7.12.2007 | 09:21
Fyrsta hitalausa nóttin :)
Nóttin í nótt hefur verið sú besta hingað til eða í viku. Þuríður mín svaf uppí hjá okkur í nótt einsog síðustu nætur bara svo maður geti fylgst með henni, hún svaf ofsalega vel í nótt sem er sú fyrsta ásamt engum hita. Very nice!! Aftur á móti svaf ég ekkert því ég var alltaf að ath með hana, hvort það væri ekki alltíkei, var hún heit, þarf ég að pústa hana, gefa henni vatn að drekka,gefa stíl og þess háttar en ekkert þurfti ég að gera nema liggja sem fastast uppað henni. En þetta var allt tilbúið á rúmstokknum fyrir hana.
Hetjan mín er vakandi núna og búin að vera vakandi í næstum tvo tíma sem er eiginlega met en annars sefur hún nánast allan daginn því hún er svo slöpp. Mér finnst kanski heldur ekkert skrýtið að hún sé svona slöpp, hún er ekkert búin að borða í viku fyrirutan kjötbollurnar í fyrradag. Það er alveg sama hvað ég bíð henni ís, nammi, kex, jógúrt en ekkert vill hún því verr og miður svo er hún líka komin á enn ein lyfin. Núna eru það sýklalyf til að koma í veg fyrir lungabólgu og svo fær hún á fullu púst (astmalyfin sín) þannig það er mikið lagt á þennan litla kropp sem er að léttast og léttast. Aaargghhh!! Vonandi er hún að rífa sig uppúr þessu, krossa alla putta og tær.
Jeij ég fékk að setja eitthvað annað í tækið en Latabæ eða Skoppu og Skrítlu en það er ágætt að hvíla sig aðeins á þeim, púúúffhhh!! En ég og Oddný Erla mín (múttan mín líka) kíktum í kringluna í gærkveldi en mig vantar einhverjar tuskur á mig en auðvidað finnur maður aldrei neitt þegar manni sárvantar eitthvað, þoli ekki að skoða á mig föt því ég veit að ég finn hvorteðer aldrei neitt á mig. Bwaahh!! Við kíktum við í Skífunni keyptum eina gjöf handa hetjunni minni en það var eiginlega fyrir mig eheh því mig vantaði eitthvað nýtt í dvd-spilarann þannig við keyptum handa henni þriðja uppáhaldið Simpson sem hún er að horfa á núna. (elska þessa fígúru)
Þuríður mín er ennþá mjög slöpp en er hitalaus allavega í augnablikinu og í nótt og þá líður manni strax betur annars tekur þetta ofsalega á taugarnar og dregur mann mikið niður. Um leið og hún verður eitthvað slöpp slappast maður sjálfur niður, hrikalega erfitt.
Er búin að fá þrjár einkunnir af fjórum, trallalala!! Segi ykkur þær þegar sú fjórða kemur í höfn, vííí!! Ég veit allavega núna hvar börnin mín fá þessar gáfur sem þau hafa, ég hef oft verið að reyna finna það út og farið langt aftur í ættir en aldrei fundið neinn svona gáfaðan einsog þau en núna hef ég loksins fundið manneskjuna, MIG.
Ég verð að segja ykkur frá smá samtali sem ég átti við Oddnýju Erlu mína í fyrradag:
Oddný: mamma hvenær ætlar þú að fá litla stelpu?
Ég: ha! Litla stelpu, hvað meinaru?
Oddný: fá svona stóra kúlu einsog Ólöf Inga. (sem er mágkona mín og á að eiga núna þann 14.des)
Ég: ég veit það ekki, einhverntíman seinna.
Oddný: kanski núna um jólin?
Ég: nei seinna
Oddný: en hvað eigum við að gera við Theodór þegar við fáum litlu stelpuna?
Ég: eheh hvað eigum við að gera við hann, nú hann verður áfram hjá okkur.
Oddný: ok, ég ætla þá að passa hana svo hann meiði hana ekki og hún má sko leika sér í dótinu mínu.
Þar var samtalinu lokið, þvílíkar pælingar hjá þriggja ára gömlu barni, hvernig ætli hún verði þegar hún verði eldri. Ef ég verð ö-a komin á endanum með tíu kríli á heimilið ehe.
Við Skari erum hætt við að fara í Bláa lónið á morgun, viljum ekki fara frá hetjunni okkar svona veikri en við gerum það bara seinna. Okkar tími mun koma. En ætlum samt að fara í jólahlaðborðið sem ég er búin að bíða eftir síðan ég pantaði það í september, slurp slurp!! Þegar ég fer í jólahlaðborð þá get ég bara borðað forréttinn, ég elska hann. Ég þarf ekki aðalréttinn né eftirréttinn, hitt dugar mér og borðað mikið af því. Kanski ég sleppi bara öllu nema forréttinum eheh, mmmmm! Ég get alltaf fengið læri, ís eða eitthvað en ekki hitt. Oh mæ god hvað ég hlakka til. En okkur er svo boðið á tónleikana hans Bjögga á sunnudagskvöldið þannig það er alveg mikið að gera og maður verður víst að reyna velja og hafna sérstaklega þegar staðan er svona á heimilinu. En einsog einn bloggvinur minn sagði í færslunni hérna fyrir neðan:
Ég áttaði mig á því MÉR TIL SKELFINGAR að ég fór að hugsa. Hvernig getur HÚN farið út að skemmta sér og barnið hennar svona veikt. Ég varð svo reið útí sjálfa mig fyrir þessa hugsun og verð að játa það að gamla hugarfarið er lífseigt og ég verð virkilega að passa mig.
Mér fannst ofsalega gott að hún viðurkenndi hvernig hún hugsaði fyrst en breytti svo þeim hætti en það er samt þessi hugsunarháttu hjá fólki sem fer ofsalega í mig því við foreldrar veikra barna getum ekki hætt að lifa lífinu því barnið okkar er veikt. Við þurfum alveg jafn mikið á því að halda að skreppa út og gera eitthvað fyrir okkur, hvernig eigum við að geta sinnt veika einstaklingnum ef við getum ekki sinnt okkur? Það er mikið af skilnuðum hjá fólki í okkar stöðu og ég er alltaf að heyra um fleiri og fleiri því verr og miður en ég skil þessa foreldra líka sem eru að skilja, það eru ekki allir sem höndla þetta og auðvidað verður maður sjálfur hræddur um að lenda í þessari stöðu en þá verður maður á móti að vera dugleg að gera eitthvað saman sem fólk er ekki nógu duglegt við. Við erum hrædd við að fara frá veika barninu en einsog við Skari erum við ofsalega heppin með fólkið í kringum okkur sem er alltaf tilbúið að koma og aðstoða okkur með pössun en þá er maður samt ekki nógu dugleg að nýta það því verr og miður því manni líður illa að fara frá sérstaklega Þuríði minni sem þarf á okkur að halda en verður samt ekkert meint af að fá ömmu, afa eða Lindu frænku í heimsókn. En svo aftur á móti fer það líka ofsalega í mig þegar fólk er að tauta við mig, aldrei förum við neitt (eiga heilbrigð börn) en þið eruð alltaf að fá pössun sem við gerum kanski einu sinni í mánuði (mesta lagi) reyndar aðeins meira í des og skammast mín ekkert fyrir það. Við þurfum á þessu að halda. Takk fyrir. Samt ekkert beint til þín Fríða mín, fannst mjög gott það sem þú skrifaðir og viðurkenndir hvernig þú hugsaðir.
Jæja dúllan mín sofnuð og þetta orðin alltof lööööng færsla, kerran hennar Þuríðar minnar reddí. Takk hálpartækjastofnun eða kanski réttara sagt konan sem sá um þetta fyrir okkur, góð þjónusta.
Eigið góða helgi, ég ætla allavega að reyna eiga góða helgi og skemmta mér að borða forréttinn á norddicca.
Ciao
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
343 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Auðvitað þurfið þið foreldrarnir að eiga ykkar stundir saman. Þið þurfið að safna kröftum, upplifa hluti og ekki setja lífið á pásu.
Og ég er viss um að ef þið upplifið góðar stundir saman fjarri heimili og börnum þá skilar það sér margfallt til elsku barnanna ykkar.
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 7.12.2007 kl. 09:40
Kæra fjölskylda, þið eruð frábær og eigið allt það besta skilið. Njótið helgarinnar og vonandi komist þið í Tívolíið líka það væri toppurinn fyrir ykkur fjölskyldunna. Haltu áfram að vera svona ótrúleg og maður á ekki til orð yfir það hvað þú ert jákvæð þó svo að það gangi á ýmsu hjá ykkur. Batakveðjur úr Hafnarfirði til Þuríðar og ég veit að hún á eftir að hrista þetta af sér og njóta jólanna hress og kát.
Kveja Ella (ókunnug )
Ella (IP-tala skráð) 7.12.2007 kl. 09:50
Langar að senda ykkur eitt stórt knús :)
Lilja Kópavogi (IP-tala skráð) 7.12.2007 kl. 09:52
Guð min góður, ég trúi ekki að einhver hafi sagt þetta. Auðvita þarft þú hvíld eins og aðrir foreldrar. Átt hana skilið og börnin þín eiga það skilið að þú hvílir þig öðru hvoru.
Margir foreldrar langveikra barna fá aðstöðu fyrir börnin sín á sambýli, til að geta hvílt sig og sinnt þeim betur. Það er ekkert að því, en auðvita eru þeir uppfullir af sektarkennd. En að vaka yfir og sinna veiku barni alltaf reynir á og ég ætla ekki einu sinni að reyna setja mig í spor þeirra sem þurfa að vaka yfir sínu eigin barni. Þú ert hetja og hetjur þurfa stundum að taka sér tíma fyrir sjálfan sig til að safna kröftum aftur.
Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 7.12.2007 kl. 09:53
Kristín (IP-tala skráð) 7.12.2007 kl. 11:01
Elsku Áslaug...þú ert bara æðisleg og þið öll.Mér finnst þið taka svo hárrétt á málunum og eins og þú segir,hvernig eigið þið að geta sinnt börnunum ef þið sinnið ekki ykkur???Alveg laukrétt.En ég veit að Þuríður fallega nær sér upp úr þessu og kemst í tívoli,engin spurning.Við biðjum fyrir henni og kveikjum á kertum og kærleiksríkar hugsanir sendi ég henni oft á dag.Eigið þið bara yndislega helgi og skemmtið ykkur bæði í hlaðborðinu og á tónleikunum,þið eigið það svo mikið skilið.Takk Áslaug mín fyrir að leyfa mér alltaf að fylgjast með ykkur,það hefur hjálpað mér meira en þig grunar..knús knús
Björk töffari (IP-tala skráð) 7.12.2007 kl. 11:08
Ég veit að maður hugsar öðruvísi þegar maður hefur lent í svona alvarlegum veikindum sjálfur, ég heyrði hinsvegar utan af mér hvað ég var vond móðir að senda veika einstaklinginn frá mér í einar 3 vikur í sveit! Hún var komin yfir sín veikindi en glímdi við annarskonar veikindi í staðin sem geta tekið á taugarnar.
Þessi pása var svo kærkomin að maður trúði því varla sjálfur og mér sárnaði ótrúlega mikið við það að heyra hvað var sagt um mig út í bæ.
Eftir þetta hefur stelpan mín farið í sveit árleg í 2-4 vikur, bæði til að hvíla hana frá okkur og okkur frá henni.
Þið eigið 2 önnur börn sem þið þurfið að sinna líka og það gerið þið ekki nema að hvíla ykkur frá börnunum öðru hvoru svo ég sé sko ekkert að því að senda börnin í pössun öðru hvoru.
Njótið þess að vera til.
Helga Linnet, 7.12.2007 kl. 11:19
Hafið það gott á nordica,vonandi njótið þið ykkar vel.
Það er nú ekkert skrítið að þið fáið kannski "oftar" pössun. Þið eruð 24/7 vakandi yfir barninu ykkar og svo að vera með 2 önnur. Ef fólk gerir sér ekki grein fyrir því álagi þá er bara ekki í lagi með það.Skil vel að ættingjar vilji passa fyrir ykkur og leyfa ykkur að komast aðeins frá,annað væri óeðlilegt segi ég nú bara.
Held að fólk segi svona hluti meira af hugsanaleysi,og átti sig ekki alveg á hvað það er að segja. Veit ekki betur ef fólk "þarf" að vera heima með börnunum sínum í einhverri pest og veikindum í nokkra daga þá er það yfirleitt alveg komið með nóg!!
Vonandi komist þið til Köben en ef ekki þá bara kíkið þið seinna.
Og til lukku Áslaug með þessar rosa einkunnir sem þú ert að fá.
kv frá einni sem fylgist alltaf með á hverjum degi.
Jóhanna Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 7.12.2007 kl. 12:17
Verði þér og þínum að góðu.Kveðja
Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 7.12.2007 kl. 13:04
Að sjálfsögðu getur maður ekki hugsað um aðra nema passa upp á sjálfan sig fyrst. Ég held, eins og Jóhanna sagði, fólk segi svona í hugsunarleysi og svo kannski líka þarf það mikið á því að halda að komast í frí frá sínum börnum en er ekki að koma því í verk. Mér finnst þú (og þið) bara taka mjög vel og skynsamlega á þessari erfiðu aðstöðu sem þið eruð í. Njótið jólahlaðborðsins (er orðin rosalega forvitin um þennan forrétt!!) og tónleikanna og eins og aðrir lesendur þá bið ég fyrir því að þið komist í ferðina ykkar til Köben og fáið að njóta hennar.
Óla Maja (IP-tala skráð) 7.12.2007 kl. 13:12
Hafið það sem allra best um helgin. Farið afvelta út af jólahlaðborðinu og njótiði samverunar.
Bestu kveðjur og von um skjótan bata Magga
Magga (IP-tala skráð) 7.12.2007 kl. 13:41
Sæl og blessuð,
skemmtið ykkar sem best þið eigið það skilið.Góða helgi og knús til ykkar öll.Kær kveðja Dee
Dolores (IP-tala skráð) 7.12.2007 kl. 14:52
Komiði sæl kæra fjölskylda..í svolítið langan tíma hef ég lesið bloggið þitt og fylgst með hvernig litla hetjan ykkar hefur það..verð að segja að það er alveg frábært hvernig þið takið á þessu "verkefni" sem æðri völd hafi látið í hendur ykkar..standið ykkur rosalega vel;)
ég hugsa oft til ykkar þegar maður er að "væla" yfir einhverju smotteríi..og krosslegg bæði fingur og tær með von um góða heilsu hjá hetjunni ykkar og að þið fjölskyldan hafið það sem allra best og njótið alls þess tíma sem þið eigið saman..(",)
ég segi alltaf, ef maður hugsar ekki um sig fyrst þá getur maður ekki hugsað um annan...hljómar kannski hálf sjálfselskt en svona er það nú bara samt..þannig að þið hjúin eigið að sjálfsögðu að nýta þann tíma sem gefst til að gera eitthvað saman;)
Vona að allt muni ganga sem best hjá ykkur..með bestu kveðju og góðum hugsunum...ein frá Akureyri=)
Ein frá Akureyri (IP-tala skráð) 7.12.2007 kl. 19:09
'Aslaug mín Hún Þuríður er örugglega með þessa pest sem gengur hér á suðvesturhorninu, þetta leggst bara þyngra á hana hún fer örugglega að lagast og þið farið sæl og glöð til Köben.
ókunnug frá Eyrarbakka (IP-tala skráð) 7.12.2007 kl. 20:53
Njóttu vel frábæra mamma.
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 7.12.2007 kl. 21:48
Sæl. Mig langar að benda þér á ágæta bók sem heitir "Setjið súrefnisgrímuna fyrst á yður" eftir Andés Ragnarsson. Hún lýsir vel hvað fólk þarf að hugsa vel um sig til að geta hjálpað öðrum. Mæli með henni. Kveðja, Anna
Anna (IP-tala skráð) 7.12.2007 kl. 22:56
Mikið er ég glöð að heyra að hitinn er að fara úr henni Þuríði okkar. Hún er búin að vera svo mikið lasin þessa síðustu daga. Ég er svosem ekki hissa þó listin sé ekki mikil, en hún verður bara að koma sem allra fyrst svo prinsessan fá orkuna sína aftur. Þú er svei mér að gefa okkur það í skyn að þú hafir fengið "gott" á prófunum þínum. Frábært frábært. Ég er aðeins að koma til nútímans því fyrsta hugsunin þegar ég sá að þið eruð hætt við Blá lónið var; æi það var verst.
Kæra Áslaug, þakka þér fyrir hlý orð til mín. Skrifin þín gera það að verkum að ég fer aðeina að opna meira á mig sjálfa og ég varð bara svo örg út í sjálfa mig að ég vildi losa mig við það.
Bið Guð að gefa ykkur öllum góða helgi og skemmtið ykkur vel Fríða
Hólmfríður Bjarnadóttir, 7.12.2007 kl. 23:37
hæ hæ babe :) hafðu það gott á jólahlaðborðinu sæta...
við erum loks búin að heyra í doktornum hans JS yes... heheheh
hlakka til að heyra í þér sæta mín...
koss og knús
Þórunn Eva , 8.12.2007 kl. 01:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.