11.10.2013 | 15:56
Þreytt Maístjarna
Maístjarnan mín er ofsalega þreytt þessa dagana/vikurnar og ég er svo glöð að ég veit að það er ekki vegna stækkunnar - svo stutt síðan hún fór síðast í rannsóknirnar sínar. Hún er reyndar að krampa meira en venjulega og það reynir á mann - kramparnir eru líka eitthvað að breytast svo konan bíður eftir því að heyra í doktor Ólafi til að fá tíma hjá honum. Hún er líka ofsalega ánægð að það er komin helgi og hana ætlar hún að nýta í að slappa af og gera helst ekkert - mikið rosalega skil ég hana vel.
DraumaDísin mín var að koma úr fimm mánaðaskoðun og hún sem fæddist í gær - hún er ekkert rosalega mikið fyrir svefninn hvort sem það er á daginn eða nóttunni. Er eitthvað hræddum að missa af stuðinu á heimilinu sem ég skil mjög vel en ég væri samt alveg til í kanski þriggja klukkutíma svefn - bið ekki um meira. Hún er samt svo ofsalega vær og góð svo það er eiginlega ekki hægt að biðja um meira - hún elskar þegar systkinin hennar eru að hnoðast með hana, tala við hana og bara fylgjast með þeim. Hún er endlaust mikið elskuð þessi DraumaDís enda svo mikið dýrkuð og dáð af okkur öllum.
Verð að láta fylgja eina mynd af henni síðan í gær þegar hún var í sinni fimm mánaðasprautu - stóð ofsalega vel og ekkert pirruð eftir hana. Maístjarnan mín einmitt sagði við hana þegar hún frétti að hún hefði fengið sprautu "þú ert svo sterk, dugleg og lítil hetja". Yndislegust! Leyfi svo annarri mynd að fylgja líka en það er af Blómarósinni minni í nýja fimleikabolnum sínum en hún safnaði sjálf fyrir honum með sölu á afmæliskortum og keypti sér líka Ármannsutanyfirgallann.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
33 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
yndislegar, góðar óskir öll sömul :)
Didda ókunn (IP-tala skráð) 13.10.2013 kl. 21:33
Elsku öll
Ekki skrítið að sú litla vilji ekki sofa of mikið. Örugglega aldrei dauð stund á heimilinu ;-)
Verra að hún skuli ekki sofa á nóttunni því þá ætti að vera lítið um að vera sem hún missti af.
Eins gott Àslaug að þú ert Super aðrir þurfa góðan svefn.
Ekki skrítið að Oddný brosi breytt í nýja bolnum svo flottur sem hann er, fyrir utan að hafa unnið fyrir honum og gallanum. Ég veit að svona bolir kosta heilan handlegg :-)
KNÚS í húsið.
Sólveig (IP-tala skráð) 15.10.2013 kl. 09:55
Falleg börnin þín :)
Adda Laufey , 17.10.2013 kl. 18:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.