13.7.2011 | 22:01
#$#&&/$&%##% (blót dagsins)
Helvítis fokking fokk (nei ég ætla ekki að afsaka mig) en Maístjarnan mín er farin að krampa meira en venjulega, þetta helvíti er eitthvað að aukast hjá henni sem er helvíti SKÍTT! Síðustu dagar hafa verið dáltið verkjaðir hjá henni, miklir hausverkir og oft grætur hún vegna kvala og þegar Maístjarnan mín grætur þegar henni verkjar, þá verkjar henni MJÖG MIKIÐ. Einsog henni var farin að líða betur, kramparnir voru farnir að minnka og kvartaði nær aldrei undan hausverk svo það er spurning hvort bjúgin séu eitthvað þrýsta á þar sem sterarnir eru að renna af henni? Vonandi bara þá er allavega ekkert illt að ske þarna "uppi". Mér finnst að sjálfsögðu ofsalega sárt og erfitt þegar hún krampar og vill helst ekki að fólk verði vitni af því, því þeir eru ekki vanir að sjá svona fá nett sjokk en Maístjarnan mín krampaði í síðustu viku þegar við vorum stadda við kassann í Bónus og það er því miður ekkert hægt að leyna því. Hún byrjar á því að öskra og svo kemur krampinn, kippir, augun verða einsog þegar við fáum störum og smá kippir þar, virkilega erfitt! Hún fékk einmitt krampa í kvöld og var ekki lengi að grípa utan um hálsinn á Gull-drengnum mínum sem kom svo hlaupandi fram til að láta vita en hún vill einmitt finna að einhver sé að passa hana þegar hún ræður ekki við sig.
Gull-drengurinn minn hefur átt dáltið erfitt síðustu daga vegna hennar, hann vill ekki sofna einn, grætur og segist vera hræddur og fengum það loksins uppúr honum að hann væri hræddur að eitthvað kæmi fyrir Þuríði sína. Hann hefur átt erfitt með skapið sitt undanfarnar vikur hérna heima og við viljum "kenna" aðstæðunum hérna heimilinu um svo það er spurning um að fara senda hann líka í einhverja "meðferð" einsog systir (Blómarósin) hans er í?
Það er virkilega erfitt að horfa á barnið sitt svona veikt einsog Maísjarnan okkar eða horfa hin vera kvalin í hjartanu vegna veikinda stóru systir. Þau eru alveg jafn hrædd og við og hræðslan mun ALDREI fara. En við reynum ekki að hugsa mikið um framhaldið fyrr en í byrjun sept þegar hún fer í næstu rannsóknir sínar þess vegna reynum við ALLTAF að hafa eitthvað til að hlakka til einsog komandi helgi sem ég VEIT að verður ÆÐISLEG fyrir okkur ÖLL.
Takk fyrir allar kveðjurnar, þið eruð yndi.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
266 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 13.7.2011 kl. 22:17
Já þú þarft svo sannarlega ekki að afsaka þig elskuleg<3
Sendi góða strauma...til YKKAR ALLRA...
Þau veikjindalausu mega ekki gleymast,þið hafið svo sannarlega staðið ykkur vel og þétt við bakið á ykkar börnum..
Kærar kveðjur...
Halldór Jóhannsson, 13.7.2011 kl. 22:20
Sendi ykkur stórt faðmlag af góðum straumum, hugrakka fólk.
Kristín ókunnuga (IP-tala skráð) 13.7.2011 kl. 22:47
Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 14.7.2011 kl. 00:28
Ofsalega er erfitt að lesa þetta, ég veit hins vegar að þið finnið bestu leiðirnar og lausnirnar fyrir drenginn.
Eðlilega hefur þetta áhrif á alla meðlimi þessarar góðu fjölskyldu.
Ragnheiður , 14.7.2011 kl. 05:50
Ferlegt að það sé aldrei hlé á þessari baráttu. Ég dáist þó að ykkur að finna ykkur alltaf eitthvað skemmtilegt að gera saman þrátt fyrir erfiðleikana, margir væru löngu hættir að reyna. Leiðinlegt að heyra hvaða áhrif þetta hefur á hin börnin, þó það sé vel skiljanlegt. Vonandi finnið þið einhverja "meðferð" fyrir Gull-drenginn :-)
Baráttukveðjur - Helga
Helga (IP-tala skráð) 14.7.2011 kl. 07:57
Hugsa til ykkar. Eitt það óhugnalegasta sem hægt er að upplifa er að sjá fólk í flogakasti og þá einkum börn. Maður verður svo ósjálfbjarga og finnur vanmátt sinn. Þið standið ykkur frábærlega vel í þessum raunum. Þið getið borðið höfuðið hátt. Faðmlag og sumarkveðjur.
Bergrún (IP-tala skráð) 14.7.2011 kl. 08:57
Af heilum hug tek ég þátt í bölvinu og regninu með þér Áslaug fallega.
Geri það einmitt sjálf þegar mikið liggur við og það aðeins léttir á svo skrítið sem það nú er. Ýmist biður maður Guð fyrir sér og sínum eða bölvar hressilega, skrítin skepna mannskepnan.
Eins og ég hef svo oft sagt "álagið á ykkur er ekki mennskt" og þá er ég að tala um ykkur öll, þetta er hrikalegt hvert með sínum hætti.
En eins og ævinlega finnið þið út úr þessu með ykkar lagi sem er besta lagið hvar svo sem þið finnið kraftinn í það.
Knúsið extra stórt í dag eitt á mann frá Sólveigu





og svo eitt allsherjar fyrir hina í fjölskyldunni
Sólveig (IP-tala skráð) 14.7.2011 kl. 10:52
Stórt knús á ykkur
Steina (IP-tala skráð) 14.7.2011 kl. 11:36
leiðinlegt að heyra, sendi góða strauma og vona það besta.. fylgist með ykkur, þið eruð hetjur öll..knús
Eygló (IP-tala skráð) 14.7.2011 kl. 16:15
Æi elsku þið, það er ömurlegt hvað er alltaf lagt á ykkur endalaust:/ Nú hélt maður að hún myndi hætta að krampa og fara að líða betur. Maður getur aldrei skilið það sem þið eruð að ganga í gegnum en það er ekki erfitt að skilja að það hlýtur að vera heiftarlegt álag á ykkur öllum. Börnin ykkar upplifa meira en margir á þeirra aldri og axla meiri ábyrgð en jafnaldrar sínir. Þau eru svo heppin að eiga ykkur sem foreldra því þið passið svo vel upp á hvert og eitt þeirra.
Sendi ykkur stórt knús...
Kristín (IP-tala skráð) 14.7.2011 kl. 21:25
Guðrún unnur þórsdóttir, 15.7.2011 kl. 11:34
Úff ekki gott, tárin spruttu út þegar ég las þessa færslu, ég vona það líka svo heitt og innilega að það sé ekkert að gerast þarna uppi.
Stórt knús og fullt af bænum til ykkar
Linda (IP-tala skráð) 15.7.2011 kl. 13:09
Elsku þið öll, mínar hlýjustu hugsanir og kveðjur til ykkar, megi allir góðir vættir vera með ykkur og passa upp á ykkur.
Baráttukveðjur til ykkar allra :)
Guðný Heiðbjört (IP-tala skráð) 15.7.2011 kl. 13:21
sendi ykkur góðar kveðjur kæra fjolskilda
vonadi fer hetjuni litlu að liða betur og lika hinum hetjonum lika
þið eruð oll hetjur
kveðja tóta
Þórunn helga garðarsdóttir (IP-tala skráð) 15.7.2011 kl. 15:48
Kærleiksknús handa fallegri fjölskyldu c",)
Edda Hlíf Hlífarsdóttir (IP-tala skráð) 16.7.2011 kl. 00:20
Gullfallegu hetjur. Það er ekkert sem verkjar eins mikið og þegar börnin manns þjást. Baráttan er ekki auðveld en ástin sigrar það allt.
Skúmaskot tilverunnar, 16.7.2011 kl. 01:41
<3
Skúmaskot tilverunnar, 16.7.2011 kl. 01:42
Elskuleg...mikið er sárt að lesa og finna sársauka ykkar og ótta, vildi að ég gæti rétt fram hjálparhönd og látið þetta allt saman hverfa. Við skulum tendra ljósin og senda ykkur kærleika og góðar hugsanir. Allir sem kíkka hér við nú eru það kertin, bænin og það góða sem býr í hverju mannshjarta. Gangi ykkur vel og ég bið allt það góða að umverfja ykkur
Með kærleiksrisaknúsi 4 barna mamman
4 barna mamman (IP-tala skráð) 16.7.2011 kl. 20:01
Mig vantar orð akkúrat núna til að hughreysta ykkur, en þið megið vita að ég hugsa fallega til ykkar. gþ
gþ (IP-tala skráð) 16.7.2011 kl. 21:23
Æi elsku dúllan. Sendi ykkur stórt faðmlag og knús..... kveiki á kerti fyrir hana.
Jóhanna Hallb. (IP-tala skráð) 17.7.2011 kl. 22:43
Æ en leiðinlegt vonandi fer þetta að hætta ,knús
ég vildi að ég gæti gert eithvað kv Dagbjört
Dagbjört Jakobsdóttir (IP-tala skráð) 20.7.2011 kl. 13:10
Æ, elsku stelpan..þetta er hryggilegt að heyra. Held áfram að biðja fyrir henni og vona að þetta verði stutt krampatímabil og svo taki við betri tímar og bjartari hjá fallegu Maistjörnunni ykkar. Vildi óska að ég gæti eitthvað hjálpað ykkur..
Bergljót Hreinsdóttir, 20.7.2011 kl. 13:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.