Leita í fréttum mbl.is

Gott veður

Þegar það er svona gott veður þá ekki búast við bloggið frá mér, ég og krakkarnir erum búin að leika okkur á pallinum frá því ég náði í stelpurnar á leikskólann en að sjálfsögðu næ ég í þær fyrr þegar við getum leikið okkur á pallinum og sólað okkur þar.  Þuríður mín er líka gjörsamlega rotuð uppí rúmi og klukkan rétt sjö, Theodór minn er á útopnu því hann er svo þreyttur eftir daginn en sá drengur má ekki fara sofa fyrr en eftir átta svo hann verði ekki vaknaður kl fimm í fyrramáli en þó hún Oddný Erla sé súper þreytt fer hún sko ekki að sofa fyrr en foreldrar hennar leggjast uppí rúm ehe.  Stundum heldur hún að hún sé orðin fullorðinn og nennir sko ekki að eyða tímanum í að sofa þegar hún getur verið að leika inní herbergi í lego, playmo eða með Kristín Amelíu sína (það er dúkkan hennar).

Annars er Theodór minn farinn að segja ansi mörg orð, hermir eftir öðru hverju orði sem ég segi thíhí!!  Hann er ennþá sami mömmukarlinn ég má ekki skreppa inní herbergi þá verður hann alveg trítilóður, mikið verður gott fyrir hann að komast á leikskólann í haust eða nánartiltekið 16.ágúst en þá byrjar drengurinn í aðlögun.  Bara gaman!!

Í næstu viku fer Þuríður mín Arna í tjekk hjá Doktor Ólafi og sá verður hissa hvað hún er spúper hress, oh mæ god!!  Þessi stúlka hafði ekki svona mikla orku í að leika sér allan daginn án þess að fá sér smá blund yfir daginn fyrir áramót, ohhh neih!!  Hún hefði þurft ða leggja tvisvar yfir daginn og kanski náð að leika sér í klukkutíma þvílíkur munur á hetjunni minni og vonandi endist þetta endalaust lengi núna er hún allavega næstum því einsog fimm ára barn í orku, hibbhibbhúrrey!!

Einsog ég sagði þegar það er svona gott veður þá nennir mín sko ekki að hanga mikið í tölvunni, þá verður það sko pallurinn sem kallar.  Ótrúlega spennt fyrir sumrinu og fá að spóka mig í sólinni með körkkunum, nennti ekki einu sinni að fara í ræktina í dag (dóhh) langaði bara að vera úti að leika með krökkunum. 

Bæjó en í bili þó....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórunn Eva

já veistu það var sama hér bara verið úti að spóka sig í sólinni :) sjáumst í vikunni :)

knús knús

Þórunn Eva , 14.5.2007 kl. 19:54

2 identicon

En yndislegt að heyra af henni nöfnu minni. Ég verð eiginlega að taka mig til og prjóna á hana peysu fyrir veturinn og sanna að ég hafi eitthvað lært í þessum skóla;) Hafið það gott í sólinni í sveitinni á nýja fína pallinum ykkar. Knús og kossar. Kristín Amelía.

Kristín Amelía (IP-tala skráð) 14.5.2007 kl. 19:56

3 identicon

Bara að fullvissa mig um að allt sé í fínu hjá ykkur og SEM BETUR FER er það svo. Með kærri kveðju frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 14.5.2007 kl. 21:07

4 identicon

Sól sól skín á ykkur.Kv

Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 14.5.2007 kl. 22:05

5 identicon

Yndislegt að heyra að litlu snúllunni líður svona vel.   Vonandi verður sumarið ykkur gott !

Þið eruð öll hetjur, hvert og eitt ykkar á sinn hátt.  Yndislegt að sjá hversu einstök þið eruð.

Lilja ókunnug (IP-tala skráð) 14.5.2007 kl. 23:08

6 Smámynd: Elsa Nielsen

Frábært - það er bjart yfir ykkur núna :) Njóttu sólargeislanna !

KNÚS Elsa

Elsa Nielsen, 15.5.2007 kl. 09:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband