Leita í fréttum mbl.is

Rúm vika í sýnistöku

Fengum hringingu frá spítalanum í gær að sýnistakan er eftir rúma viku en hittum okkar verðandi skurðlækni á fimmtudaginn og þá fáum við að sjálfsögðu að vita þetta allt saman.  Það er byrjað á sýnistöku en við verðum bara að vera bjartsýn á að það verði svo hægt að fjarlægja allt æxlið en það væri þá í fyrsta sinn sem það verður hægt.  En þetta æxli er á betri stað en það síðasta og það er að vaxa út (halda þeir) en ekki innað miðjunni einsog síðasta þegar það var farið að þrýsta á allt og Þuríður Arna krampandi allan daginn.  Að sjálfsögðu eru miklir möguleikar að hún fari að krampa aftur en ég vona svo heitt og innilega ekki því það er hrikaleg martröð þá sérstaklega fyrir hana.

Fólk býst við því, því núna er hún farin að greinast aftur þá hlýtur hún að vera orðin rosalega veik en að "sjálfögðu ekki" (ekkert sjálfsagt samt sko).  Hún lítur út alveg eins og daginn fyrir greiningu og í dag, engar breytingar á dömunni en þær verða það að sjálfsögðu þegar hún byrjar (ef) í meðferð.  Allar þessar ákvarðanir verða teknar þegar sýnistakan er búin.

Þetta eru hrikalega erfiðir dagar og það er engan veginn hægt að venjast svona fréttum.  Oddný Erla mín litla blómið mitt á ofsalega erfitt, hún er mjög viðkvæm og brotnar auðveldlega niður en segist ekki vita afhverju langar bara að vera hjá mömmu sinni.  Þetta eru líka erfiðir dagar fyrir hana, búin að þurfa upplifa of margt og sjá systir sína þjást alltof mikið.  Maður þarf að gera góðan verndarhring kringum hana þess vegna verðum við mæðgur að vera með einhverja mömmudaga áður en þessi barátta hefst en Theodór er bara þessi kærulausi gaur en með samt svo lítið hjarta og finnur alveg að það er eitthvað að en tekur þetta ekki alveg jafn mikið inná sig nema hann sjái einhverja gráta í kringum sig.  Hinrik minn finnur alveg að  það er eitthvað í gangi og passar þá í staðin vel uppá mömmu sína, vill knúsast mikið og passar að ég hverfi ekki of mikið.  JÁ þetta er skítt og hrikalega erfitt......

Í dag ætlum við börnin að kíkja á Stokkseyri'city og setja niður nokkrar kartöflur fyrir kartöflukeppnina okkar sem er árleg hjá fjölskyldunni, bara gaman!!  Svo var ég líka svo heppin að ég gleymdi að ég fékk gjafabréf hjá Vox í jólagjöf svo við hjónakornin ætlum að kíkja þangað á morgun, fínt að geta gleymt sér í einhverju áður en þetta hefst allt.  Þannig næstu daga ætla ég að hafa þétta dagsskrá, bæði fyrir mig og Óskar og okkur börnin.

Ætla að ljúka þessari færslu með mynd af litla blóminu mínu sem er að fara sýna í Laugardalshöllinni á fimmtudaginn en eini staðurinn sem hún gleymir sér alveg sýnist mér vera á fimleikaæfingunum svo ég mjög fegin að þær verða ansi margar í byrjun sumar þegar þetta hefst allt.   Á myndinni er hún komin í 80's búninginn sinn og til í slaginn.....
P5147632 [1024x768]


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Greinin að nýju þýðir ekki endilega veikindi. Staðurinn sem æxlið er á skiptir þar öllu. Blæðingar í heila hafa líka svo margskonar afleiðingar eftir því hvar þær verða.

Gott að vita um gang málsins, hvenær sýnið er tekið og hvenær þið fáið nánari útskýringar. Óttinn við það óþekkta og óvænta er það alversta í stöðunni. Þið eruð líka óhrædd við að viðurkenna óttann og þar með betur í stakk búin til að taka á honum.

Kartöfluferðin er örugglega góð leið til að gleyma sér aðeins, vera að gera eitthvað. Frábært að gjafabréfið "gleymdist" og nú er líka rétti tíminn til að nota það.

Sendi ykkur mikið af gleði, ánægju og ást til að brúka næstu daga, ekki veitir af.    

Hólmfríður Bjarnadóttir, 15.5.2010 kl. 10:25

2 identicon

Ég verð að segja að þú ert ótrúleg kona og ótrúleg móðir.  Þú gerir alltaf allt það besta til að gera gott úr hlutunum og þú ert greinilega með forgangsröðina algjörlega á hreinu.  Þú ert þvílíkt góð fyrirmynd okkar hinna sem stundum verðum þreyttar bara ef einhver fær hor í nös eða draslar til.  Þessi mikli styrkur á eftir að fleyta þér og þínum þangað sem þú vilt komast.

fjögurra_dætra_móðir (IP-tala skráð) 15.5.2010 kl. 13:13

3 Smámynd: Ragnheiður

tek alveg undir með þeim sem skrifa hér að ofan. Þú ert afskaplega flott kona Áslaug og með allt á hreinu í svo skelfilega erfiðum aðstæðum.

Litla skottið er æði á þessari mynd.

Hjartaknús til ykkar

Ragnheiður , 15.5.2010 kl. 14:36

4 identicon

ég hugsa til ykkar á hverjum degi.....  

Lára Kristín Brynjólfsdóttir (IP-tala skráð) 15.5.2010 kl. 19:07

5 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Þið er flott:)

Hvað við(ég,svo ég móðgi ekki neinn) megum taka okkur á sem kvörtum-kveinum yfir EKKI NEINU...

Þyrftir að taka uppá videó fimleikadrottninguna,svo við sjáum meistarann tilvonandi:)

Hlýjar kveðjur....

Halldór Jóhannsson, 16.5.2010 kl. 17:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband