15.8.2011 | 20:40
Þreyttar mæðgur
Ég er ofsalega þreytt, Blómarósin mín er þreytt og Maístjarnan mín er ennþá þreyttari. Sumarfríið okkar yndislega að klárast (væri til í að hafa það miklu miklu lengur með þeim) en við samt svo þreyttar. Hjartað í Blómarósinni minni er viðkvæmt, mikill kvíði í gangi sem er ofsalega erfitt og sárt að horfa uppá. Maístjarnan mín er mjög þreytt einsog ég sagði, hún vill mikið liggja fyrir og finnur það alveg sjálf hvenær hún vill loka sig af og hafa það rólegt. Ég sé hana ekki fyrir mér að vera "heilan" skóladag í vetur, um hádegi kemur að hennar rólega tíma. Hún vill t.d. ekki mikið fara með okkur í veislur því hún veit að þar verða engin rólegheit og auðvidað leyfum við henni að ráða ferðinni. Ef ég væri með hausverk flesta daga væri ég ekki að höndla einhver "brjáluð" partý. Hægri hendin hennar er "ekki til", hún hreinlega veit bara ekki af henni, alveg sama hvað við erum að reyna þjálfa hana en þá þýðir það ekkert. Við finnum alveg hvað hún er máttlaus þegar við erum að láta hana kreista okkur. Já þetta er frekar SKÍTT og við erum ofsalega leið hvað þessi barátta hennar er búin að taka langan tíma eða síðan okt'04 og Maístjarnan mín bara rétt níu ára gömul.
Rannsóknir hennar verða 8.sept eða seinkað um tvo daga, fengum hringingu frá spítalanum í dag til að tjékka hvort það væri ekki OK? Það skiptir ekki svo miklu máli tveir dagar til eða frá, magapínan verður bara lengur hjá okkur. Ég og Skarinn minn höfum alltaf gert e-ð helgina fyrir myndatökur, ég er að leggja höfuðið í bleyti og finna e-ð skemmtilegt og kósý að gera fyrir okkur.
Langar að enda á myndum frá Svíþjóð í fyrra eða þegar hún fór þangað í "gammahnífinn" og er ennþá að berjast við aukaverkanirnar af þeirri meðferð.
Hérna er verið að undirbúa hana fyrir "gammahnífinn", aldrei heyrist í henni þegar það er verið að sprauta hana. Hún er eiginlega farin að segja læknunum hvað þeir eigi að gera.
Ennþá stödd á "vöknun"
Nývöknuð og auðvidað var Blómarósin ekki lengi að koma og gleðja hana. En hún fékk að koma með okkur í þessa ferð þar sem þetta allt ferli er búið að taka mikið á hana og hafði miklar áhyggjur af systir sinni þegar hún vissi að hún ætti að fara í meðferð til Svíþjóðar en við vildum bara leyfa henni að sjá að þetta yrði alltílagi.
Það er mikill kærleikur á milli þeirra systra og það er sko ekkert skrýtið að hjartað í Blómarósinni minni geti verið oft mjög svo viðkvæmt sérstaklega ef hún er að krampa mikið eða bara mjög svo þreytt. Hún hefur bara áhyggjur af systir sinni.
Núna er ekkert annað í stöðunni en að reyna finna eitthvað skemmtilegt að gera og reyna hugsa um eitthvað annað en 8.sept sem verður frekar erfitt.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
33 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Knús í hús og kærleikskveðjur....
Halldór Jóh. (IP-tala skráð) 15.8.2011 kl. 21:43
Trú, von og kærleikur
Helga
Helga (IP-tala skráð) 16.8.2011 kl. 07:57
Elsku þið öll fallegu og duglegu en samt því miður "þreyttu"
Vont að geta ekki létt undir með ykkur í þessum erfiðu aðstæðum, ég hugsa einmitt svo oft þegar þú ert á þreyttu nótunum, hvernig stendur hún Áslaug í lappirnar í öllu þessu?, en sem betur fer þá gerir hún það og gott betur, bjartsýn í óttanum sem sker innan, ótrúleg hetja þar á ferð. Þá fer ég líka að hugsa um að eitthvað gott er að leiða hana áfram og hennar fólk, og það bara hlýtur að vera þannig, og það hlýtur að vera Guð, þó mér finnist alltaf að hann eigi að taka þessi veikindi með tilheyrandi álagi frá ykkur með lækningu á Þuríði fallegu og duglegu.
Bið Guð að finna með ykkur eitthvað gott að gera til 8.sept., sem dreifir huganum og svo EKKERT MINNA en góðar fréttir þá.
Þess óskar Sólveig með stóru knúsi og kærleikskveðjum.
Sólveig (IP-tala skráð) 16.8.2011 kl. 11:45
Hæ hæ...
Sendi ykkur fullt af orkustraumum frá DK :-)
Vona að þú finnir upp á einhverju skemmtilegu, fyrir ykkur Skara, að gera...
Orkustraumar og kærar kveðjur frá DK
Begga Kn.
Begga Kn. (IP-tala skráð) 16.8.2011 kl. 12:24
Hugsa til ykkar.
Halla (IP-tala skráð) 16.8.2011 kl. 20:20
Gott að þið átuð yndislegt sumarfrí saman og vonandi fer öllum að líða betur. Fór aðeins á ævintýrahólinn að knúsa Theodór minn í gær og mikið var gott að sjá hann :)
kv. Ella
Ella (grænu deild) (IP-tala skráð) 16.8.2011 kl. 21:21
ég mun hugsa til ykkar elskurnar mínar
Guðrún unnur þórsdóttir, 16.8.2011 kl. 21:44
Þið eruð hetjur ,ofboðslega eru börnin ykkar heppin að eiga ykkur sem foreldra því að margir væru búnir andlega og líkama ,en þið berjist áfram með ást , dugnaði og stolti ,þið eruð sannar hetjur og eigið allt það besta skilið .Stórt knús
kv Dagbjört
Dagbjört Jakobsdóttir (IP-tala skráð) 16.8.2011 kl. 23:25
Elskurnar,
Umfram allt er að gleyma ekki sér sjálfum í öllum þessum fórnum. Ef maður er ekki 100% gefur maður lítið af sér. Njótið þess að "eyða" tíma saman.
Karen Malmquist (IP-tala skráð) 17.8.2011 kl. 15:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.