Leita í fréttum mbl.is

Hvar er orkan mín?

Ég var að spá í hvort þið hefðuð fundið hana?  Ég er gjörsamlega orkulaus þar sem ég sef ekkert á nóttinni, er of kvalin í líkamanum til að ná mér niður.  Er að fara hitta bæklunarlækninn minn á eftir og fá allar þessar niðurstöður, ....loksins og vonandi verður hægt að gera eitthvað NÚNA.  Ég hreinlega get ekki verið svona lengur, ég hef varla orku í að pikkað hérna á tölvuna.

Perlan mín er annars lasin, er líka að fara með hana til læknis er væntanlega með einhverja sýkingu. 

ENN stóru fréttir dagsins eru það að í febrúar mánuði eru komin TVÖ ÁR síðan hetjan mín krampaði síðast, læknarnir okkar eru mest hissa á þessu kraftaverki.  Jú flest okkar vilja að læknarnir okkar viti ALLT og geti ALLT en ég er ekki ein af þeim , ég er ótrúlega fegin að þeir höfðu ekki rétt fyrir sér með Þuríði mína.  Mér finnst varla taka því að gefa Þuríði minni þessi lyf á morgnanna sem eru þrjár töflur og svo tvær á kvöldin sem henni finnst að sjálfsögðu bara lítil kökusneið enda vön ca 10 töflum bæði morgns og kvöldi til.  Snillingur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

sæl, hefur þú heyrt um BOWEN meðhöndlun það gerir oft ótrúlega mikið fyrir líkamann og er mjög skjótvirkt ,farðu vel með þig kveðja :)

didda (IP-tala skráð) 2.2.2010 kl. 11:27

2 identicon

Elsku stelpan

Ég ætla rétt að vona að þinn kroppur fari að styrkjast og það sem að er verði MJÖG auðvelt að lækna.

Mér finnst ekki skrýtið að þú sért öll lurkum laminn þó ekki væri nema fyrir allt það sem á undan er gengið.  Svona hrikalega erfitt ástand með barnið sitt og bæta svo við tveimur á tímabilinu.  Ég hef oft hugsað sem svo "hún Áslaug hlýtur að vera úr stáli", en svo þegar hægist um þá kemur oft fram að líkaminn okkar er einmitt ekki úr stáli.

En hvað sem öllu líður þá óska ég að þú fáir góðar niðurstöður hjá þínum lækni og vel gangi að hressa hetjuna "þig" við.

þess óskar Sólveig

Sólveig (IP-tala skráð) 2.2.2010 kl. 12:45

3 identicon

 Hæ, tek undir með nöfnu, minni. Þú ert Ofurkona sem ég lít upp til.

 Ég er sammála þér með læknana, gott að þeir vita ekki allt.

 Þið Björk Töffari eruð Ofurkonurnar í mínum huga.

 Farðu vel með þig, og vonandi hressist þið sem fyrst.

 Kv. Sólveig

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 2.2.2010 kl. 13:06

4 identicon

Gangi þér vel hjá lækninum kæra Áslaug.

Þorgerður (IP-tala skráð) 2.2.2010 kl. 13:20

5 identicon

Þekki þetta, þegar líkaminn segir allt í einu stopppppp. Það tekur tíma að vinna þetta til baka og nú þarftu að fara hugsa vel og vandlega um þig.  Að stunda hugleiðslu er frábær aðferð, fara í heilun og komast í kontakt við náttúruna, ein með sjálfri þér t.d. úti að labba.  Þetta notaði ég og það hjálpaði mér svakalega mikið. Skrifa líka í bók hugsanir þínar það er góð hugleiðsla...já nú er kominn tími til að byrja á bókinni   Gangi þér vel duglega kona og mundu að þú ert einstök.   Nú tendra ég ljós fyrir þig, stórt og kröftugt

Með kærleikskveðju og bæn 4 barna mamman

4 barna mamman (IP-tala skráð) 2.2.2010 kl. 15:25

6 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Halldór Jóhannsson, 2.2.2010 kl. 20:34

7 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Við hér á blogginu erum búin að segja þér ótal sinnum hvað þú ert dugleg og víst ertu það.

Er ekki líkaminn þinn að segja þér að nú vanti hvíld og að hægja aðeins á. Við hlustum ekki nægilega vel á líkamann og svo er annað ekki síður mikilvægt, við skiljum ekki alltaf hvað hann er að biðja um og getum þar af leiðandi ekki gert það sem þarf. Vona svo sannarlega að þú hittir góða túlka sem allra fyrst og auðvelt verði að uppfylla óskirnar.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 3.2.2010 kl. 01:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband