Leita í fréttum mbl.is

Þakkir!

Í gærdag var bankað uppá hjá okkur og þar var einn af lesendum mínum og færði okkur þessar girnilegu rjómabolllur:

p2195129.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Kæra Sólveig, takk kærlega fyrir okkur - þær voru æðislega góðar og ekki amalegt að hafa fengið svona góðan eftirrétt í gærkvöldi eða í dag í kaffinu.Blush

Annars er Maístjarnan mín á fullu í uppbyggingu í sjúkraþjálfun á hestum og það styttist óðum í sjúkraþjálfunina á skíðum sem við erum rosalega spennt fyrir enda aldrei prófað áður.  Ég fór einmitt með cameruna áðan í tíma sem ég að sjálfsögðu mun setja inn hérna við tækifæri. Hún hefur ekki aftur fengið svona slæman krampadag einsog um daginn - sem betur fer.

Blómarósin mín er að selja afmæliskort eftir sjálfan sig (að sjálfsögðu) og ef þig langar að kaupa og styrkja hana í leiðinni þá geturu haft samband við mig aslaugosk@simnet.is.  En hún er að selja 10 kort/umslög í pakka á 1500 kr en henni langar svo mikið í flotta fimleikaboli sem kosta ekkert rosalega lítið svo við sögðum henni að hún þyrfti þá að safna sér fyrir honum/þeim og þá fengum við þessa flottu hugmynd (að okkar mati) að hún þyrfti að hanna afmæliskort og selja.Grin  Það er nefnilega ekkert rosalega ódýrt að eiga barn í fimleikum sérstaklega ef það er að æfa mikið en hérna eru myndir af kortunum:
p2175057.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

p2175058.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

p2175059.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það er hægt að fá blandaðan pakka þar að segja með öllum gerðunum í einum pakka og líka allt eins.Grin


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Rosalega eru þetta falleg kort hjá Blómarósinni þinni, langar að kaupa af henni 2 svona pakka með blönduðum myndum :) sendu mér endilega skilaboð hvar er hægt að nálgast þetta :)

Álfhildur Erla Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 20.2.2012 kl. 19:09

2 Smámynd: Guðrún unnur þórsdóttir

flott kortin hjá blómarósini knús og kram til ykkar allra

Guðrún unnur þórsdóttir, 20.2.2012 kl. 19:46

3 identicon

Gott að heyra að það hefur ekki komið annar svona dagur eins og um daginn og að hetjan sé að njóta sín í sjúkraþjálfuninni.

Frábær kort hjá Blómarósinni, ég myndi gjarnan vilja fá einn pakka, viltu að ég sendi þér póst?

Kveðja - hben

Helga (IP-tala skráð) 20.2.2012 kl. 19:47

4 Smámynd: Áslaug Ósk Hinriksdóttir

Það væri ofsalega fínt að fá póst frá þeim sem langar að kaupa kort því þar get ég haldið betur utan um það   Tölvupósturinn minn er aslaugosk@simnet.is

Áslaug Ósk Hinriksdóttir, 20.2.2012 kl. 19:50

5 identicon

Kæra Áslaug og fjölskylda.

Mín var ánægjan að færa ykkur þetta lítilræði.

Æðislega falleg kortin hjá Blómarósinni. Mig langar að kaupa 1 pakka.

Hafið það sem best öll sömul.

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 20.2.2012 kl. 22:15

6 identicon

Hæ hæ,

Frábær hugmynd og flott kort ;)

En mig langar svo að vita... hvaða stærð notar hún og hverjir eru uppáhaldslitirnir? Stutterma eða langerma?

Lofa engu en ætla skoða í kringum mig áður en ég kem til Íslands 22. mars (er í Svíþjóð).

Kveðja,

Dísa

Svandis Ros Thuridardottir (IP-tala skráð) 20.2.2012 kl. 23:01

7 identicon

Jæja þá er búið að svipta hulunni af dularfullu&gjafmildu konunni,hún fær stórann plús punkt:)
Það kemst upp um alla:)
Það verður spennandi að komast norður á skíðin og njóta lífsins þar,gott að hvíla sig aðeins frá rvk....,OG það verður falin myndavél í brekkunum,hlökkum til að sjá snilli ykkar og gleði
Maístjarnan verður sannarlega stjarnan í brekkunum og eins hafi ekki gert nokk annað um ævina,sama með Blómarósina.... OK þið hjónin líka ..
Vegni Blómarósinni vel með að hanna&mála myndir sem og selja:)
Hún á skilið að fá flotta boli:)
Ljúfar kveðjur.

Halldór Jóh. (IP-tala skráð) 24.2.2012 kl. 04:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband