Leita í fréttum mbl.is

Tvö skref áfram, eitt aftur á bak.

Maístarnan mín er núna búin að krampa tvo daga í röð og það er alveg hrikalega erfitt að byrja upplifa þetta aftur eftir svona langan tíma, hún er líka farin að vera svo hrædd sjálf.  Kvartar undan skjálftanum í höndunum sinum sem ég skil mjög vel enda er hann mikill og væntanlega mjög óþægilegt.  Flogalyfjaskammturinn hennar var stækkaður í gær vegna krampana en þess hefur ekki þurft í LANGAN tíma.  Við erum að upplifa ofsalega erfitt tímabil sem ég vona svo heitt og innilega sé að fara ljúka.  Þetta hefur reynt alltof mikið á og maður er að reyna vera svo sterk fyrir Maístjörnuna mína og að sjálfsögðu hin líka en það er ekki alveg að takast.  Auðvidað grætur maður þegar maður sér hana í krampa og hún er að kveljast enda er engin skömm að gráta yfir því og mér finnst alltílagi að börnin mín sjái að ég sé leið en bara að þau viti afhverju.

Ég er orðin gjörsamlega úrvinda af þreytu, máttlaus, óglatt, verki allsstaðar og svo lengi mætti telja.  Já þetta sýgur úr manni ALLT en auðvidað verð ég að standa upprétt fyrir Maístjörnuna mína(og hin) en ég þrái samt aðeins að komast í burtu en það er ekki nema vika þanga til móðir mín ætlar að flytja inná heimilið mitt og við Skari ætlum að stinga af í sólarhring. Get ekki beðið!!

Haldiði ekki að Maístjarnan mín hafi farið í skólann í morgun, ég skyldi hana eftir í klukkutíma og það gekk alveg glimrandi og meir að segja "reif hún aðeins kjaft" og þá veit maður að hún er öll að koma til enda var kennarinn hennar rosalega ánægð að heyra í ÞuríðiGrin.  Hún er líka aðeins að skipa mér fyrir sem er ansi skemmtilegt að heyra.

Ég VEIT að hún er öll að koma tilbaka eftir þessar erfiður vikur og svo ÆTLUM við að fá góðar fréttir 1.febrúar það er bara ekkert annað í boði.

Núna ætlum við mæðgur að fara undirbúa afmælishelgina þar sem Theodór minn er að halda uppá 5 ára afmælið sitt og á sjálfan afmælisdaginn sunnudaginn 23.janúar ætlar hann að bjóða þremur bestu vinum sínum til sín í sinn uppáhalds mat grjónagraut og svo ætlar hann að bjóða þeim í bíó.  Þannig það er mikill spenningur á heimilinu enda alltaf gaman að eiga afmæli.W00t


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir að gefa mér lykilorðið.  Hugsa reglulega til ykkar, sérstaklega þegar ég kíki á bloggið hjá litlum krummafrænda :)

Þið eruð í bænum mínum.

Ásta (IP-tala skráð) 20.1.2011 kl. 11:26

2 identicon

Það hlýtur að vera alveg hræðilegt að horfa á upp hetjuna byrja að krampa aftur og ég dáist að endalausum krafti ykkar en það er víst ekkert annað í boði.  Þið eruð samt öll hetjur þó að það reyni mest á Þuríði Örnu.  Það á eftir að vera rosalega gott fyrir ykkur Óskar að komast í burtu eftir viku þó svo að það verði bara sólarhringur en það getur samt skipt sköpum.  Farið vel með ykkur og njótið afmælishelgarinnar.

Hrafnhildur Ýr (IP-tala skráð) 20.1.2011 kl. 11:41

3 identicon

Vona að þessu ljúki sem fyrst með krampana.

En frábært að hún lætur heyra í sér.

Njótið þess að vera 2 þó það sé ekki nema sólarhringur. Látið þreytuna líða úr ykkur, því börnin eru í góðum höndum.

Við Theodór værum góð saman með grjónagrautinn.

Og Blómarósin verður örugglega dugleg að hjálpa ömmu sinni með systkynin sín. Hún er svo dugleg.   

Að lokum, Áfram Ísland!!

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 20.1.2011 kl. 12:16

4 identicon

Trú von og kærleikur....og ljós í hjarta þið eruð sannarlega í bænum mínum og sérlega litla maístjarnan... Takk fyrir að leyfa mér að fylgjast með góða afmælishelgi...

Bryndís J (IP-tala skráð) 20.1.2011 kl. 13:02

5 identicon

Æj eru kramparnir komnir aftur, elsku vínkona. Hún er orðin svo stór stelpan ykkar og orðin miklu meðvitaðri um hvað er að gerast. Skil þig svo vel að vera þreytt og þú verður að passa þig líka dúllan mín. Hlakka mikið til að hitta ykkur um helgina og bara knúsa ykkur.

Stórt knús til ykkar og við hugsum til ykkar ALLTAF.

Brynja (IP-tala skráð) 20.1.2011 kl. 13:16

6 identicon

vona að þetta fari að lagast, maður fær sting við að lesa þetta :/

batakveðjur

Jóhanna (IP-tala skráð) 20.1.2011 kl. 14:17

7 Smámynd: Guðrún unnur þórsdóttir

Guðrún unnur þórsdóttir, 20.1.2011 kl. 18:03

8 Smámynd: Adda Laufey

Adda Laufey , 20.1.2011 kl. 20:41

9 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Heyrðu - þessi hugmynd að bjóða í grjónagraut og bíó er alveg brilljant - töffari að mínu skapi hann Theodór.

Kveðjur til ykkar allra

Hólmfríður Bjarnadóttir, 20.1.2011 kl. 21:00

10 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Það VERÐUR að ganga vel 1. febrúar

Hólmfríður Bjarnadóttir, 20.1.2011 kl. 21:01

11 identicon

baráttu kveðjur til ykkar og hef ykkur í mínum bænum

Sigrún (IP-tala skráð) 20.1.2011 kl. 22:42

12 identicon

...

Maístjarnan ótrúlega...endalaust dugleg.:)það er nú gott að geta rifið aðeins kj...:)

Öfund nú....Grjóni með SÚRU SLÁTRI gerist ekki betra..:)

Vona að þið eigið góða helgi:)

Halldór Jóh. (IP-tala skráð) 21.1.2011 kl. 05:32

13 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 21.1.2011 kl. 11:41

14 identicon

Baráttukveðjur til ykkar

Anna (IP-tala skráð) 21.1.2011 kl. 13:16

15 identicon

Mér finnst ekki skrítið að þú grátir við að horfa upp á hana í krömpum, ég græt bara við að lesa þetta !

Það hljóta að koma góðar fréttir 1. feb :)

Hugsa til ykkar, gangi ykkur vel og reynið að hvíla ykkur ....

Knús á ykkur öll

Svala (IP-tala skráð) 21.1.2011 kl. 14:00

16 identicon

Þið eruð algjörar hetjur! Ég les alltaf bloggið ykkar og hugsa oft til ykkar! Þið eruð í bænum mínum á hverju kvöldi elsku fjölskylda.

 Guð veri með ykkur!

Erla Gunnlaugsdóttir (IP-tala skráð) 22.1.2011 kl. 14:10

17 identicon

Gott að lesa góðar fréttir og nú skal þetta koma :) Passaðu upp á sjálfa þig duglega mamma og biddu um hjálp hjá vinum og vandamönnum það er svo mikilvægt fyrir þig og Skara.  Tendrum ljósin

Kærleiksknús 4 barna mamman

4 barna mamman (IP-tala skráð) 22.1.2011 kl. 18:17

18 identicon

Elsku Áslaug,

þú þekkir mig ekki neitt og ég þekki þig ekki neitt, þó mér finnist ég vera farin að þekkja ykkur fjölskylduna eftir að hafa fylgst með ykkur hérna á blogginu þínu. Ég verð að segja að ég dáist að þér og fjölskyldu þinni, þið eruð svo dugleg og falleg fjölskylda og þið eigið aðeins það besta skilið. Ég fæ sting í hjartað að heyra slæmar fréttir af litlu hetjunni ykkar og ég get engan veginn sett mig í ykkar spor, en ég get þó rétt ímyndað mér hversu sársauki ykkar hlýtur að vera mikill. Ég hugsa oft til ykkar og bið fyrir ykkur. Þið eruð frábær.

Kærleikskveðja

Lena

Lena (IP-tala skráð) 26.1.2011 kl. 14:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband