Leita í fréttum mbl.is

Myndir og fleira....

PA223023 [1024x768]
Ljúft líf hjá Gull-drengnum mínum
PA233060
Sjarmatröllið mitt svona líka þreyttur og sofnaði svona.
PA233061 [1024x768]
Ég væri alveg til í að geta sofnað svona.LoL
PA213009 [1024x768]
Hérna er einn kjúklingaréttur eftir mig, mæli með því að þið skellið ykkur inná http://www.facebook.com/#!/pages/F%C3%B6studags-kj%C3%BAklingar%C3%A9ttir-%C3%81slaugar/132713156806763  Þessa facebook-síðu og "like-ið" og finnið ykkar uppáhalds kjúklingarétta-uppskrift og mæli sérstaklega með  því að þið prófið MINN rétt.Wink  Fyrsta uppskriftin sem ég bý til og ekki sú síðasta.

Annars er ágætt að frétta af fjölskyldunni en við skelltum okkur á Galdrakarlinn í Oz um helgina ásamt félögum okkar í SKB og skemmtum okkur frábærlega vel.  Mæli eindregið með þessari sýningu. 

Ég var reyndar að ná í Maístjörnuna mína í skólann en hún var frekar kvalin í höfðinu greyjið, í þetta sinn vona ég bara að hún sé að fá flensuna því þá veit ég ástæðuna fyrir verkjunum.  Hún er samt ágætlega hress þessar vikurnar.  Núna "dæli" ég bara í hana verkjastillandi og dekra aðeins meira við hana en venjulega.Tounge


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

æ hvað þetta eru flottar myndir , gaman af svona myndum af börnunum :)

verð að fara að prufa þessa rétti þína , geri það einhvern daginn ,

krossum putta að allt gangi vel 6 des , eigið góða daga ..

stóran kærleiksknús að austan

Dagrún (IP-tala skráð) 31.10.2011 kl. 20:21

2 identicon

Þessi börn eru algerir molar, já það er ekki taugaspennan þegar hægt er að sofna í þessari stöðu, en örugglega búið að afreka einhverjum ósköpum.

Gott að þið eruð í góða gírnum, verra með Stjörnuna en hún fær auðvitað flensur eins og aðrir, þó hún sé fáum lík stúlkan sú.

Risastóra knúsið frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 1.11.2011 kl. 15:49

3 Smámynd: Guðrún unnur þórsdóttir

Guðrún unnur þórsdóttir, 2.11.2011 kl. 17:54

4 identicon

Frábærar fréttir með hjólið. Til hamingju með það.

Hafið það sem best, verð að prófa réttinn þinn við tækifæri.

Góða helgi.

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 5.11.2011 kl. 11:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband