10.4.2007 | 09:39
Yndislegir páskar
Við áttum yndislega páska, átum á okkur gat, ég held að ég hafi aldrei í lífinu borðað jafn mikið og þessa páska. Oh mæ god!! Það var æðislegt að komast í sveitina til að gera ekki neitt, bara borða, fara í pottinn, út að leika og svo lengi mætti telja. Þetta var æðisleg hleðsla og gott að geta sofið svona mikið einsog við gerðum þessa páska, æði gæði!!
Theodór minni Ingi er þvílíkt farin að blaðra, uppáhalds orðið hans er "gigga" sem þýðir "Vigga" ehe og svo er hann farinn að herma þvílíkt eftir manni þar að segja ef ég segi að honum að segja eitthvað þá gerir hann það sem er æðislega gaman að fylgjast með því hann verður svo glaður þegar hann segir það sem ég segi honum að segja (úff doltið mörg "segja" í þessu hehe) og svo klappar hann á fullu fyrir sér. Yndislegastur!!
Hann er samt alltof mikill mömmukall, dæssúss!! Ég má ekki hreyfa mig þá tryllist hann en svo þegar ég er ekki á staðnum þá er alltíkei en um leið og móðirinn birtist slítur hann sig ekki frá henni, kanski orðið einum of. Hann er samt alltaf jafn yndislegur þessi drengur sem er farinn að þroskast svona líka mikið bara á nokkrum dögum.
Annars líður öllum vel hérna á heimilinu, Þuríður mín hafði þvílíka orku í að leika sér alla helgina hvort sem er það var inni, úti eða í pottinum sem hún elskar útaf lífinu og ótrúlegt hvað hún gat haldið sér vakandi lengi á kvöldin. Bara best!!
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
343 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Takk fyrir helgina
P.s. það er ekkert verið að óska sumum til hamingju með daginn
Oddný sys (IP-tala skráð) 10.4.2007 kl. 10:25
Ég þekki ykkur ekkert en hef fylgst með skrifum þínum síðan að Þuríður Arna veiktist og maður er alltaf með hugann hjá ykkur og ég segi eins og svo margir aðrir hafa sagt að þið hafið kennt okkur hinum að læra að meta það að eiga heilbrigð börn. Það er eins og að fá vítamínsprautu að fara inn á síðuna hjá ykkur þessa dagana það er svo æðislegt að sjá hvað hún Þuríður er hress og greinilegt að ykkur líður betur líka. Ég trúi á kraftaverkin og þau gerast! En það sem ég held að sé bara best þegar maður veit ekki alveg með framtíðina er að gera sem mest úr deginum í dag og njóta hans í botn eins og þið hafið verið að gera
Takk fyrir að leyfa okkur að fylgjast með baráttu ykkar
kveðja
Margrét
Margrét (IP-tala skráð) 10.4.2007 kl. 10:33
Til hamingju með daginn elsku Sammi okkar
Áslaug og co (IP-tala skráð) 10.4.2007 kl. 10:35
Mikið er gott að þið áttuð yndislegan tíma, vonandi verður það sem lengst og Þuríður ykkar svona frísk og dugleg. Bestu kveðjur að norðan
kona að norðan (IP-tala skráð) 10.4.2007 kl. 12:55
gaman að heyra hvað var gaman hjá ykkur :)
Þórunn Eva , 10.4.2007 kl. 14:13
Sæl ágæta fjölskylda
Les um ykkur flesta daga og gleðst mjög yfir því hvað hún Þuríður er frísk. Bið Guð um að svo verði áfram. Gott að þið áttuð góða páska. Kveðja Fríða ókunnug
Fríða ókunnug (IP-tala skráð) 10.4.2007 kl. 16:11
Gaman ad fylgjast med hvad hetjan ykkar er hress, alveg frabært! Erfid vika framundan enn midad vid hvernig hun er thessa dagana er god astæda til bjartsyni
Brynja Bjørk Birgisdottir (IP-tala skráð) 10.4.2007 kl. 17:06
Gleðilega páska (þó seint sé) og yndislegt að heyra hvað allir áttu góða daga. Frábært. Ég trúi á kraftaverkin og hvet alla til að kveikja á kertum fyrir Þuríði Örnu og alla fjölskylduna.
Bestu kveðjur, Stella A.
Stella A. (IP-tala skráð) 10.4.2007 kl. 18:29
Kæra fjölskylda.
Frábært hvað allt gengur vel og ykkur líður vel, það er fyrir öllu. Bara æðislegt hvað gengur vel með Þuríði. En er það ekki batamerki að hún skuli geta hangið uppi á kvöldin. Vona svo innilega að fallega kraftaverkið hennar Þuríðar sé nú að fljúga inn í hennar faðm og það er náttúrulega draumur í dós ef svo er. Óska ykkur alls hins besta fallega fjölskylda og þið eruð að mínum mati fallegar og hugrakkar hetjur. Bestu kveðjur frá Siggu Ásgeirsd.
Sigga Ásgeirsd. (IP-tala skráð) 10.4.2007 kl. 18:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.