28.8.2011 | 12:23
Þuríður Arna: "mamma, viltu gefa mér epli svo ég fái kraftinn minn"
Maístjarnan mín er búin að vera frekar hress síðustu daga. Hún er að njóta sín í skólanum, auðvidað er hún algjörlega búin á því á kvöldin eða þegar það líður á daginn og verður að fá sér smá kríu en hún er að njóta þess að vera til og vera innan um skólasystkinin sín. Síðustu þrjá daga er hún búin að krampa tvisvar sinnum, einsog eftir krampinn í gær var hún gjörsamlega búin á því og sofnaði innan nokkra mínúta frá krampanum. Hægri hendin hennar er ekki í mikilli notkun og hún finnur greinilega að það er ekki mikill kraftur í henni þar sem hún sagði þetta við mig í morgun "mamma viltu gefa mér epli svo ég fái kraftinn minn". Hún er einmitt alltíeinu byrjuð að vera dugleg að biðja um banana og fleiri ávexti því þá segist hún fá kraft en hún er ekki vön að vilja neitt af því.
Það styttist óðum í rannsóknirnar hennar (8.sept) og auðvidað erum við ótrúlega stressuð og kvíðin, það fer aldrei af manni. Þó svo við vorum búin að fá góðar fréttir fimm rannsóknir í röð þá breytist það ekki, við áttum t.d. að ekki von á því að hún væri að greinast aftur fyrir 14 mánuðum enda benti ekkert til þess.
Blómarósin mín er LOKSINS að blómstra í skólanum, síðasti vetur var hreint "helvíti" fyrir mig að horfa uppá hana óhamingjusama og ekki njóta sín í skólanum. Fara með hana hágrátandi í skólann fór alveg með mömmuhjartað og ég grét bara með henni. Fyrsta skipti segir hún að það er ótrúlega gaman í skólanum og hlakki til að fara aftur á morgun, bara gaman! Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað það er gaman að sjá hana blómstra svona.
Gull-drengurinn minn er farinn að taka nýja leikskólann í sátt, er bara orðinn fúll við mig ef ég kem of snemma að ná í hann sem er að sjálfsögðu bara gaman. Það kemst ekkert annað að hjá honum en fótbolti og aftur fóbolti, honum finnst ekki nóg að æfa tvisvar sinnum í viku og heimtar meir. Við ákváðum að taka Stöð2sport í mánuð bara fyrir hann svo hann gæti fylgst með sínu liði sem er Arsenal svo hann var ekki lengi að hringja í afa Hinrik í gær og bjóða honum að koma yfir og horfa með sér á þeirra lið í dag. Það er sem sagt ekki lengur barnaefni í sjónvarpinu BARA fótbolti, ekki allir sáttir með það.
Sjarmatröllið mitt er bara glaður einsog alltaf, elskar nýja leikskólann sinn og elskar að vera til. Frekar áyggjulaus einsog maður á að vera þegar maður er bara tveggja ára.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
33 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Guðrún unnur þórsdóttir, 28.8.2011 kl. 15:52
Æ hetjan mikla....hún er ótrúleg þessi elska...Megi þessir krampar hverfa hið fyrsta...
FRÁBÆRT að heyra með Blómarósina....og megi hún blómstra enn meir...
Eins með Gulldrenginn blessaðann... það er spurning að skella sér til Hr.Wenger og já kemur kanski ekki aftur,skrifar undir samning:):)
Er afinn þá broshýrari nú hmhm 3-1 yfir..
Fjölga Tv.....
Sjarmatröllið er bara já meir en Sjarmör..megi hann bara halda því áfram,og sleppa við það sem börnin eiga EKKI þurfa að hafa áhyggjur af...
Þið eigið BARA FRÁBÆR börn...og þið eruð bara meir en EINSTÖK...
Knús í hús...
Halldór Jóh. (IP-tala skráð) 28.8.2011 kl. 16:23
Sæl Áslaug
Mig langaði bara að segja þér það að ég rakst á þig á laugardaginn í búðinni Til sjávar og sveita en auðvitað þekki ég þig ekkert nema af blogginu... þó að mér finnist ég þekkja þig og var næstum búin að heilsa hahah en allavega þú lítur gordjöss út sé hvað þú hefur grennst og ert sæt og fersk.
kv.Munda
Guðmunda (IP-tala skráð) 29.8.2011 kl. 10:07
Kristín (IP-tala skráð) 29.8.2011 kl. 17:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.