Leita í fréttum mbl.is

Aðgerðardagur í dag

Maístjarnan mín er á leiðinni í aðgerð í dag - það á að fjarlægja "brunninn" hennar sem hefur fylgt henni síðustu 8 ár.  Ástæðan er reyndar að hann er hættur að virka en við ætluðum að láta fjarlægja hann í maí 2010 þegar hún greindist aftur en því miður var það ekki hægt þá vegna greiningarinnar.  Við trúum því að þetta er bara skref frammá við í veikindum hennar og við þurfum ALDREI aftur á þessu á að halda.  Jú framvegis þarf hún að fá sprautur í handlegginn þegar það er verið að taka blóð og í svæfingum sem er hreint helvíti fyrir hana þar sem hún þolir það ekki og svo endalaust erfitt að finna æðar í það.  En jú þetta er ákveðið skref frammá við þó svo mamman sé dáltið stressuð fyrir þetta ákveðna skref - veit ekki afhverju??

Hún fór í heilarit í síðustu viku sem við fáum væntanlega út úr í dag þegar hún fer í aðgerðina sína - læknirinn hennar vildi að hún færi í það áður en hann færi hræra mikið í lyfjakokteilinum hennar þó svo hann gerði smá breytingar í síðustu viku.  Jú barnið er alltaf svo þreytt en einsog doktor Óli sagði þá er kanski erfitt að breyta því vegna alls sem hefur undan gengið.  Hún leggur sig oft á daginn og sofnar snemma - ætli maður væri ekki svoleiðis líka ef ég væri búin að ganga í gegnum þetta allt saman.

Hún er annars spenntust fyrir jólabingóinu sínu sem hún mun halda á leikstofunni fyrir jólin uppá spítala - það er alveg ótrúlegt hvað þetta gefur henni mikið "að borga tilbaka" allt sem allir hafa gert fyrir hana.  Okkur var boðið í bingóið um daginn en hún vildi sko ekkert koma með þar sem hún væri ekkert að stjórna bingóinu sjálfu - hún vill ekki spila sjálf og reyna vinna, henni finnst bara svo gaman að sjá gleðina í öllum hinum sem vinna sem mér finnst náttúrlega alveg magnað.

Jú ég auglýsti eftir dótið í bingóið hennar og fékk eitt svar frá bókabúðinni á Húsavík og hér birtist svo kassi af dóti frá þeim sem verður í verðlaun og jú svo smá aukalega í verðlaunakassann uppá spítala en einsog allir vita finnst öllum börnum gaman að fá verðlaun fyrir að vera dugleg í læknaheimsóknunum sínum og Maístjarnan mín ætlar að fylla smá í þann kassa þökk sé þeim á Húsavík. 

Við auglýsum samt áfram eftir dóti (nýju) í bingóið hennar en okkar markmið er að sjálfsögðu er að allir krakkarnir fari glaðir af bingóinu hvort sem það fékk bingó eða ekki.  Ef þig eða þitt fyrirtæki langar að gefa vinning þá má endilega vera í sambandi við mig aslaug@vefeldhus.is


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Komið þið sæl

Vonandi hefur aðgerðin gengið vel. Ég er líka sannfærð um að þetta er bara skref fram á við.

Ég er því miður ekki með fyrirtæki til þess að gefa dót í bingóið ykkar, ef ég væri það þá myndi ekki standa á mér.

Kveðja - Helga

Helga (IP-tala skráð) 15.11.2013 kl. 21:50

2 identicon

Kæra fjölskylda,

mig langaði bara til að óska ykkur góðs gengis.  Ég kíki reglulega hingað inn til að fylgjast með fréttum af duglegu hetjunni ykkar og dáist að þvi hversu sterk og dugleg fjölskylda þig eruð.  Það getur enginn ímyndað sér þau spor sem þið hafið þurft að stíga, nema hafa upplifað svipað sjálfur.  Mig langaði bara til að segja gangi ykkur vel!  Það gleður mig að sjá að allt er á uppleið með duglegu stelpuna ykkar!  Það gefur öðrum von.

 Bata og baráttustraumar til ykkar!

Kærleikskveðja,

Emma

Emma Vilhjálmsdóttir (IP-tala skráð) 21.11.2013 kl. 01:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband