Leita í fréttum mbl.is

8 dagar

Í dag eru 8 dagar þanga til Þuríður Arna mín fer í rannsóknir sínar og mér er orðið óglatt af kvíða, þessi kvíði er alveg óþolandi.  Þó svo það eru engin sjáanleg merki um að það eru einhverjar breytingar hjá hetjunni minni þá vex hnúturinn bara, því miður mun hann ö-a aldrei fara.

Við áttum frábæra afmælishelgi, systurnar héldu saman afmæli fyrir fjölskyldu og vini og eru ofsalega ánægðar með helgina.  ....að sjálfsögðu við líka.
P5027329 [1024x768]
Að sjálfsögðu fengu þær prinsessuköku en ekki hvað, kemur að sjálfsögðu ekkert annað til greinar fyrir svona fallegar prinsessur.
P5017292 [1024x768]
Hinrik mínum fannst kakan ekkert rosalega slæm.Tounge
P5017243 [1024x768]
Hamingjusamar eftir helgina.
P5017234 [1024x768]
Theodór spekingur....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Glæsilegar myndir af fallegum börnum. Hinrík fer svo vel að vera svona súkkulaðibrúnn. Sendi þér góða strauma og kærleiksríkar bænir.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 3.5.2010 kl. 11:10

2 identicon

Sendi þér orku strauma og kærleiksknús.  Tendra ljós og fer með bænir fyrir ykkur fallega fjölskylda.

með kveðju 4 barna mamman

4 barna mamman (IP-tala skráð) 3.5.2010 kl. 13:52

3 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Kærleiksknús á ykkur yndislega fjölsk..

Halldór Jóhannsson, 3.5.2010 kl. 21:57

4 identicon

Frábærar myndir.  Innilegar kveðjur og knús til ykkar allra.

Þorgerður (IP-tala skráð) 4.5.2010 kl. 08:25

5 identicon

Falleg börn ! Til hamingju með þetta veldi ykkar

 Auðvitað ertu kvíðin, ég ætla ekki að reyna að segja þér að líða öðruvísi.

Hugsa til ykkar og vona af öllu hjarta að allt fari vel.

Baráttukveðjur frá Svíþjóð !

Rakel Sara Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 4.5.2010 kl. 19:59

6 identicon

Fallegar myndir af börnunum, og svona mynd eins og af Hinriki fá mann til að brosa.   Skil þetta svo vel með hnútinn!!!

Óska ykkur alls hins besta!!!!!!! 

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 5.5.2010 kl. 15:36

7 identicon

Langaði bara að senda ykkur stórt knús, og segja hvað börnin ykkar eru falleg gaman hvað Þuríður dafnað vel undanfarið, gangi ykkur vel á stóra deginum alltaf mikil kvíði sem fylgir þegar eitthvað er að börnunum mans

Guðrún ( boston ) (IP-tala skráð) 5.5.2010 kl. 21:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband