5.12.2007 | 12:20
Svör frá Boston
Þá erum við komin með svörin frá Boston og þau voru bara einsog við héldum en samt er það alltaf jafn leiðinlegt því maður að sjálfsögðu vonar að maður fái önnur svör og heldur fast í það kraftaverk. Skurðlæknirinn okkar fór á fund með sínu liði og það er ekki hægt að gera aðra aðgerð því æxlið er svo innarlega og aldrei hægt að taka það allt og verður væntanleg ALDREI hægt. Þeir líka tala um því henni líður svo "vel" í dag og þá vilja þeir heldur ekkert gera og þetta er nú eiginlega síðasta úrræði fyrir Þuríði mína þessi meðferð sem hún er í dag og við verðum bara að vona að það geri kraftaverk. Það hefur nú orðið eitt kraftaverk að hún sé hjá okkur í dag og við trúum því að þau verða fleiri ég man líka svo vel fyrirsögnina á forsíðuviðtalinu við okkur um Þuríði mína við DV síðustu jól en hún var svona "vonast eftir kraftaverki um jólin" og svei mér þá að það rættist. Það er einmitt það sem mér finnst vanta í þessu þjóðfélagi, það er mikið rétt við veikt fólk en mér finnst umræða um kraftaverkin vanta. Við þurfum að heyra um kraftaverkin, það eru margir einstaklingar sem er ekki hugað líf en svo gerast kraftaverkin einsog með Þuríði mína. Ég hefði ekkert á móti því að heyra um einhver kraftaverk.
Allavega við trúum og treystum þessi skurðlækni í Boston ef hann treystir sér ekki þarna inn aftur þá vitum við það að það er ekki hægt en svo eru margir læknar þarna útí heimi tilbúnir að gera aðgerð á henni en vita ekkert hvernig afleiðingarnar verða og kanski alveg nákvæmlega sama. Bara ef ein aðgerð tekst þá fá þeir mikla umfjöllun en leiðinlegt fyrir einstaklinginn ef það tókst ekki og við viljum ekki taka neina áhættu með hetjuna okkar þó einhver sérfræðingur útí heimi segist treysta sér þarna inn en vita ekkert hvað mun ske eftir það. Nei takk!!
Þuríður mín er ennþá mjög slöpp, hún var gjörsamlega útur heiminum í gær. Svaf allan daginn og kvartaði við mig hvað hún væri þreytt og mikill hiti. Hún var hitalaus í morgun og ég held að hún sé að hressast eða vona það allavega, borðaði í morgun sem er byrjunin og drekkur vel af vatni. Held að hún ætli að rífa sig uppúr þessu svo hún komist að hitta sveinka eftir helgi og kíkt í nokkur tæki í jólatívolíinu, ohh mæ god hvað ég er orðin spennt og þær vita ekkert. Víííí!!
Það var aðventukaffi í leikskólanum í morgun og mér fannst dáltið leiðinlegt að hetjan mín missti af því en að sjálfsögðu fór ég með hinum tveim og fékk ofsalega góðar bollur sem þau bökuðu og heitt kakó. Ætlaði með þau öll í jólaklippinguna á eftir því miður verður Þuríður mín að fá sína seinna því stúlkan fer ekki út næstu daga en Oddný mín bíður spennt eftir sinni klippingu en endurtekur við mig að hún sé að safna hári þannig það megi ekki klippa mikið eheh. Hún tók nú uppá því fyrir í haust að klippa á sig topp en móðirin var búin að láta hana safna í ár þannig loksins náðist allt hárið í tagl en ég veit að hún sá ofsalega eftir því enda þolir hún ekki að hafa toppinn fyrir augunum.
Ætli ég reyni ekki að "troða" smá mat í sjúklinginn minn sem er að horfa á uppáhaldin sín Skoppu og Skrítlu en hún er búin að horfa á þær 102x og ég keypti handa þeim systkinum nýjasta jólalatabæjardiskinn sem hún er búin að horfa á 198x í veikindunum eheh. Well sjúklingurinn farin að heimta soðin egg og þá fær hún soðin egg.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
343 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
æji hún er bara sætust "soðin egg" hehehehe vonandi er það rétt að hún sé að rífa sig upp úr þessum veikindum núna.... sveinki og jóla tívolí getur ekki verið betra... :)
hafið það gott og knús og koss á ykkur....
Þórunn Eva , 5.12.2007 kl. 12:50
Það er alltaf gott að fá svör og vita stöðuna. Auðvitað hefði verið miklu betra að fá það svar að hægt væri að taka æxlið. En þið treystið þessum læknum og teljið víst að þetta sé heiðarlegt svar. Gott að hún er að hressast þessi elska. Æxlið hefur minnkað og það heldur því áfram. Það er svo mikið kraftaverk. Og kraftaverkin eru að gerast á hverjum degi. Ég er alveg sammála þér að okkur vantar kraftaverkasögur og fullt af þeim. Það sem við þurfum almest er að trúa því að kraftaverkin geris og þá gerast þau. Guð blessi ykkur öll Fríða
Hólmfríður Bjarnadóttir, 5.12.2007 kl. 13:34
ÚFF, ÞETTA VAR LEIÐINLEG FRÉTT FRÁ BOSTON en hver veit hvað þessi ofurkona gerir, hún er sannarlega mikið kraftaverk krúttan. Bið fyrir ykkur Áslaug mín
Skagakveðja
Guðrún Jóhannesdóttir, 5.12.2007 kl. 17:46
Elsku Áslaug....og þið öll.Leiðinlegt að fréttirnar voru ekki betri en þetta,en ég geri mitt besta til að senda Þuríði bataorku og bið guð að leyfa henni að hressast svo hún komist með í tívoli og geti notið þess að vera þarna úti í jólastemningunni.Ég vonast til þess að allir taki sig saman og kveiki á kerti á kertasíðunni hennar og að við leggjumst á eitt að biðja fyrir hetjunni...kærleikskveðjur og knús
Björk töffari (IP-tala skráð) 5.12.2007 kl. 18:34
Æji, var að vonast til að þið væruð búin að fá kraftaverka fréttir frá Boston. Þið verðið bara að halda í vonina um að Þuríðar ykkar verði sú sem getur seinna meir verið kraftaverkasagan fyrir hina sem verða að berjast við fj... krabbann. Þá verður hún kannski orðinn frægur skurðlæknir í Boston.....hver veit.
Allavega vona ég að hún fari að hressast stelpan svo hún komist með til Köben.
Með kveðju frá Þórshöfn - Sóley
Sóley Ind. (IP-tala skráð) 5.12.2007 kl. 18:48
Gunnar Helgi Eysteinsson, 5.12.2007 kl. 19:16
Áfram hetjur.Kveðja
Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 5.12.2007 kl. 23:30
henni tekst að rífa sig upp úr þessu , æ hvað ég væri til að vera fluga á vegg þegar þið segið þeim frá ferðinni , það verður gaman hjá ykkur
batakveðjur til prinsessunar
kveðja
Dagrún (IP-tala skráð) 6.12.2007 kl. 00:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.