23.2.2010 | 11:17
Engin fyrirsögn
Hérna er Hinrik minn töffari en þessi var tekin af honum síðasta sumar. Þessi drengur er gullmoli, rólegur, góður, dundari, mikill mömmupungur og finnst fátt skemmtilegra en að liggja í mömmukoti, hann getur jú að sjálfsögðu fengið frekjukast einsog flest börn, farinn að sýna smá gaura"stæla". Bara yndislegur.
Theodór minn sem er líka mikill mömmupungur og finnst jafn gott að kúra í mömmukoti einsog hinum, hann er mikill gaur og elskar mikinn gauragang. Orkumikill enda finnst honum fátt skemmtilegra en að fara á fimleika- og fótboltaæfingar. Hann er mikill töffari og ef hann fengi að ráða þá væri hann í skyrtu og bindi alla daga. Flottastur!!
Þuríður mín er að fara í tjékk á fimmtudaginn og þá væntanlega verður ákveðið með nk. myndatökur sem ég vil fá síðasta lagi í maí en þá eru níu mánuðir síðan síðast. Æji stundum finnst mér hún ofsalega óhamingjusöm en aðra daga hamingjusöm, finnst bara svo erfitt að geta ekki spurt hana hvað sé að angra hana. Hún bara finnur ekki réttu orðin en langar samt svo mikið að segja mér, finnst þetta ótrúlega erfitt.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
336 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Baráttukveðja til ykkar hetjanna...sendi fullt af englum til að vaka yfir ykkur..þið eruð ótrúlegt fólk
Bergljót Hreinsdóttir, 23.2.2010 kl. 19:50
Þið eigið yndisleg börn,það er nokkuð víst;) Ekkert er eins vont og þegar börnunum manns líður illa og þá sérstaklega þegar þau geta ekki tjáð sig um það......maður heldur oftast að maður viti hvað angrar þau en þorir ekki að vera með leiðandi athugasemdir því litlu skinnin segja stundum að maður hafi hitt naglann á höfuðið því þau eru fljót að sjá að það færir okkur ró en ég hef kynnst því að það er oft skotið framhjá. Ég vona svo innilega að hún Þuríður sé ekki með króníska verki sem eru að valda henni því að hún heldur að svona líði fólki bara og ekki taki því að nefna það því það kosti bara læknisferðir og rannsóknir og kannske döpur augu þeirra sem henni þykir vænst um. Börn eru bara svo klárar litlar manneskjur. Svo gæti líka auðvitað verið að þú læsir of mikið í hana afþví að þú ert alltaf á verði,auðvitað á hún sínu góðu og slæmu daga og mest í heiminum vona ég að þetta sé það.
Með miklum baráttukveðjum Sóla.
p.s hefurðu reynt taugaverkjalyfið Lyrica,hjálpar bæði með verki og svefn,maður veit ekki hvað er að sofa vel fyrr en maður á eina góða nótt
Sóllilja (IP-tala skráð) 23.2.2010 kl. 21:10
Miklir töffarar þessi piltar. Góðar bænir fyrir ykkur öllum.
Hólmfríður Bjarnadóttir, 23.2.2010 kl. 23:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.