Leita í fréttum mbl.is

paranoid

Það er svo skrýtið en samt ekkert skrýtið en alltaf þegar ég sé að Þuríður mín er óvenju þreytt eða hegðar sér ekki einsog venjulega verður ég svakalega paranoid og hugsa alltaf að núna er henni að fara versna.  Hún var nefnilega svo þreytt á mánudaginn og hegðaði sér eitthvað öðruvísi en vanalega og þá fór hjartað að slá hraðar og ég fann alveg hvað ég fór að skelfa en að sjálfsögðu var þetta bara alltíkei og stúlkan sem hressust en ekki hvað.

Annars er ég svakalega tóm í dag, andlaus, nenni ekki neinu en ætla mér nú samt að mæta í ræktina í kvöld og ath hvernig grindin bregst við.  Ég hef nefnilega ekki verið svakalega dugleg að mæta að undanförnu en það er vegna þess að grindin er eitthvað að gefa sig, það er svona að eignast þrjú börn á fjórum árum og þá þarf eitthvað að gefa sig.  Ég hef reyndar verið sæmileg í vetur og reynt að æfa þrisvar í viku (allavega) en svo alltíeinu núna þarf hún eitthvað að fara kalla á stop, aaaaaaaarghhhh!!  Ég þarf nefnilega alltaf að gera æfingarnar í tímum sem ég á ekkert að vera gera því ég held alltaf að það verði alltíkei enda finn ég kanski ekkert þegar ég er að gera æfingarnar en svo um kvöldið eða daginn eftir labba ég einsog ég sé komin átta mánuði á leið eheh!!

....orðin tóm


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórunn Eva

hæ babe ég get ekki sagt "já ég veit hvernig þér líður" en ég get sagt að þú ert duglegasta og sterkasta manneskja sem ég þekki :) haltu áfram að vera svona dugleg og sterk því við verðum það tvímannalaust með þér :) koss og knús

Þórunn Eva , 2.5.2007 kl. 18:54

2 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

mundu bara áslaug mín, þú verður að hlusta á líkamann, án hans verður lítið úr öðru sem maður þarf að gera.  guð veri með ykkur og styrki litlu stúlkuna "okkar" 

Það er held ég ekkert eðlilegra en að verða svona smá paranoid, hefurðu ekki bara fullt leyfi til þess ? Dugnaðarforkur !

Guðrún Jóhannesdóttir, 2.5.2007 kl. 22:37

3 identicon

Mikið er gaman að kíka hingað inn þegar hlutirnir ganga aðeins betur, skil mikið að fá smá paranoiu, en vona svo innilega að það sé að ástæðulausu, farðu súper vel með þig Áslaug þú átt það svo margfalt inni. 

Katrín (IP-tala skráð) 3.5.2007 kl. 12:05

4 Smámynd: Adda bloggar

knús kv til þín

Adda bloggar, 3.5.2007 kl. 15:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband