29.3.2011 | 11:29
Tvær vikur - pása þanga til
Í dag eru tvær vikur í rannsóknir Maístjörnu minnar og ég gæti ekki verið kvíðnari. Sex og hálft ár af þessum HELVÍTIS veikindum, við ætluðum okkur að losa okkur við þetta fyrir fullt og allt fyrir tæpu ári en því miður varð ekkert úr þeim draumi okkar. Ég er með í maganum ALLA daga, ég þrái ekkert heitara en sjá Maístjörnuna mína eins heilbrigða og hægt er, ég öfunda (á góðan hátt) og samgleðst að sjálfsögðu líka alla þá foreldra sem losna undan þessum "pakka", ég ætlaði mér ekki að vera kynnast fleiri foreldrum sem eru í sama pakkanum (þó svo þau eru öll með tölu alveg yndisleg) og við en geri það samt. Mig langar ekki að upplifa meira spítalalíf, mig langar bara að komast út og vera "venjulegt" foreldri og vera með þessar venjulegar áhyggjur. Vera frekar leið yfir því að þurfa senda börnin mín í frístundarheimilið eftir skóla og stressa mig yfir því hvernig ég eigi að redda næstu keyrslu á æfingu. Já ég er hundleið yfir þessu og er ofsalega illt í hjartanu yfir ástandinu á Maístjörnunni minni. Hún krampar á hverjum degi og oft eru það tveir á dag sem er tveimur of mikið.
Maístjarnan mín rýkur uppí hita þessa vikurnar og svo daginn eftir er hún hitalaus, veit ekkert afhverju?? Hún er hitalaus í dag en samt ótrúlega slöpp og þreytt, vill bara fara á spítalann og verður reið ef ég neita henni. Hún vill bara vera þar sem henni líður best.
Ég ætla að taka mér pásu frá blogginu eða þanga til hún fer í rannsóknir sínar, ég verð of leið að koma hingað inn. Sem sagt rannsóknir 12.apríl og þá kem ég aftur til að segja frá niðurstöðum en ég lofa samt engu.......
Ætla að enda færsluna mína af honum Theodóri mínum sem ákvað að fá sér sumarklippingu sína í gær enda kominn með svona líka mikið hár.
Bestu kveðjur frá Slaugunni sem fær ekkert útur því að koma hingað inn nema kvöl og pínu. SKJÁUMST aftur eftir 12.apríl.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
343 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Úff... Þetta ætlar engan enda að taka hjá ykkur. Vona svo sannarlega að allt fari upp á við núna hjá ykkur og hérna eru allir fingur í kross í von um góðar niðurstöður úr rannsóknunum 12. apríl.
Hafið það gott þangað til...
Vorkveðjur frá DK
Begga Kn. (IP-tala skráð) 29.3.2011 kl. 11:41
úff.. þetta er svo erfitt og ósanngjarnt. Knús á þig! Vona að þið fáið góðar niðurstöður 12.apríl.
Guðrún ókkunug (IP-tala skráð) 29.3.2011 kl. 12:05
Megi allir englar alheims leggjast á eitt með að gefa ykkur góðar niðurstöður næst svo lífið geti brosað aftur við ykkur öllum!
Rut (IP-tala skráð) 29.3.2011 kl. 12:21
Æ elsku fjsk Gangi ykkur sem allra allra best.
Berglind (IP-tala skráð) 29.3.2011 kl. 12:43
Elsku duglega Áslaug Ósk
Þú gerir þetta alveg eins og þú vilt og engan vegin öðruvísi.
Við sem fylgjumst með eigum eftir að sakna þess að heyra ekki frá ykkur en vonandi koma fréttir frá þér eftir 12. apríl. Og Guð veit að ég bið um að það verði góðar fréttir.
Megir þú svo hafa kraft til að halda áfram að fara í ræktina til að auka þrekið þitt og næra fallegu jákvæðu sálina þína.
Sendi svo stærsta Risaknúsið í húsið
Og líka marga verndarengla
frá Sólveigu
Sólveig (IP-tala skráð) 29.3.2011 kl. 13:29
Kristín (IP-tala skráð) 29.3.2011 kl. 13:35
Gangi ykkur sem allra best....hugsum til ykkar á hverjum degi, kveikjum á kerti og sendum hljýja strauma...vonumst eftir góðum fréttum....
Vildi svo sannarlega geta gert eitthvað til að hjálpa til.....
Bestu kveðjur
Anna
Anna (IP-tala skráð) 29.3.2011 kl. 14:18
Knús!!!!
Lilja ( ókunnug ) (IP-tala skráð) 29.3.2011 kl. 15:08
Sendi ykkur alla mína bestu strauma og fallegustu hugsanir!!!
Vona að þú hafir krafta áfram til þess að fara í ræktina og rækta sjálfa þig!
Kveiki á kertum þann 12 og sendi extra góða strauma þann dag!
Valgý Arna (IP-tala skráð) 29.3.2011 kl. 15:40
Ég vona svo sannarlega að þið fáið góðar fréttir í april. Ég þekki ykkur ekki en ég hugsa samt oft um ykkur.
Áslaug
Áslaug Einarsdóttir (IP-tala skráð) 29.3.2011 kl. 16:24
Gangi ykkur ævinlega sem allra best. Mér verður oft hugsað til ykkar og hversu vel þið staðið ykkur í þessum miklu erfiðleikum sem eru á ykkur lagðir. Ég trúi því að næstu fréttir af ykkur verði góðar fréttir og reyndu að hugsa örlítið um sjálfa þig.
Fjögurra_dætra_móðir (IP-tala skráð) 29.3.2011 kl. 16:59
sendi ykkur fullt fangið af gleði og góðum hugsunum.
kv gþ
gþ (IP-tala skráð) 29.3.2011 kl. 17:00
Hugsa til ykkar og sendi endalaust af baráttustraumum! vona að þið fáið góðar fréttir 12.apríl !
knús!
Sigrún Helgadóttir (IP-tala skráð) 29.3.2011 kl. 17:16
Gangi ykkur sem allra best og ég vona að þið fáið góðar niðurstöður.
Kristín (IP-tala skráð) 29.3.2011 kl. 17:59
Sendi ykkur mínar hlýjustu hugsanir og bið þess að niðurstaðan verði góð.
Knús (vildi óska að ég gæti gefið ykkur alvöru knús)
Lilja (ókunnug) (IP-tala skráð) 29.3.2011 kl. 18:04
allar góðar vættir veri með ykkur og gefi góða heilsu á elsku stelpunni ykkar, óska að all fari vel og ykkur líði betur, ljúfar kveðjur og góðar óskir.
Didda ókunn (IP-tala skráð) 29.3.2011 kl. 18:10
'Eg vona að ykkur gangi vel þann 12. apríl, þið eigið það svo sannarlega skilið að fá góðar niðurstöður og ég er viss um að þannig verður það.
Kær kveðja
Elín.
Elín (ókunnug) (IP-tala skráð) 29.3.2011 kl. 19:47
Guð veri með ykkur og gangi ykkur vel...þið verðið í bænum mínum..
bryndís j (IP-tala skráð) 29.3.2011 kl. 19:52
Gangi ykkur rosa vel. Hugsa hlýtt til ykkar. Knús
Oddný Hróbjartsd (IP-tala skráð) 29.3.2011 kl. 20:21
Kæra Áslaug
Gangi ykkur sem allra, allra best. Hugsa til ykkar og vonandi fáið þið góðar fréttir.
knús til ykkar
Kristín S
Kristín (ókunnug) (IP-tala skráð) 29.3.2011 kl. 20:31
KÆRLEIKSKNÚS og GÓÐAR ÓSKIR kæra fjölsk<3..
Eigið allann minn stuðning<3
Halldór Jóh. (IP-tala skráð) 29.3.2011 kl. 20:38
Skil þig vel - vona svo heitt og innilega að það komi góðar fréttir 12. apríl. Knús í hús
Hólmfríður Bjarnadóttir, 29.3.2011 kl. 20:58
Góðar kveðjur til ykkar kæra fjölskylda, bið fyrir ykkur og sendi góðar kveðjur.
Hjördís Blöndal (IP-tala skráð) 29.3.2011 kl. 21:08
Æ, hvað ég skil þig. En við sem fylgjumst hér með ykkur, ætlum að leggjast á bæn og 12.apríl SKAL verða GÓÐUR dagur hjá YKKUR!!!!!
Þangað til, hafið það sem allra, allra best !!!
Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 29.3.2011 kl. 22:22
Kæra Áslaug, vona svo heitt og inninlega að fréttirnar þann 12. apríl verði ekkert annað en góðar.
Þórleif (IP-tala skráð) 30.3.2011 kl. 05:52
Kæra fjölskylda
Gangi ykkur sem allra best, ég veit að næstu tvær vikur verða ekki auðveldar. Ég mun hafa ykkur í bænum mínum og vona að þið fáið góða niðurstöðu 12. apríl.
Ég vil hvetja alla sem koma inn á þessa síðu að kveikja reglulega á kerti fyrir Þuríði Örnu.
Kveðja - Helga
Helga (IP-tala skráð) 30.3.2011 kl. 06:48
Þú ert orðin uppgefin elsku Áslaug mín og það fyrir löngu, skal engann undra það.
Ég skil það vel að þú fáir ekkert út úr því að koma hingað inn, því að allt sem við skrifum, allar bænir,straumar, og hlýjar kveðjur laga ekkert hjá elskunni litlu
Guð hvað ég vildi óska að hún Þuríður og þið fjölskyldan væruð laus við þessa hræðilegu lífsreynslu sem enginn ætti að þurfa að upplifa, sérstaklega börnin sem ættu að vera frísk í skólanum og úti að leika, ömurlega ósanngjarnt líf!
Ég veit ekki hvað ég á að segja, ég hugsa til ykkar kæra fjölskylda og óska þess af öllu hjarta að þið fáið góðar fréttir 12 april
Sigga (IP-tala skráð) 30.3.2011 kl. 08:07
Æii ég gleymdi að segja að hann Theodór væri flott rokkstjarna Fallegur drengurinn þinn Áslaug mín eins og öll ykkar börn
Sigga (IP-tala skráð) 30.3.2011 kl. 08:10
Það er ótrúlega mikill styrkur að hitta fólk í sömu sporum eða sem hefur verið í sömu sporum og maður sjálfur.Þó ég óski engum þess að vera í þínum eða mínum sporum.
Guð blessi ykkur og styrki
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 30.3.2011 kl. 08:59
Elsku fjölskylda ég sendi ykkur orkustrauma og ósk um betri líðan. Krossa fingur og bið fyrir góðum niðurstöðum hetjunni þinni til handa.
Ellen (IP-tala skráð) 30.3.2011 kl. 15:03
Gangi ykkur vel, kærleikskveðja.
Jóhanna (IP-tala skráð) 30.3.2011 kl. 15:17
Gangi ykkur allt að óskum. Sendi ykkur hlýjar hugsanir.
Anna Þorgrímsdóttir (IP-tala skráð) 30.3.2011 kl. 21:46
Elskulega fjölskylda !
Vona svo innilega að niðurstöður verði ykkur hliðhollar, sendi mína orkustrauma til ykkar kæra fjölskylda og gangi ykkur vel í þessu stríði sem ekki er auðvelt að eiga við.
Edda (IP-tala skráð) 31.3.2011 kl. 05:14
Knús og gangi ykkur vel ......
Auður L (IP-tala skráð) 31.3.2011 kl. 11:07
Ég hugsa til ykkar...
Valdís (IP-tala skráð) 31.3.2011 kl. 11:21
Gott að sterarnir eru komnir í frí (vonandi ævilangt) Þið verðið áfram í bænum mínum Áslaug mín og bið fyrir góðum niðurstöðum 12.apríl. Kveiki á kerti fyrir kraftaverka-kjelluna
Kærleiksknús
Sigrún og co (IP-tala skráð) 31.3.2011 kl. 11:58
Elsku Áslaug, um að gera að koma ekkert hér inn líði þér illa með það. Finndu bara út þá hluti sem kvelja minna og gerðu þá.
Ragnheiður , 31.3.2011 kl. 23:17
Elsku Áslaug, ég hugsa til ykkar á hverjum degi og lít hér inn á síðuna þína af og til. Vona að 12 apríl verði ykkar gleði og hamingjudagur. Risaknús til þín og hlýir straumar. Gangi ykkur vel
Áslaug
Áslaug (ókunnug) (IP-tala skráð) 1.4.2011 kl. 08:00
Elsku öll
Bara að senda til ykkar kærleikskveðju og óskir um að þið hafið það gott og njótið helgarinnar.
Hugsa til ykkar alla daga og mun gera til 12 apríl og lengur, með von um að komi góðar niðurstöður
frá Sólveigu
Sólveig (IP-tala skráð) 1.4.2011 kl. 14:09
Stórt knús
kv. Dagbjört j
Dabjört Jakobsdóttir (IP-tala skráð) 1.4.2011 kl. 19:31
Elsku Áslaug.
Þú gerir auðvitað nákvæmlega eins og þú vilt sjálf varðandi bloggið. Við hugsum samt til ykkar. Mikið vildi ég að ég gæti gert eitthvað fyrir ykkur.
Hjartans kveðjur,
Hanna
Hanna (IP-tala skráð) 1.4.2011 kl. 22:46
knús til ykkar allra
Guðrún unnur þórsdóttir, 2.4.2011 kl. 15:48
Kæra fjölskylda! Megi Guð og blessa ykkur öll í gegnum þessa erfiðu tíma.
kv
Hulda
hulda m (IP-tala skráð) 2.4.2011 kl. 23:08
Kæra fjölskylda,
ég bið Guð og alla verndarengla að hjálpa ykkur í gegnum þessa raun.
Bestu kveðjur
Kristín
Kristín (ókunnug) (IP-tala skráð) 3.4.2011 kl. 17:05
Kæra fjölskylda. Það er mikið á ykkur lagt, ég vona innilega að þið farið að sigra þetta stríð, ég sendi orkustrauma og stuðning til ykkar.
Bestu kveðjur
Laufey (ókunnug) (IP-tala skráð) 5.4.2011 kl. 09:18
Ég bið þess og óska að þið fáið góðar fréttir í næstu rannsókn
Linda (IP-tala skráð) 5.4.2011 kl. 16:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.