Leita í fréttum mbl.is

Vonin

- Þegar að þér er þrengt og allt hefur snúist gegn þér, þar til þér um síðir finnst að þú munir ekki þola við mínútu lengur 
- þá máttu ekki gefast upp, því einmitt þá er komið að þeim stað og stund þegar breyting mun verða á.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Elsku Áslaug Ósk !  Kolbrún mín var í magaspeglun í morgun og hún var algjör óhemja og grét mikið, en var samt duglegust    Ég gat ekki annað en hugsað stöðugt til ykkar og hversu mikið er á ykkur lagt og við mæðgurnar vorum að tala um hvað hún Þuríður Arna er ótrúlega dugleg og sterk   Ég finn svo til með ykkur þessa dagana og bið til Guðs að hann létti ykkur sporin. Guð veri með ykkur - risa knús og klem frá okkur mæðgum til ykkar allra

Þórdís tinna (IP-tala skráð) 2.2.2007 kl. 13:47

2 identicon

Guð gefi ykkur öllum styrk. Þið eruð í bænum mínum.

Álfheiður (IP-tala skráð) 2.2.2007 kl. 17:51

3 identicon

Var að kveikja á kerti fyrir Þuríði Örnu og ykkur öll, Guð styrki og veri með ykkur...

KV ókunnug úr Eyjum

Nía (IP-tala skráð) 2.2.2007 kl. 19:55

4 identicon

Elsku þið öll ! Guð veri með ykkur og styrki, verndi litlu stúlkuna ykkar og hjálpi ykkur að takast á við þetta allt, gefi Þuríði orku og kraft til að takast á við allt það sem á hana er lagt. Þið sem komið hér munið eftir kertasíðunni hennar, en kveikjum líka heima. 

Gunna Jóh (IP-tala skráð) 2.2.2007 kl. 22:52

5 identicon

Ég kveikti á kerti fyrir ykkur finnst ekki veita af megi Guð vernda ykkur og blessa. Gangi ykkur vel og hugsið um ykkur líka svo að þið hafið krafta og styrk í þessari baráttu. Bestu kveðjur

kona að norðan (IP-tala skráð) 2.2.2007 kl. 23:18

6 identicon

Bið til guðs um að hann taki á honum stóra sínum fyrir hana yndislegu Þuríði Örnu og ykkur öll hin líka. Knús og kossar til ykkar allra. Kv. Kristín Amelía.

Kristin Amelía (IP-tala skráð) 3.2.2007 kl. 11:21

7 identicon

Þið þekkjið mig ekki kem hér reglulega við og athuga með litla gullmolann ykkar, kveikti á kerti fyrir ykkur öll og hef fallegu dóttur ykkar með í mínum bænum.

Kv. önnur ókunnug úr eyjum

HB (IP-tala skráð) 3.2.2007 kl. 12:30

8 identicon

Elsku Áslaug! Sendi ykkur knús og fullt af kossum. Gangi ykkur vel.

Kveðja, Oddný 

oddný (IP-tala skráð) 3.2.2007 kl. 14:00

9 identicon

"Allt sem þér biðjið í bæn yðar munið þér öðlast ef þér trúið"

Kæra Áslaug, ég þekki ykkur ekki neitt en kem samt inn hérna daglega og leit eftir fréttum af Þuríði Örnu. Ég græt oft þegar ég les hversu erfitt þetta er og alla þjáninguna sem hún þarf að þola. 'Eg hugsa oft til ykkar og bið fyrir ykkur. Vona að fallegu stelpunni þinni eigi eftir að batna. Hafið það gott. Kveðja norðan af Akureyri Þóra. P.S þetta gullkorn hérna fyrir ofan kveðjuna hjálpaði mér mikið í gegnum erfiðleika sem ég fór í gegnum fyrir mörgum árum.

Þóra Björg Ottósdóttir (IP-tala skráð) 3.2.2007 kl. 18:51

10 identicon

 

Elsku Þuríður Arna mín..  Ég vona að Þér batni. 

  BESTU KVEÐJUR   KOLBRÚN            

Kolbrún Ragnheiður (IP-tala skráð) 3.2.2007 kl. 19:41

11 identicon

Elsku fjölskylda!

Ég þekki ykkur ekki en er vinkona Þórdísar og fylgist með ykkur á hverjum degi. Haldið áfram í vonina!

Sendi ykkur styrk og hlýju!

Jóhanna

Jóhanna (IP-tala skráð) 3.2.2007 kl. 20:00

12 identicon

Englar allir saman sitji

Sólargeisla senda til þínGóðar vættir ávallt vitji

Vernd’ og blessi sporin þín.

(Á.E.G)

 

Elsku fjölskylda sendi ykkur baráttukveðjur !
Hef fylgst með ykkur í svolítin tíma....veit að snúllan ykkar er baráttujaxl !!!

 

Kveðja Ásdis Erla

Ásdís Erla (IP-tala skráð) 3.2.2007 kl. 22:40

13 identicon

Það var svo gott að hitta þig og Oddnýju Erlu í dag Áslaug mín.

kv Unnur

Unnur Einarsdóttir (IP-tala skráð) 3.2.2007 kl. 22:44

14 identicon

já , ég er líka ein af þeim sem kíki á bloggið þitt , Áslaug á hverjum einasta degi.  Meigi öll góð öfl umvefja ykkur núna. 

 " Getur verið , að sameinaðar sálir geti einvherju breytt " ´.. ég er ein af þeim sem trúi því og ætla einmitt núna að kveikja á kerti fyrir Þuríði þína og taka smá stund í að senda henni og ykkur öllum góða og fallega strauma.

Kær kveðja , Lóa

Lóa (IP-tala skráð) 3.2.2007 kl. 23:49

15 Smámynd: Júlíus  Garðar Júlíusson

Þó þung séu oft sporin á lífsins leið,og ljósið svo skelfing lítið.Skaltu eiga þér von sem þinn vin í neyð,það virkar, en virðist skrýtið.Því vonin hún vinnur gegn myrkri og hvíða,og veitir þér styrk sinn, í stormi og byl.Sjá ljósið mun stækka, og þess skammt er að bíða,að í sólskinið sjáir, ég veit það er til.

Júlíus Garðar Júlíusson, 4.2.2007 kl. 11:23

16 identicon

Ég þekki ykkur ekki, en fylgist með ykkur og litlu perlunni ykkar í gegnum Þórdísi Tinnu, guð gefi ykkur von og styrk í baráttunni, vonandi getið þið séð ljósið og fundið stuðning af hvort öðru. 

BKP (IP-tala skráð) 4.2.2007 kl. 12:37

17 identicon

Elsku fjölskylda

Guð gefi ykkur styrk, von og þrótt í þessari erfiðu baráttu.

Sendum ykkur kossa og knús

Kkv.  Martha og krúttin

Martha Jörundsdóttir (IP-tala skráð) 4.2.2007 kl. 19:23

18 identicon

Guð gefi ykkur styrk, von og trú, Guð gefi ykkur þrótt og bros. Elsku fjölskylda, bið fyrir ykkur, litlu hetjunum Þuríði, Oddnýju Erlu og Theódór. Og ykkur elsku hjón, gangi ykkur vel.

Sigga Gulludóttir

Sigga Gulludóttir (IP-tala skráð) 5.2.2007 kl. 15:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband