15.3.2008 | 16:15
Æjhi ekki aftur
jebbs við Skari ákváðum að skella okkur á Sálina í gærkveldi, það hefði eiginlega verið saga til næsta bæjar ef við hefðum ekki farið ehe. Að við skulum hafa virkilega haldið að við gætum sleppt þessum tónleikum, stupid kid!! Það var hrikalegt stuð, ég var gjörsamlega ónýt í löppunum. Hver fann eiginlega uppá þessum háum hælum? Takk Skúli og Þórunn Eva fyrir frábært kvöld, sé sko ekki eftir því að hafa farið. Þvílík endurnæring að skreppa aðeins svona og tjútta.
Við ætluðum að tjilla bara í dag og njóta þess að slappa af og gera ekki neitt og sækja börnin ekki fyrr en seinni partinn en það varð því miður ekkert úr því, hetjan mín nefnilega komin með 40 stiga hita og við ekki lengi að bruna uppá Skaga þegar við fréttum það. Hún er algjörlega í móki núna, má ekki koma við hana en það versta finnst mér að hún vill ekkert drekka né borða. Hún átti þó bestu vikuna sína síðan ég veit ekki hvenær alla síðustu viku en er aftur orðin mjög slæm. Ömurlegt! Ógeðslega er þetta erfitt. Ætli þetta sé fjórða/fimmta sýkingin sem hún fær á þessu ári, það hafa nefnilega að mig minnir komið þrjár sýkngar í blóðið hjá henni og tvær í hægðirnar og ekkert hægt að gera og á meðan fær hún ekki að vera í krabbameinsmeðferðinni sinni. Hún var farin að hlakka svo til að fá að skreppa í Bónus og velja sér páskaegg (fyrir páskana að sjálfsögðu) sem var búið að lofa henni en að sjálfsögðu ekki hægt. Það er tekið svo margt af henni greyjinu, aldrei hægt að lofa neinu. Hvursu ósanngjarnt getur þetta verið?
Ætla að fara knúsa hetjuna mína verst að ég má ekki gefa henni neitt verkjastillandi fyrr en eftir hálftíma/klukkutíma því henni er svo illt allsstaðar.
- Það er alltaf réttur tími til að gera það sem rétt er -
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
33 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
takk sömuleiðis það var ógó gaman.... verðum að gera eitthvað svona fljótlega aftur..... og takk fyrir matinn hann var svakalega góður....
vonandi hressist skvísan sem allra fyrst... LOVE á ykkur frá okkur....
Þórunn Eva , 15.3.2008 kl. 16:23
Elskuleg hetja rífðu þetta úr þér.Frábært að þið náðuð að skemmta ykkur í gær,plús með þinni ekta vinkonu.Kveðja
Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 15.3.2008 kl. 18:31
Vona að þetta sé stuttveira (stoppi stutt). Sendi henni heilsukveðjur.
Gjörsamlega sammála þér með háu hælana. Var þarna líka og fyrsti klukkutíminn var ok en svo bara halleluja, fæturnir búnir. En rosaflottir tónleikar.
hm (IP-tala skráð) 15.3.2008 kl. 19:16
Ég elska Sálina fjörið sem var alltaf á þessum í den það var bara gaman, ég vildi að ég hefði getað farið þarna í gær.
En óskandi að litlu hetjunni ykkar batni fljott
Guðborg Eyjólfsdóttir, 15.3.2008 kl. 21:42
Meiri háttar að þið hafið skemmt ykkur vel, hvernig má annað vera á Sálinni? Er frík þó á gamals aldri sé
Hins vegar leitt að heyra með litlu snúlluna, vona innilega að þetta sé tilfallandi uppákoma og að hún nái að velja sitt páskaegg. Annars verður hún að fá það sent frá ,,Páskalandi" með tilheyrandi og viðeigandi viðhöfn.
Líði ykkur sem best, baráttukveðjur
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 15.3.2008 kl. 21:49
Ósköp er að vita þetta. Þessi elska búin að vera svo hress og svo komin með hita og allann pakkann. Bið Guð að senda henni bata og það fljótt. Þessu verður að linna. og það sem allra allra fyrst. Fríða
Hólmfríður Bjarnadóttir, 15.3.2008 kl. 21:58
Elsku þið öll
Alltaf þú jafn FRÁBÆR, gaman að tjútta og hafa gaman, þrátt fyrir allt.
En svo Þuríður þín og okkar allra aftur komin í allt of háan hita og ALLIR svekktir yfir því hversu ógeðslega ósanngjarnt þetta er alltsaman.
Sendi kærleik og ljós í húsið.
frá Sólveigu
Sólveig (IP-tala skráð) 15.3.2008 kl. 23:26
Frábært að þið fóruð á Sálina.... þar er alltaf gaman og FRÁBÆRT FJÖR. Skil þig með verki vegna hárra hæla... úff vork vork til þín bara.
Svekkjandi að litla hetjan ykkar skuli aftur vera komin með háan hita. Sendi ykkur hlýjar og góðar kveðjur, Stella A.
Stella (IP-tala skráð) 16.3.2008 kl. 12:48
Elsku Áslaug mín...ekki skemmtilegar fréttir af fallegustu hetjunni minni,en vona að guð verði henni góður og gefi henni heilsuna á ný...en ég sé ég þig þá nokkuð á morgun???Vona það.En það var samt æði að þið gátuð komist aðeins út á tjúttið þrátt fyrir háa hæla...en ég sendi knús á línuna og krossa putta og tær fyrir Þuríði mína...baráttukveðjur
Björk töffari (IP-tala skráð) 16.3.2008 kl. 13:25
Góðan bata!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Eyja (IP-tala skráð) 16.3.2008 kl. 16:31
gott að þið skylduð skemmta ykkur svona vel, verra með skottuna og gullmolann hana Þuríði, vonandi er þetta eitthvað sem stoppar stutt svo að hún komist til að velja sér páskaeggið.
Knús til ykkar, kærleikur og ljós
Guðrún Jóhannesdóttir, 16.3.2008 kl. 17:05
Bara yndislegast að þið skylduð komast á tónleikana og skemmta ykkur vel Bið Guð að snerta við Þuríði litlu að henni batni fljótt.
Kristín (IP-tala skráð) 16.3.2008 kl. 18:07
Ég frétti að það hefði verið dúndurgaman á Sálinni, nokkrir vinir mínir fóru.
Linda litla, 16.3.2008 kl. 21:04
æi leiðinlegt að heyra, en gott að þið gátuð átt smá tíma fyrir ykkur! Vona að þetta lagist sem allra fyrst..
Katrín Ösp (IP-tala skráð) 16.3.2008 kl. 21:54
til ykkar vonadi batnar henni sem fyrst litlu dúlluni
Guðrún unnur þórsdóttir, 16.3.2008 kl. 22:05
til ykkar allra. Vona að Þuríður skjóti þessari flensu ref fyrir rass sem fyrst. Þið eruð öll aðdáunarverð, litla fjölskyldan - líka ömmur og afar.
Bestu kveðjur,
Hanna (fyrrv. Suðurb.laug).
Hanna frænka (IP-tala skráð) 17.3.2008 kl. 00:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.