel þrátt fyrir smá fýlu útí mömmu sína að hafa gleymt því mikilvægasta.Blush Kemur ekki fyrir aftur.


Bæklingurinn kominn út...

Þá er kominn út kjúklingabæklingur "eftir mig" en það hefði átt að dreifa honum á flest heimili í gær en ef þú fékkst hann ekki þá er ekkert mál að senda þér hann gegn póstburða/umslagsgjaldinu eða 200kr.  Endilega sendu á mig póst á aslaug@vefeldhus.is ef þú vilt fá eitt stk en bæklingurinn sjálfur er að sjálfsögðu ókeypis.  Ég var líka að opna heimasíðu www.vefeldhus.is þar mun ég deila uppskriftum sem við fjölskyldan gerum en markmiðið mitt er að birta nýja uppskrift vikulega en ég er svo heppin að ég fæ allan kjúkling hjá Holta kjúklingum þannig þá er auðveldara fyrir mig að gleðja ykkur.  Endilega kíkið á síðuna og farið að elda kjúklinga.Wink

Annars styttist í rannsóknir Maístjörnu minnar eða á þriðjudaginn og svo væntanlega á miðvikudeginum fáum við fund með læknum okkar og fáum að vita niðurstöðurnar.  Maginn er að sjálfsögðu kominn á hvolf en ég er svo heppin að geta gleymt mér síðustu vikur útaf bæklingnum en spenningurinn er búinn að vera mikill.

Eigið góða helgi - það verður að sjálfsögðu kjúklingur matreiddur um helgina og svo er bara partý kvöld hjá okkur krökkunum í kvöld.


Draumar rætast svo sannarlega...

Hefuru áhuga að matreiða kjúklingarétti þá kemur þessi bæklingur út á fimmtudagsmorgun "kjúklingaréttir að hætti Áslaugar - fer í aldreifingu svo þið ættuð ekki að missa af honum:
381267_10151074777854611_673660468_n.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Holta kjúklingar eru að gefa hann út fyrir mig - allir sem tóku þátt í hönnunni á honum gáfu vinnuna sína og á móti fær Maístjarnan mín veglegan styrk sem mun hjálpa henni að halda áfram að byggja sig upp t.d. og fyrir hennar framtíð.  Ég er endalaust þakklát fyrir fólkið í kringum mig sem er tilbúið að láta mína drauma rætast svo Maístjörnu draumar minnar rætast líka. 

Á fimmtudaginn mun ég líka opna heimasíðu tengd áhugamálinu mínu sem eru kjúklingaréttir, ég elda alltaf nýja kjúklingarétti í hverri viku fyrir fjölskylduna og birti síðan uppskriftirnar á þessari síðu en ég hef verið með hingað til verið með síðu á feisinu https://www.facebook.com/pages/F%C3%B6studags-kj%C3%BAklingar%C3%A9ttir-%C3%81slaugar/132713156806763 - endilega kíkið á þetta en slóðin á heimasíðunni kemur síðar.

Njótið!!


Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband