Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2007

Ný könnun

Setti inn nýja könnun.

Nokkrum árum síðar...

Þegar Þuríður mín Arna var nokkra mánaða eða var hún kanski orðin árs gömul æjhi ég man það ekki heldur ekkert svo mikilvægt að muna en allavega þá ákvað ég að opna síðu á Barnalandi.  Síðan var ætluð vinum og ættingjum sem gætu fylgst með vexti og þroska Þuríðar minnar og var hún opin öllum enda fannst mér heldur ekkert svo nauðsynlegt að loka henni, ég hafði ekkert merkilegt að segja og svo voru bara fallegar myndir af fallegasta barninu og hélt heldur ekkert að fólk sem þekkti ekkert barnið væri að lesa eða skoða myndir.  Ég hafði sjálf engan áhuga að lesa síður annarra þar að segja hjá fólki sem ég þekkti ekkert og hvað þá að skoða myndir af börnum þeirra, sá bara engan tilgang með þeirri forvitni.

Einhverju síðar ákvað ég að opna mína eigin bloggsíðu bara af forvitni og svo var ég kanski líka að herma eftir Katrínu vinkonu www.katrin.is sem fékk og ö-a fær gífurlega mikla athygli með síðuna  sína enda segir hún allt sem henni dettur í hug eheh.  Ég hafði heldur ekkert merkilegt að segja á þeirri síðu, var bara að tala um hvað ég væri að gera og þess háttar.  Hafði engar ákveðnar skoðanir á einhverjum hlutum eða myndaði mér engar skoðanir, var bara að leika mér af forvitni.  Fannst þetta bara gaman og það voru kanski mesta lagi 40manns sem komu á síðuna mína á dag sem mér fannst nú eiginlega bara geggjað þar sem þetta voru bara vinir og ættingjar sem voru að forvitnast um okkur fjölskylduna.

Svo líða árin ég er ennþá með heimasíðu en tilgangurinn er ekki lengur þá sami, það er að koma 2000manns inná heimasíðuna mína á dag og afhverju skyldi það vera? (ég veit alveg afhverju)  64% ykkar þekkja mig ekki hin prósentin þekkja mig eða rétt kannast við mig, aðal málið er að fylgjast með Þuríði minni sem mig þykir ótrúlega vænt um en samt doltið óþægilegt.  Finnst alltof mikill fjöldi sem kemur á síðuna mína ég þekki ekki meira en helminginn, stundum finnst ég eiginlega að vera pína mig til að skrifa hérna bara til að halda ykkur við efnið þótt ég hafi ekkert að segja og ég hafi engan áhuga að skrifa.  Fólk kvartar þó ég þekki það ekki neitt ef ég skrifa ekkert, finnst alltílagi ef mitt fólk kvartar sérstaklega ef það býr faraway því mér finnst líka gott að hafa símann ekki á fullu allan daginn og alllir að spurja um líðan hennar Þuríðar minnar.  Þó mér finnist gott að tala um veikindin hennar sem hjálpar mér endalaust mikið hvað þá að geta skrifað hérna um líðan minn, hennar eða hinna í fjölskyldunni en þá vill ég stundum smá pásu frá öllu þessu álagi. 

Einsog Óskar minn sagði þegar hann fór að vinna 1.júní síðastliðin eftir margra mánaða fjarveru frá hvað honum finndist gott að komast aðeins í burtu og geta dreyft huganum við eitthvað annað.  Þó það geti ö-a verið álag í hans vinnu en þá er það allt öðruvísi en því miður get ég ekki hlaupið svona í vinnu þó ég glöð vildi bara til að komast aðeins í burtu til að hvíla hugan frá álaginu, enda held ég að engin vinnuveitandi vildi ráða mig í vinnu þar sem það geta komið margir dagar/vikur já eða mánuður sem ég þyrfti að vera í burtu vegna Þuríðar minnar og svo verða hin börnin líka veik þótt við höfum verið svakalega heppin með þau í vetur.  (7-9-13)

Þar sem ég er að reyna segja, þá ætla ég núna að hætta pína mig til að skrifa hérna þó ég hafi sagt það áður en þá stend ég við þau orð núna.  Ég er bara eitthvað svo þreytt, mér finnst þetta erfitt, þið getið ekki ímyndað ykkur hvað ég hugsa daglega og það reynir virkilega mikið á bara það eitt og sér að hugsa um að geta misst barnið sitt tekur virkilega mikið á.  Þó að Þuríði minni líði "vel" krampar lítið og er ekki eins slöpp einsog hún er oft á tíðum hætti ég aldrei að hugsa um það sem læknarnir hafa sagt við okkur og geri það á hverjum degi og kvíði fyrir ALLTAF næstu dögum um að henni fari að hraka.  Ég reyni alltaf að vera jákvæð og sterk þá sérstaklega hérna þó ég sé það reyndar kanski ekkert alltaf bara því þið eruð alltaf að tala um hvað við stöndum okkur vel og tökum þessu vel þá reyni ég að gera mitt besta.  Að sjálfsögðu er það gott að fá öll þessi klöpp á bakið sem ég get þakkað ykkur endalaust oft fyrir og það heldur manni líka gangandi en mér finnst þetta samt allt endalaust erfitt.  Ég er með magapínu á hverjum degi og hjartað í buxunum en þá er líka gott að eiga alla þessa vini og ættingja sem við eigum, knús til þeirra!!  Við erum ótrúlega heppin með alla í kringum okkur og allir þessir sem hafa staðið einsog klettar á bakvið okkur er ómetanlegt, mér líður samt illa.  Mér líður ekkert verra núna en síðustu vikur eða tvö ár, ég verð bara alltaf opnari með líðan minn bara það sem líður á veikindin hennar Þuríðar minnar og á auðveldara að skrifa um þau.

Það sem við Skari reynum til að halda okkur gangandi er að hafa eitthvað til að hlakka til sem er nauðsynlegt fyrir alla hvort sem þú ert veikur sjálfur, átt veikt barn eða bara ert alheilbrigður, það er reyndar mikið að gera hjá okkur næstu helgar sem við getum hlakkað til og ég ætla reyndar að fara í vinnu til hans þegar litli krulluhausinn minn (jebbs komið nýtt orð á hann þar sem hann er algjör krullukarl sem hann fær frá pabba sínum ekki leiðinlegt) er búinn að taka lúrinn sinn og þá ætlum við að búa til smá til að hlakka til eftir sirka þrjá mánuði eða svo.

Verð víst að fara láta hann fara sofa þar sem hann er orðinn frekar órólegur, svo þið vitið það þá er ég alls ekki hætt að skrifa hérna því ég veit að það hjálpar mér mjög mikið sérstaklega þegar ég fæ falleg komment og mail en það verður kanski ekki jafn oft en kanski verður það oftar ég veit það ekki?  Ef mér líður þannig að mig langar að skrifa oft á dag þá geri ég það, ef mig langar ekki að skrifa í marga daga þá geri ég það líka.

Takk fyrir mig í dag og verið góð við hvort annað og farið að búa til eitthvað til að hlakka til.  Þurfa ekki að vera stórir hlutir, þessir litlu skipta líka svo miklu máli.

Knús til ykkar allra þó ég þekki ekki meiri en helmgininn sem lesa síðuna mína.


Myndir

Var að klára setja inn fjórða albúmið frá Flórída og ætla mér ekki að setja fleiri myndir þaðan, þið getið bara komið heim til mín til að skoða þessar 700myndir ef þið eruð ekki sátt.Kissing
P1134457
Þuríður Arna hetjan mín.

Til hamingju Ísland

Oh mæ god hvað er gaman að vera "gamall" badmintospilari í dag, vííí!!  Ekki það að mér hafi einhverntíman leiðst það en núna er það sko stuð, var að koma úr höllinni og svei mér þá þá er ég orðin hás og virkilega illt í hálsinu.  Ég var ekkert að öskra "Áfram Ísland" ég bara öskraði "bwaaahhh" þegar Ísland klúðraði eða vann stig thíhí endalaust stuð.  Ísland er sem sagt að keppa í Evrópukeppninni B-þjóða og er komin í úrslit hæhó jíbbíjíjei og jíbbíjei!!   Dæssúss mar hvað það er gaman og ef  ykkur langar að horfa á úrslitin þá eru þau kl tíu í fyrramálið í höllinni að sjálfsögðu, endilega mætið og hvetjið ykkar fólk.  Jújú núna eru þetta krakkarnir "ykkar" einsog strákarnir "ykkar" í handboltanum eða bara þegar þeim gengur vel annars er það bara handboltalandssliðið.

Theodór minn litli pungsi eru allur að hressast enda veit drengurinn að hann ætlar að halda uppá stórafmælið sitt á morgun og alveg að farast  úr spenning eða þannig.  Ég á víst ekkert að vera hangandi í tölvunni þar sem ég þarf að vera undirbúa stórveilsu og kanski taka smá til þar sem mín er ekki búin að vera heima í ALLAN dag bara að horfa á krakkana "okkar. 

Skari er á leiðinni uppá Skaga að ná í stelpurnar þar sem þær gistu þar í nótt en við hjónakornin (æjhi mér finnst að maður eigi bara að segja hjónakorn við t.d. ömmu og afa, finnst þetta vera eitthvað svo gamalt orð) fórum útað að borða í gærkveldi og áttum ótrúlega notalega stund og borðuðum góðan mat.  Slurp slurp!!  Mamma kom og passaði pungsan á meðan sem sat bara stilltur og góður í fanginu hennar í þessa þrjá tíma sem við vorum í burtu, yndislegastur!!

Best að fara setja kjúllan í ofninn og taka smá til hérna í sveitinni......


Litli kútur

Litli kúturinn minn hann Theodór er frekar slappur núna eða vaknaði í morgun með 39,4 þannig hann vill bara kúra í mömmukoti, æjhi það er svo gott þegar þau kúra svona hjá manni en það mætti líka vera oftar þegar þau eru ekki svona slöpp.  Hann verður víst að hrista þetta af sér drengurinn þar sem það styttist óðum í fyrsta afmælisdaginn en hann er 23.janúar en það verður stórveisla í "sveitinni" á sunnudaginn, oh mæ god hvað mér finnst gaman að halda uppá afmæli barnanna minna já eða okkar allra í fjölskyldunni.  Erum frekar veisluóð þessi fjölskylda, bara gaman!!

Það er alveg brjálað að gera hjá minni, hef varla sest niður síðan við komum heim. Læknaheimsóknir að hejast aftur eftir fríið okkar og einhverjar fleiri heimsóknir en það á víst að reyna gera eitthvað meira fyrir hana Þuríði mína þannig mér leiðist sko ekkert á daginn.  Það halda margir að heimavinnandi húsmæður hafa endalausan tíma fyrir sjálfan sig, oh boy ég vildi óska þess að það væri satt?  Ætla mér samt að fara gera mér meiri tíma eða allavega reyna fara mæta oftar í ræktina en ekki bara þessa þrjá tíma sem ég er með fasta á viku, reyna um leið og ég hendi stelpunum í leikskólan og leyfi Theodóri mínum að leika við krakkana hjá mömmu, hann hefur gott af því drengurinn.  Ræktin gerir mér nefnilega ótrúlega margt gott, aukaatriðið mitt er að grennast en það yrði stór plús þegar af því kæmi eheh!!  Mér líður bara svo ótrúlega vel að geta mætt í ræktina og reyni að gera eitthvað fyrir sjálfan mig, þó svo að það er ekki langur tími sem ég fæ fyrir sjálfan mig þá gerir það alveg heilmikið.  Mæli með því fyrir alla, þetta er svo ótrúleg lækning á allan hátt.

Annars vissi ég ekki að ég þekkti svona marga en ég er búin að vera í því að svara fólkinu mínu með nýja lykilorðið okkar, ég ætti kanski að skipta um lykilorð í hverri viku eheh!!  Það er svo hrikalega gaman að fá svona mörg mail og fallegu kveðjurnar sem fylgja þið getið ekki ímyndað ykkur hvað þetta gerir fyrir mig.  Ég reyni að fara klára svara ykkur en það eru ansi margir eftir, taka mér bara smá pásu frá mail-skrifum og skirfa nokkrar línur hér þó ég hafi ekkert að segja, bara bulla!!  Þið megið annars alveg halda áfram að senda mér svona falleg mail eða komment hér á síðunni þó svo ég ætli mér ekki oftar að skipta um lykilorð.

Þuríður mín er annars "hressari" en síðustu vikuna, ekkert búin að krampa í nokkra daga.  Ég er bara ekki að skilja þetta með krampana eða ekki neinn hvort sem þú kallar þig læknir eða eitthvað annað?  Hún var reyndar mjög óhamingjusöm þegar hún vaknaði í morgun, stúlkan er greinilega farin að þreytast og jú maður veit afhverju hún þreytist.  Hún vill orðið bara fá að sofa þannig ætli ég fari ekki að leyfa henni að sofa út á morgnana og svo fara í leikskólan því ég veit að hún verður vonandi aðeins hressari við það.  Hún verður víst að fá að ráða ferðinni sjálf, hún er líka farin að tala oftar um það að hún sé lasin í hörfðinu og kanski er ástæðan að hún sé alltaf með hausverk en hún á ofsalega erfitt með að tjá sig útaf því sem er kanski ekkert skrýtið.  Hún er nú bara fjagra og hálfs og þekkir ekkert annað en að vera veik en veit ekkert afhverju henni líður svona eða heldur bara að öllum líði svona einsog henni.  Hún er líka farin að versna tífalt af exeminu og finnst ofsalega gott þegar við nuddum henni, æjhi greyjið hún er ótrúlega slæm ég sem hélt að fólk með exem ætti að lagast í sólinni?  Það hefur allavega alltaf verið sagt við mig en ég er með psoriasis en það er einsog Þuríði minni versni alltaf við að fara í sólina?  Skrýtið!

Jú ég "hitti" hann Geir Haarde í gær, síðan mín var nefnilega tilnefnd sem besti einstaklingsvefurinn ásamt fjórum "fríkum" í viðbót en að sjálfsögðu vann ég ekki, finnst þetta frekar bara fyndið.  Það var nefnilega smá "hóf" í gær í Iðnó í gær sem ég var reyndar ekkert að fíla mig að vera, er ekki alveg þessi tölvugúru einsog allir sem voru þarna.  Bara fyndið og gaman!!

Var annars að bæta við albúmum frá Flórída en það eru komin þrjú albúm sem þið endilega kíkið á og vonandi fer ég að geta svarað öllum mailunum sem ég hef fengið með fyrirspurnum um lykilorðið.  Ég á bara ekki til aukatekið orð hvað ég hef fengið mörg mail og næstum því öll frá fólki sem ég þekki, svo gaman að sjá hverjir eru að fylgjast með.  Knús til ykkar!!

Farin að kúra hjá veika stráknum mínu..


Smotterí

Var að setja inn eitt albúm frá Flórída og endalaus mörg eftir, púúffh Skari var að hlaða inn yfir 700myndum inní tölvuna þannig það er langt í land að hlaða þeim öllum inn sem ég ætla reyndar EKKI að gera, reyni að velja úr.  Reyndar getiði ekki kíkt á barnalandssíðuna þar sem ég varð að loka henni ALLRI ekki bara myndasíðunni einsog hún var heldur allri sem mig langaði reyndar ekkert að gera.  Stundum er nauðsyn og hún var það þokkalega núna, ég get því miður ekki rætt ástæðuna fyrir því hérna á síðunni minni en þeir sem fá lykilorðið á barnalandssíðunni munu fá að vita hana.  Á næstu dögum mun ég skrifa ástæðuna þar, ömurlegt!!  Ég ætlaði mér alltaf að halda henni opnri fyrirutan myndasíðuna og finnst ömurlegt að þurfa loka henni svona er bara lífið, ekki alltaf dans á rósum.  Endilega sendið mér mail á aslaugosk@simnet.is þar að segja ef ég þekki þig eða veit hver þú ert og þú færð lykilorðið um hæl og vonandi er þetta síðasta sinn sem ég þarf að breyta lykilorðinu.  Aaaarghh!!

Allt sæmilegt að frétta af okkur fjölskyldunni, Þuríður mín farin að slappast.  Ótrúlega skrýtnir dagar hjá henni einn daginn fær hún yfir 30krampa en næsta dag engan, að sjálfsögðu vita læknarnir ekkert afhverju þetta sé svona og afhverju  hún sé að slappast?  Er æxlið að bólgna vegna geislameðferðar eða er henni bara að versna, enginn getur sagt neitt.Angry  Alltaf bíður maður bara í óvissunni, ömurlegast!!

Það var alveg ömurlegt að horfa uppá Þuríði mína þegar hún var sem verst útá Flórída, það er einsog slökkni algjörlega á manni og langar bara að leggjast uppí rúm og grenja.  Maður fer líka að hugsa svo mikið um afhverju þetta sé svona, hugsar það versta en vonar það besta.

Annars var ferðin æðisleg í alla staði, ég mun aldrei geta þakkað nógu vel fyrir okkur.  Elsku "jólasveinar" þið eruð algjörir gullmolar að senda okkur í þessa ferð, minningar sem við eigum frá ferðinni eru ómetanlegar.  Það var alveg æðislegt í alla staði, við þrömmuðum endalaust marga garða sem var endalaust gaman hvort sem þú varst 1 árs eða alveg að nálgastí 34ára.LoL  Þið eruð yndislegir elsku "jólasveinar" og þið hin við hefðum aldrei getað þrammað í garðana nema ykkar vegna.  Þið hafið öll sömul gert heilmikið fyrir okkur sem við getum aldrei þakkað nógu vel fyrir. Knús og kossar til ykkar allra!!Wink

Brjálað að gera hjá mér næstu daga, er víst að fara hitta forsætisráðherran á morgun svona án gríns segi ykkur síðar frá því thíhí!!  Æjhi þetta er allt saman fyndið, oh mæ god!!

Langar í lokin að senda kveðju til einnar vinkonu minnar sem sagði mér frábærar fréttir af sér í dag, úha!!  Bara gaman!!

Endilega sparið ekki knúsin á hvortannað og þið segið aldrei nógu oft hvursu mikið þið elskið eða þykið vænt um hvort annað.  Það jafnast ekkert á við gott knús.InLove


Farin að sakna mín??

Komin heim á klakan en hef samt engan tíma til að blogga, taka uppúr töskum og svo kallar ræktin á mig. Vonandi gef ég mér tíma til að blogga eitthvað í kvöld eða á morgun, sorrý pallarnir mínir en það er brjáááálað að gera.

Kvedja fra Amerikunni

Langadi bara ad senda stutta kvedju hedan, tad er buid ad vera otrulegt stud, hitinn rokkar fra 12-30 tannig tad er annadhvort minipilsid eda sokkabuxurnar a bornin.

Reyndar er Turidur min ad slappast, er buin ad vera mjog slopp sidustu daga, farin ad krampa a hverjum degi og buin ad fa ansi marga krampa i dag.  Hef ekki tolu a teim, omurlegt!!  Fae alveg illt i hjartad ad horfa uppa hana nuna.  Omurlegt!!  Reynum samt ad gera gott ur ollu, bidjum ad heilsa og takk fyrir kommentin.

Kvedja fra Amerikunni....


Stuuuuuuuuuud!!

Stud, stud, stud, stud!!

Heitt, heitt, heitt, heitt!!

Disney a morgun!!

Takk fyrir mig i dag!!
Slauga a Florida.


Bæjó en í bili þó

Langaði bara að drita niður nokkrum línum en ef þið voruð búin að gleyma þá erum við fjölskyldan að fara til Flórída kl 17:25, hmmm ekki leiðinlegt!!Tounge  Erum á fullu að klára pakka, alltaf á síðustu stundu en við erum ekki vön að flýta okkur þegar pökkun er tilstaðar ehe, svooo leiðinlegt en samt ennþá leiðinlegra að taka uppúr þeim.  Það er þvílíkur spenningur í fjölskyldunni, trallalala!!

Ég er nú ekki viss um að þið "heyrið" eitthvað í okkur frá Flórída, ætla að reyna forðast tölvur einsog ég get en ef það eru tölvur á hótelinu þá er aldrei að vitaErrm  Læt þá kanski heyra aðeins í mér, gæti verið að heppnin verði með ykkur.

Smá fréttir af Þuríði minni einsog ég hef sagt þá eru kramparnir farnir að aukast hjá stúlkunni minni, grrrrr!!  Þrír krampadagar af fjórum þannig það er mikil aukning miða við síðustu tvær vikur og ég er orðin nett stressuð að hún verði slæm úti vona samt ekki, vona að hún geti notið hverra mínútu og skemmt sér einsog hinir.Wink

Allavega kæru lesendur eða um 2000, púúfffh hvaðan kemur allt þetta fólk það er naumast að maður getur verið merkileg held kanski ekki að ég sé ástæðan fyrir því að þið komið hérna við.Angry Ætla allavega bara að kveðja í bili og hafi þið það yndislega gott og ekki gleyma knúsa þá sem ykkur þykir vænt um.
Bæjó en í bili þó
Slauga og familí sem eru á leiðinni til Flórída ef þið voruð búin að gleymaCool
nr.4


« Fyrri síða | Næsta síða »

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband