10.12.2011 | 10:00
"mamma ég ætla að biðja jólasveininn að gefa mér frí í skóinn"
Síðustu vikur erum við búin að finna það að viðkvæma Blómarósin okkar er alveg að brotna niður, hún er gjörsamlega búin á því bæði á líkama á sál. Þreytan er orðin mikil hjá henni, hún er bara ekki að "meika" að gera eitthvað og þá er nú mikið sagt um orkuboltann minn. Hún var úti að leika um daginn með frænku sinni, rosalega gaman að renna sér niður brekkur á snjóþotunni eða frænka hennar sá um að renna flestar ferðirnar þar sem hún sat mest megnis uppi og sagðist bara að vera svo þreytt.
Það er ekkert skrýtið að hún bogni líka því hvursu eðlilegt er það að 7 ára gamalt barn "þurfi" að sinna stóru systur þegar hún fær krampa ef foreldrarnir eru ekki nálægt?? Það er bara ekkert eðlilegt við það en það einmitt gerðist í morgun þegar Maístjarnan mín fékk tvo krampa með nokkra mínútna millibili. Skari var fljótur að stökkva fram þegar hann heyrði Maístjörnuna mína kalla á litlu systir að hún væri að fá krampa, ég veit líka alveg að blómið mitt finnst ekkert sjálfsagðara að sinna Stjörnunni sinni þegar hún fær krampa enda þekkir hún ekkert annað en þessi veikinda"súpa" er alveg að fara með hana. Rétt 2 ára gömul var hún farin að segja okkur þegar stóra systir var að fá krampa og hélt í hendinna hennar, Stjarnan mín getur líka alveg treyst á litlu systir að hún hjálpi henni í krampa. Það getur verið ofsalega erfitt að vera bara sjö ára gömul en "þurfa" að haga sér stundum einsog fullorðinn enda er hún ekkert 7 ára í þroska.
Ef það er einhver sem þráir jólafrí eða bara FRÍ þá er það Blómarósin mín og mikið rosalega er ég spennt þegar jólafríið skellur á í skólanum og mikið rosalega ætla ég þá að dekra við stelpurnar mínar. Blómarósin mín er komin með langan lista sem henni langar að gera með mömmu sinni og að sjálfsögðu reynum við að gera alla þá hluti.
En hún sagði við mig rétt áðan "mamma ég ætla að biðja jólasveinin að gefa mér frí í skóinn".
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
33 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Elsku stelpan ...
Ég fékk kökk í hálsinn við að lesa þennan póst ...
knús á ykkur öll og vonandi mun einn af sveinkunum gefa henni góðan frídag :):*
Sara Björk (IP-tala skráð) 10.12.2011 kl. 10:38
Já maður fær kökk í hálsinn að lesa..
Já aþð hlítur að finnast einn jólasveinn sem gefur henni og ykkur frí sem fyrst...
Guð veri með ykkur..
Halldór Jóh (IP-tala skráð) 10.12.2011 kl. 11:48
elsku barnið
ég vona að jóli gefi henni frí .knús til ykkar allra
Guðrún unnur þórsdóttir, 10.12.2011 kl. 17:29
Elsku, hjartans stúlkan
Eva (IP-tala skráð) 10.12.2011 kl. 18:00
Æ,æ hvað getur maður sagt?Kökkur og tár.
Mann langar bara að knúsa litlu Perluna ykkar.
Bestu kveðjur og óskir um betri tíma hjá ykkur,
þið eruð öll hetjur.
Halla fr.
Halla (IP-tala skráð) 10.12.2011 kl. 21:39
Ég verð orðlaus og finn bara svo til með ykkur. Guð gefi ykkur gleðilega jólahátíð með fríi frá e-m erfiðum uppákomum.
Ragna (ókunnug) (IP-tala skráð) 10.12.2011 kl. 22:10
Elsku stúlkan.. maður finnur til með ykkur. já það er mikið lagt á ykkur öll. Vona og óska þess heitt og innilega að þið fáið öll ykkar frí, frí frá þessum veikindum og það varanlegt frí!
Laufey (ókunnug) (IP-tala skráð) 10.12.2011 kl. 22:34
Fæ tár í augun við þennan lestur. Ykkar tími hlýtur að fara að koma. Jólakveðja til ykkar.
Bryndís Baldvinsd. (IP-tala skráð) 11.12.2011 kl. 00:30
Elsku fjölskylda. Guð gefi ykkur góð og gleðileg jól. Sérstakar kveðjur til duglegu telpnanna ykkar, þær eru engum líkar.
Sæunn ókunnug (IP-tala skráð) 12.12.2011 kl. 19:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.