Leita í fréttum mbl.is

Ný könnun

Var að setja inn nýja könnun að sjálfsögðu eigiði að taka þáttGlottandi
Það eru alltof fáir sem kommenta hjá mér miðavið fjöldan sem kemur inná síðuna okkar, endilega kommentið bara með kvitti langar svo að sjá hverjir eru að fylgjast með þar, plíííísss!!  Ég veit 100% að Elsa, Katrín og Brynja eru duglegar að heimsækja síðuna mína enda nýkríndir heimsmeistarar í kommentum hjá mér.  Knús til ykkar stelpur, það er svo gaman þegar þið kommentið.  Love it!!

Heyriði hvað haldiði?  Áðan þegar ég ætlaði að hætta við námið mitt fræga þá vill konan ekki í skólanum leyfa mér það eheh, það væri synd sagði hún og vill endilega halda mér inni.  Hmmm!!  Hvað gera bændur þá?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er sko alltaf að kommenta - og svara könnunum; skemmtilegast í heimi sko :P
Alla vega kíki ég hingað daglega...

Dúsdús (IP-tala skráð) 5.9.2006 kl. 19:17

2 identicon

hehe jesssss ég er ánægð með titilinn;)

katrín (IP-tala skráð) 5.9.2006 kl. 19:20

3 identicon

Æji sorrý Dúsdús ég gleymdi þér :( úbbsí hvernig er það hægt, þú ert í öðru sæti

Áslaug (IP-tala skráð) 5.9.2006 kl. 19:41

4 identicon

Já líka ánægð með titilinn..... en hvað gera bændur þá? það er góð spurning getur þú tekið þetta á hægari ferð og greitt minna??? því þetta kostar svo mikið eins og þú segir. Fyrst hún vill halda þér inni?

Brynja (IP-tala skráð) 5.9.2006 kl. 20:01

5 identicon

Vúhúúú...ég er líka massa glöð með titilinn ;) Gott hjá þér að gefast ekki alveg upp og taka nokkur fög...en þessi ágæta kona í skólanum hlýtur að geta gert eitthvað fyrir þig fyrst hún vill ekki sleppa þér ;) Gangi þér vel duglega!!

Elsan (IP-tala skráð) 5.9.2006 kl. 20:46

6 identicon

Oggggggg gleymdir mér líka, uppáhalds systir þinni...

Oddný (IP-tala skráð) 5.9.2006 kl. 21:44

7 identicon

Hæ krúsin mín.
Kíki hér oft á dag, ennn hef ekki alltaf tíma til að skrifa :) nú nú svo skrifa ég stundum póst á þitt persónulega,,,,,, Ups svo er mar byrjaður að vinna og þá eyðir maður batteríonum þar og hugmyndaflugið er sofnað og þreytt þegar ég kem heim. Er ég þá kanski >>> sem sé ekkert ofarlega á þessum lista??????snuffsnuff.
Kem þá með smáspakmæli í lokin bara svona frá mér til þín:)))))))
Faðmlag er frábær gjöf. En stærð hentar öllum.
Það má gefa við öll tækifæri og er auðvelt í framkvæmd.
knús knus :Sessa

SESSA (IP-tala skráð) 5.9.2006 kl. 22:19

8 identicon

hæhæ,
ég fylgist alltaf með ykku líka að sjálfsögðu, ég skal vera duglegri að kommenta :)
Bið kærlega að heilsa ykkur fjölskyldunni.

Kv.
Unnur Ylfa og sá litli

Unnur Ylfa (IP-tala skráð) 5.9.2006 kl. 22:36

9 identicon

oh hvað það er gaman að fá svona mörg komment :)

Áslaug (IP-tala skráð) 6.9.2006 kl. 07:08

10 identicon

hæ hæ ég kíki hér á hverjum morgni til að sjá hvernig gengur hjá ykkur... ég hef skrifað í gestabókina þína og einu sinni hér held ég ...... þú þekkir mig ekki en mér finnst ég þekkja ykkur.. ég dáist af ykkur og hugsa mikið til ykkar..og bið oft fyrir ykkur duglega og samheldna fjölskylda...ég á sjálf þrjú börn og er heimavinnandi..... gangi ykkur sem allra best.. með góðri kv Birna Hrönn

Birna Hrönn (IP-tala skráð) 6.9.2006 kl. 08:00

11 identicon

Hæhæ
Að lesa bloggið þitt er fastur liður hjá mér þegar ég drekk fyrsta kaffibollann í vinnunni.
Skemmtileg og lærdómsrík lesning sem hjálpar manni að vera ánægður með það sem maður hefur (og hætta þessu helv. væli ;-) )
Ég held að þetta sé merki um að þú ættir að halda þig við námið fyrst að þú færð ekki að hætta, eða hvað finnst þér?

Hrafnhildur Ýr (IP-tala skráð) 6.9.2006 kl. 08:30

12 identicon

Ég kíki á þig á hverjum degi og maður ætti að vera duglegri við að kommenta á þig. Mun standa mig betur í því.

Luv Magga K

Magga K (IP-tala skráð) 6.9.2006 kl. 08:43

13 identicon

Hæhæ Slauga..kíki oft á ykkur..og reyni eftir bestu getu að fylgjast með hvernig gengur hjá ykkur..gæti örugglega verið duglegri að kommenta...en geri það samt stundum..ég er ekki í vafa um að þú tekur réttu ákvörðunina varðandi námið...þú veist best innst inni hvað þú getur náð bæði ökónómiskt og akademískt..mitt ráð er að byrja smátt og svo bæta við sig ef það er pláss fyrir það..óþarfi að setja einhverja rosa pressu á sig strax...bestu kveðjur fra dejlige danmark.. Ólöf og co..

Olof Olafsdottir (IP-tala skráð) 6.9.2006 kl. 08:57

14 identicon

kommenta hvað er það? ég fer nú á hverjum degi að kíkja á ykkur , heyrðu ég bara vissi ekki að þetta væri hægt momomomo. ég hef alltaf bara skrifað smá í gestabókina ég er algjör tölvu lúði. nú verð ég sko óþolandi , þú losnar aldrei við mig

frænkan sem kann ekki á tölvur (IP-tala skráð) 6.9.2006 kl. 12:08

15 identicon

jih dúddamía hvað það er gaman að fá svona mörg komment, ef þetta væri svona daglega :)

Áslaug (IP-tala skráð) 6.9.2006 kl. 12:13

Bæta við athugasemd

Hver er summan af þremur og ellefu?
Nota HTML-ham

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband