22.11.2012 | 21:24
Fyrir sjö árum síðan....
Á þessum tíma fyrir sjö árum vorum við stödd í Boston á gjörgæslunni þar en þá var Maístjarnan mín nýbúin í heilaaðgerð en læknarnir þar ætluðu að reyna fjarlægja æxlið hennar og reyna láta hana hætta krampa en því miður var það ekki hægt. Það var of áhættusamt - hún hefði geta lamast algjörlega og orðið að "grænmeti" en við vildum heldur ekki taka sénsinn á því, frekar vildum við að hún ætti einhver góð ár eftir heldur að vita ekkert í sinn "haus".
Það var virkilega erfiður tími að vera með hana í Boston frá öllum en eftir þann tíma tók ennþá erfiðari tími. Hún hætti ekki að krampa heldur krampaði hún fimmtíu krampa á dag (vorum ekki með töluna yfir næturnar) en að sjá barnið sitt gangandi með hjálm um höfuð sitt til að verja það og geta ekki sagt frá því þegar kramparnir voru að koma heldur skall hún beint í gólfið og lá þar í krampa. Sjá hana lamast hægt og rólega á hægri hluta líkamans var ofsalega erfitt, þetta er eitthvað sem manni langaði ekki að upplifa aftur en við höfum því miður þurft þess en vonandi ALDREI aftur.
Ég bíð eftir þeim degi að við getum kvatt þennan fjanda fyrir fullt og allt, það verður væntanlega aldrei en ég held samt í vonina og trúi að kraftaverkin haldi áfram að gerast. Ég veit að þau gerast!
Maístjarnan mín er en að krampa í dag en þeir eru samt ekki jafn slæmir og þeir voru eða oft - núna getur hún sagt okkur rétt áður en þeir koma og þá getum við verið hjá henni og haldið í hendina hennar á meðan. Hún er ennþá með lömunareinkenni á hægri hluta líkamans og er úthaldslítið, dagarnir hjá henni eru misjafnir. Hún fer útað leika í ca 30 mín einsog hún gerði síðustu helgi og varð gjörsamlega búin á því eftir það en svo geta komið frábærir dagar og þá orkar hún miklu meir.
Hérna er ein af henni síðan um helgina - frekar þreytt eftir 30 mínútna úti-leik.
Svo langaði mig líka að birta mynd af Rokkaranum mínum sem er á leiðinni í afmæli á myndinni en hann bað um rokkara-krem í hárið. En Rokkarinn á afmæli á sunnudaginn - ótrúlegt en satt er hann að verða fjagra ára og verður stóri bróðir eftir ekki svo marga mánuði sem hann er mjög spenntur fyrir. Þessi drengur veit sko alveg hvað hann vill og verða, jú hann vill vera í hljómsveit einsog Kizz og vera helst málaður í framan einsog þeir.
Ef hann vissi bara hvað hann fengi í afmælsigjöf frá okkur? ....við erum allavega hrikalega spennt að gleðja þennan gleðipinna á sunnudaginn, hann er búinn að halda eina veislu þar var að sjálfsögðu gítarakaka og svo verður hann með seinni veisluna á sjálfan afmælisdaginn.
Afmæliskakan sjálf sem hann var að sjálfsögðu í skýjunum með enda ekki annað hægt.
Eigið góða helgi - við erum mjög spennt fyrir henni.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
33 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
flott kaka knús til ykkar allra
Guðrún unnur þórsdóttir, 22.11.2012 kl. 21:29
Kveðjur til ykkar allra ♥
Hólmfríður Bjarnadóttir, 22.11.2012 kl. 22:29
<3 <3 <3
Didda ókunn (IP-tala skráð) 24.11.2012 kl. 17:29
Innilegar afmæliskveðjur til Rokkarans, njótið dagsins.
Kveðja - Helga
Helga (IP-tala skráð) 25.11.2012 kl. 09:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.