24.4.2014 | 18:19
Draumar rætast svo sannarlega rétt einsog kraftaverkin gerast.
Haustið 2006 eftir að læknar Þuríðar Örnu tilkynntu okkur það að hún ætti aðeins nokkra mánuði ólifaða þá ákváðu nokkrir fjölskyldumeðlimir Óskars að bjóða okkur fjölskyldunni ásamt foreldrum hans, systrum, mökum og börnum þeirra til Flórída. Jú þau vildu að við ættum góðar minningar í bankanum okkar eftir að hún myndi kveðja okkur. Veröldin var á hvolfi á þessum tíma enda nýbúið að segja við okkur að hún myndi kveðja okkur eftir ekki svo marga mánuði æxlið væri að vinna baráttúna, hún var öll að lamast á hægri hluta líkamans og hún var að krampa allt að 50 krampa á dag og svo voru næturnar svipað erfiðar. En við ákváðum samt að undirbúa ferð til Flórída sem fyrst því við vissum ekkert hvernig baráttan myndi þróast hvursu hratt þetta myndi gerast.
Í des06 fór hún í tíu geislatíma sem voru ekki til þess að vinna meinið heldur til þess að lengja tímann hennar með okkur kramparnir minnku strax við geislana en voru samt ekki búin að vinna þá.
Í byrjun janúar 2007 fórum við í draumaferð allra barna og okkar ásamt stórfjölskyldu Óskars þökk sé nokkrum ættingjum Óskars. Þuríður Arna mín var dáltið mikið veik á þessum tíma en var samt aðeins hressari eftir geislana, var krampandi dáltið mikið og mömmuhjartað átti dáltið erfitt ALLA ferðina. Fannst oft erfitt að njóta tímans því ég vissi hvað var í vændum þetta átti að vera kveðjuferðin okkar. Það voru teknar endalaust margar myndir sem við ætluðum að eiga í bankanum okkar. Við fórum í þrjá garða í þessari tíu daga ferð reyndum að gera allt sem við gátum á þessum stutta tíma.
Ég man ennþá vel eftir Disneyferðinni okkar þar voru uppáhalds prinsessur Þuríðar minnar saman komnar, þær voru að heilsa uppá krakkana sem voru búin að safnast í kringum þær. Við komumst ekki að þeim vegna fjöldans. Þuríður Arna mín sat í kerrunni sinni og horfði stjörf á idolstjörnurnar sínar þó svo hún kæmist ekki nálægt þeim þá var hún samt glöð bara að fá að sjá þær. En alltíeinu sjáum við Öskubusku labba úr fjöldanum beint til Þuríðar og byrjaði á því að knúsa hana og bað svo um nokkrar myndir af sér og henni saman. Þetta var þvílíkur draumur í dós fyrir hana og þá sérstaklega myndatakan því ennþá í dag er Þuríður að skoða þessar myndir.
Þuríður Arna mín man ekkert eftir þessari ferð en skoðar myndirnar úr henni hlær af myndunum og dáist af öllum prinsessunum úr Disneygarðinum. Talar í hvert skipti sem hún skoðar þær að hún ætlar að fara aftur að hitta þær og við segjum alltaf já vonandi geturu farið einn daginn að hitta þær aftur og þá hugsa ég líka og muna VEL eftir ferðinni og notið hennar í botn sem hún gerði engan veginn í þessari ferð. En það er langþráður draumur hef ég hugsað í hvert skipti sem hún skoðar myndirnar úr ferðinni ferðinni sem hún man ekkert eftir hvað þá Oddný og Theodór sem fóru líka með okkur en Theodór var 11 mánaða og Oddný Erla var á þriðja ári.
En hvað haldiði? Miðvikudaginn 9.apríl var ég búin að sækja Oddnýju og Theodór í skólann og Hinrik í leikskólann ég náði í þau fyrr þennan dag því við vorum að fara uppá spítala að aðstoða Þuríði okkar með sitt árlega páskabingó. Kl var rétt rúmlega tólf og við vorum að keyra frá skólanum til þess að ná í Þuríði okkar í hennar skóla síminn hringir og ég svara honum þannig að það heyrist allt um bílinn þar sem ég var að keyra. Konan sem hringir kynnir sig og spyr mig hvort hún sé að trufla þar sem hún heyrir að ég er að keyra en ég neita. Hún er að tilkynna okkur það að Þuríði okkar er vildarbarn og þar með átti ég erfitt með að halda tárunum inni en konan segir að hún sé nú bara að tilkynna mér góðar fréttir en stundum er gott að gráta gleðitárum. Krakkarnir vita ekkert hvað vildarbarn er en um leið og ég skelli á konuna góðu þá hringi ég beint í Óskar til þess að tilkynna honum þessar gleði fréttir en hann vissi ekki að ég hefði sótt um fyrir Þuríði okkar. Krakkarni hlusta líka á það símtal en vita samt ekkert hvað þetta þýðir en við tilkynnum þeim þetta saman og þvílík öskur í bílnum.
Ég bruna að ná í Þuríði mína alveg við það að springa úr gleði hún er inní matsal að borða og ég er ekki lengi að tilkynna henni það að hún sé vildarbarn sem þýðir að hún fær að fara aftur til Flórída að hitta Öskubusku og vinkonur hennar. Oh mæ god!! Þvílík hamingja hjá einu barni og það var öskrað en eina ferðina.
Já Þuríður Arna mín var valin vildarbarn og fær að fara til Flórída í 8 daga= flug, gisting, bílaleigubíll og plús að fara í einn garð að eigin vali = við fjölskyldan. Eigum við að ræða hamingjuna sem ríkir hérna í sveitinni. Já draumar geta svo sannarlega ræst AFTUR og núna mun hún muna eftir þessari ferð enda ætlum við að reyna fara sem fyrst því við vitum aldrei hvenær/hvort æxlið fer aftur afstað.
Og sjö árum síðar er hún ennþá hjá okkur að verða tólf ára gömul hún sem átti ekki að byrja í skóla en það styttist óðum í ferminguna.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
33 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
yndislegt, njótið, hugsa oft til ykkar, avallt góðar óskir <3
Didda ókunn (IP-tala skráð) 24.4.2014 kl. 22:04
Vá en frábærar fréttir
Hrafnhildur Ýr (IP-tala skráð) 25.4.2014 kl. 10:58
Frábærar fréttir !
Vitið þið eitthvað hvenær verður farið ??
Vonandi náið þið að njóta ferðarinnar í botn því þið eigið það svo sannarlega skilið elskulega fjölskylda <3
Hlakka til að fá að lesa ferðasöguna ;)
Kærleikskveðjur úr Trékyllisvíkinni.
Jóhanna Ósk Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 25.4.2014 kl. 16:59
Vá, æðislegt að heyra þið eigið þetta svo skilið :D
Kristín (IP-tala skráð) 25.4.2014 kl. 17:11
Dásamlegt. Njótið.
I. (IP-tala skráð) 25.4.2014 kl. 19:10
Jóhanna! Við förum reyndar ekki fyrr en á næsta ári en það er þá eitthvað til að hlakka til :)
Áslaug Ósk Hinriksdóttir, 25.4.2014 kl. 19:38
Það verður barasta gaman hjá ykkur þegar þið farið :) Já ég get rétt ímyndað mér tilhlökkunina í fjölskyldunni :) Um að gera að njóta vel :)
<3
Jóhanna Ósk Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 26.4.2014 kl. 02:51
YNDISLEGT....bara yndislegt....ef einhverjir eiga þetta skilið þá eru það þið. Mikið er ég glöð fyrir ykkar hönd :-)
Kveðja - Helga
Helga (IP-tala skráð) 27.4.2014 kl. 09:41
En dásamlegt - góða ferð og skemmtun kæra fjölskylda.
Maja (IP-tala skráð) 28.4.2014 kl. 14:28
Dásamlegar fréttir :)
Þórleif (IP-tala skráð) 29.4.2014 kl. 08:52
Ég samgleðst ykkur innilega. Þuríður Arna á þetta svo sannarlega inni og meira en það, þið öll líka.
Njótið ferðarinnar kæra fjölskylda.
Og eigið gott og gleðilegt sumar. :)
Kv. Sólveig
Sólveig Björk Jónsdóttir (IP-tala skráð) 29.4.2014 kl. 10:15
Jeminn en yndislegar fréttir!!!!
Eyja (IP-tala skráð) 29.4.2014 kl. 22:57
Stórkostlegt. Þetta eigið þið svo sannarlega skilið.
Anna (IP-tala skráð) 3.5.2014 kl. 10:44
aveg magnaðar fréttir, góða skemmtun í sól og gleði. kv gþ
gþ (IP-tala skráð) 5.5.2014 kl. 20:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.