24.6.2008 | 21:14
Alltof andlaus...
...til að blogga þessa dagana, ligg uppí sófa stjörf af þreytu og get varla pikkað á tölvuna.
By the way ætla samt að reyna pikka niður nokkra punkta fyrir ykkur:
*Þuríður mín ennþá innskrifuð á spítalann
*Vonandi útskriftast hún á morgun
*Ennþá á verkjastillandi vegna mikilla verkja
*Er ekkert að lagast þó hún sé á sterkustu sýklalyfjum sem hún getur fengið
*Læknarnir standa algjörlega á gati
*Erum ennþá að bíða eftir niðurstöðum úr blóðprufum
*Fann fyrstu hreyfinguna hjá bumbubúanum mínum í gærkveldi, aftur í morgun og í kvöld.
*Ég "æsti" mig við eina konu fyrirutan Barnaspítalann á sunnudaginn, kona með fordóma. Ef það er eitthvað sem tengist hetjunni minni þá læt ég í mér heyra og þarna gerði ég það. (meira um það síðar)
*Þreytan of mikil til að blogga meira.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
31 dagur til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Kæra fjölskylda óska þess að heilsa hetjunnar fari að skána og að þið fyllist öll orku. Guð blessi ykkur.
Hulda Magnusdottir (IP-tala skráð) 24.6.2008 kl. 21:42
Kæra Áslaug - góða reyndu að fara vel með þig og láttu ekki fordómakellingar fara í taugarnar þínar - ég skil samt vel að þú gerir það - láttu þær bara heyra það!!!!! Það á enginn með það að tala illa um Þuríði né aðra. Guð gefi ykkur styrk og umvefji ykkur alla daga!
Gaman að heyra um hreyfingarnar !
Ása (ókunnug) (IP-tala skráð) 24.6.2008 kl. 21:46
Hugsa mikið til ykkar elsku Áslaug mín og bið fyrir fallegustu stelpunni sem ég þekki og vona að guð fari að gefa henni betri líðan..bið að heilsa henni og sendi ykkur knús og kærleik
Björk töffari (IP-tala skráð) 24.6.2008 kl. 21:47
vonandi var þessi kona bara fávís ... ég skil þig vel að sýna klærnar, gangi þér og ykkur allt í haginn kv. ókunnug kona sem les stundum
Elín Sigríður Grétarsdóttir, 24.6.2008 kl. 22:00
Elsku Áslaug og öll fjölskyldan ,sendi allar mínar bænir til ykkar ,sérstaklega til BROSdúllunar,með ósk um góðan bata hjá henni sem fyrst.Megi góður GUÐ gefa ykkur styrk ,og vaki og verndi ykkur öll,kærleikskveðjur.Hrönn.
Hrönn (IP-tala skráð) 24.6.2008 kl. 22:10
Elsku Áslaug og fjölskylda.
Það sem ég vildi geta hjálpað ykkur....
Skil þig mæta vel að sýnaklærnar þegar þú verður fyrir áreiti, en ekki hvað?
Öðruvísi fólk verður alltaf á vegi okkar, bilað, sjúkt eða bara illgjarnt, það er allstaðar.
En ég er viss um að allir þínir vinir + bloggvinir standa 100% við bakið á ykkur, AlltAF.
Nú er bara að kveikja á kerti fyrir Þuríði og ykkur og óska þess besta.
Til hamingju með hreyfingarnar, þær eru alltaf svoooo góðar.
Óska ykkur alls hins besta, eins og alltaf og þið eruð í bænum mínum... eins og á hverjum einasta degi.
Knús og kossar frá dk.
Hulla Dan, 24.6.2008 kl. 22:12
Mikið er vont að heyra að Þuríði skuli líða svona illa, það er allt of mikið lagt á þessa litlu hetju. Samt er líka gaman að heyra að bumbubúinn sé farinn að gera vart við sig.
Þú hefðir átt að berja kerlinguna ef hún var að setja út á ykkur Þuríði. Láttu mig bara vita og þú mátt siga mér á hana.
Helga Magnúsdóttir, 24.6.2008 kl. 22:28
Kristín (IP-tala skráð) 24.6.2008 kl. 22:55
Knús til ykkar allra
Guðrún unnur þórsdóttir, 25.6.2008 kl. 00:29
Rosalega ertu sterk og dugleg. Skil að þú sért þreytt og búin andlega. Hugsa sterkt til ykkar og vona að bjartir tímar komi aftur fljótlega.
Emma Vilhjálmsdóttir, 25.6.2008 kl. 01:47
Bið Guð að blessa ykkur öll og að gera Þuríði Örnu heila og hrausta og eitt fyrir bumbubúann
Hólmfríður Bjarnadóttir, 25.6.2008 kl. 01:58
hugsa svo til ykkar kæra fjølskylda,bid gud ad senda ykkur kraft til ad takast á vid thessar thrautir. Mikid innilega vona ég ad their finni útur thessu og geti hjálpad hetjunni ad komast yfir thennan hjallaalveg er nú nóg samt thótt thetta bætist ekki ofaná.
gaman ad heyra ad thú ert farin ad finna hreyfingarthad er alltaf svo sérstakt og ánægjulegt.
Held thad sé í lagi ad láta heyra i sér,sumir eiga thad bara skilid med fáfrædi og fordómum. Gott hjá thér!
knus og krammar til ykkar,hafid thad gott og fardu vel med thig og bumbubúann
María Guðmundsdóttir, 25.6.2008 kl. 04:47
Vid erum alltaf ad mæta fólki sem er í fávissu sinni Ótolandi...Skil vel ad tú hafir látid í tér heyra ...Engin spurning.Tad er tingra en tárum taki ad vita af Turídi litlu svona veikri núna,Elsku snúllan.Til hamingju med ad bumbubúinn er farinn ad láta ljós sitt skína...tad er alltaf eithvad ljós í farveginum sem madur getur gladst yfir tegar mikid liggur vid.Tid erud í bænum mínum.
KV. frá Jyderup
Gudrún Hauksdótttir, 25.6.2008 kl. 06:08
Hæ elsku vínkona. En hvað það var gaman að fá nokkra punkta frá þér. Kíkti nefnilega í gærkvöldi og þá sá ég bara tvær línur og elsku Áslaug viltu fara vel með þig og reyna að hvíla þig á milli stríða. Yndislegt að heyra með hreyfingarnar það er sko fótboltakríli þarna inni. Vonandi getur þú notið þess að liggja og horfa á bumbuna það er svo mikils virði, bara lofaðu að fara vel með þig.
Erfitt að lesa með Þuríði og ég vona svo heitt og innilega að þið fáið einhver svör og við biðjum fyrir henni á hverju kvöldi.
Það fer nú að líða að heimferð hjá okkur svo það verður gaman að hitta ykkur öll.
Kær kveðja Brynja í Danaveldi.
Brynja Kolbrún (IP-tala skráð) 25.6.2008 kl. 07:13
Elsku þið öll Tendra ljós og fer með bænir fyrir ykkur. Vildi að ég gæti látið sársauka ykkar hverfa en mundu mín kæra að fara vel með þig og litla krílið sem er farið að minna á sig með hreyfingum. Vonandi fer þetta að koma hjá elsku litlu hetjunni ykkar þetta er alveg komið nóg og erfitt að sjá hvað hún er þjáð.
Bið alla að tendra ljós og fara með bænir biðjum Guð að umvefja ykkur og færa ykkur krafta og betri daga
með kærleiksknúsi 4 barna mamman
4 barna mamman (IP-tala skráð) 25.6.2008 kl. 08:32
Dapulegt að lesa um ástandið á stelpuskottinu þínu kæra Áslaug. Ekki undarlegt að þú sért þreytt og andlaus. Sendi þér og litlu Þ.Ö. sterka strauma Gaman að fá fréttir af bumbubúanum, þar er greinilega fjörkálfur á ferð. Bara gaman
Jóhanna (ókunnug) (IP-tala skráð) 25.6.2008 kl. 11:03
knús á þig kæra vinkona... lots of love á þig..
Þórunn Eva , 25.6.2008 kl. 13:17
Báráttuknús á ykkur öll Vetru dugleg að hvíla þig til að ná upp þreki og styrk á ný...sendi alla mína strauma
Kv. Ellen
Ellen Óskarsdóttir (IP-tala skráð) 25.6.2008 kl. 13:49
Bergljót Hreinsdóttir, 25.6.2008 kl. 14:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.