18.6.2007 | 13:36
Orkulaus
Hef alltaf ætlað að setjast við tölvuna í morgun og langað að skrifa eitthvað skemmtilegt og uppörvandi en bara ekki funndið neitt skemmtilegt að segja frá. Ég er farin að sjá tvöfalt á tölvuskjáinn vegna orkuleysis, vóvh ég get varla pikkað hérna og farin að skjálfa líka. Hvernig getur fólk svelt sig og látið sér líða svona? Ég bara skil það ekki en mín ástæða fyrir engum mat inn fyrir þennan munn er kirtlatakan á miðvikudaginn og hálsinn er ekkert að skána, úffh þurfti að taka mér smá pásu frá skrifum því mér líður þannig einsog það sé að líða yfir mig og allt er tvöfalt í kringum mig. Ég er búin að reyna lifa á frostpinna og súpum síðan á miðvikudag og er komin með ógeð af því núna , mig hryllir við þá hugsun að þurfa á frostpinna til að kæla hálsinn. Ég er að reyna fá mér einhverja orkudrykki en þeir skerast allir svo í hálsinn þannig það er ekki að virka, verð bara verri ef eitthvað er? Allir að segja mér að fá hitt og þetta en verst að það kemst ekkert niður, aaarghh!! Þetta fer vonandi að líða hjá, ég þarf svo á þessari orku að halda.
Sorrý en ég get ekki skrifað meir í dag, ég er hætt að sjá stafina þannig ég læt fylgja mynd af fallegustu feðgunum:
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
342 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 4870894
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Vonandi fer hálsinn að batna hjá þér og þú farið að nærast eitthvað af viti. Kann engar töfralausnir fyrir þig Áslaug mín, þú finnur best sjálf hvað virkar og hvað ekki. Reyndu bara að hvíla þig eins og þú mögulega getur.
Þakka fyrir síðast - alltaf gaman að líta við hjá ykkur
Betan
Betan (IP-tala skráð) 18.6.2007 kl. 13:47
hæ skvís leiðinlegt að heyra ástandið á þér....
reyndu að láta þér líða sem best í þessu ástandi....
p.s bara sætir mátt sko vera stoltust af þeim :)
koss og knús
Þórunn Eva , 18.6.2007 kl. 14:05
Sæl Áslaug.
Vonandi fer þér að batna í hálsinum.
Bara sætir feðgar:)
Kveðja Silla Karen
Silla Karen (IP-tala skráð) 18.6.2007 kl. 14:25
úff Áslaug þetta er ekki gott, ég fór í kyrtlatöku um jólin og ég var mjög slæm í rúmlega viku. þetta byrjaði sko ekkert að lagast fyrr en á degi 8, og allir dagar fram að því voru hrikalegir. ég gat ekki neitt borðað, því mér var svo flökurt á lyfjunum og ég mátti ekki standa of lengi því þá þurfti ég að leggjast í gólfið af flökurleika. Ég gat varla farið í sturtu. En mitt ráð til þín er að reyna að taka því rosa rólega svona fyrstu vikuna, og alls ekki vera að labba mikið ef þú getur. ég gat fengið mér einn og einn bita af mat fljótlega, en ekki meira, því svo þurfti ég bara að leggjast niður. reyndu að borða eitthvað mjúkt og tyggja vel. láttu súkkulaðimola bráðna í munni af og til;)
Kveðja til ykkar allra!
lilja (IP-tala skráð) 18.6.2007 kl. 14:39
Ufff þú átt alla mína samúð, það sem virkaði fyrir mig var fransbrauð með smjörva og svo sykurskertur eplasvali... vona að þu finnir eitthvað sem þú getir borðað
ókunnug (IP-tala skráð) 18.6.2007 kl. 15:32
Ég sár vorkenna þér ,
ég man eftir vinkona mína þegar hún fór í hálskirtlatöku hún var verst fyrsta tvö daga svo var hún fljótt að ná sér ,það er svo misjafnt hvað gengur vel hjá folkið, ég vona að það er allt gott að frétta af dóttur þinni ég er búin að hugsa míkið til ykkar um helgina ,Guð viljandi að þetta mun allt fara vel og að þú mun ná að hvíla þig og jafna þig þú ert algjört hetja svo dugleg !!!!Æðislega sæt mynd af feðgarnir bara krúttlegt ,Ég sendi ykkar hlýjar straum guð verið með ykkar frábært fjölskylda og megi englanna vaka yfir ykkar og styrkja ykkar
Kær kveðja Dee
Dee (IP-tala skráð) 18.6.2007 kl. 20:04
Sæl Áslaug
Hef lengi fylgst með ykkur fjölskyldunni og fæ oft sting í hjartað að lesa skrifin þín, það er mikið á suma lagt í lífinu. Þó að hálskirtlataka sé smá mál miðað við allt sem þið eruð að ganga í gegnum er það óskemmtileg viðbót svo ekki sé meira sagt. Þekki það sjálf að fara í hálskirtlatöku og vorkenni þér mjög svo. Þú getur átt von á því að vera jafn slæm í 10 daga það er nefnilega ótrúlegt hvað það tekur langan tíma að ná sér. Eitt sem ég borðaði þegar ég var komin með ógeð á súpugutli var skyr með ávöxtum sett í blandara umm. Síðan spældi ég mér egg með kavíar bara svona til að fá eitthvað sterkt bragð. Siðan drakk ég stöðugt kalt vatn til að hreinsa hálsinn. Vona svo innilega að þið eigið gott sumar með litlu börnunum ykkar. Bið Guð að vermda ykkur og styrkja.
Kveðja Gurrý (ókunnug þér)
Gurrý (IP-tala skráð) 18.6.2007 kl. 20:48
hefur þú prófað að fá þér barnamat í krukkum??
ókunnug (IP-tala skráð) 18.6.2007 kl. 20:50
Áslaug mín það vilja allir gefa þér góð ráð og ég líka.
Hefurðu prófað malltöl ískalt það gafst mér vel.
Kærleikskveðjur.
P.S.
Flottir feðgar.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 18.6.2007 kl. 21:32
Þeir eru hryllilega fallegir feðgarnir þínir. Eru læknarnir þínir ánægðir með þessa líðan eftir kirtlatökuna? Mér finnst þetta ferlegt, kann engin ráð en myndi tala við lækninn, þó ekki væri nema vegna orkuleysisins því ef einhver þarf á öllu sínu að halda ert það þú.
Vona að allt sé betri kantinum með aðra á heimilinu auðvitað sérstaklega Þuríði þína.
Með hlýhug og sterkum baráttukveðjum frá Sólveigu
Sólveig (IP-tala skráð) 18.6.2007 kl. 22:23
prófaðu Jelló- ávaxtahlaup
ókunn (IP-tala skráð) 18.6.2007 kl. 23:54
Sæl Áslaug
Þú verður að hvílast, það er ekki spurning. Hefur þú prófað hörbalæf duft hrært í mjólk og látið bíða smá ætti komast niður, í því er mikið prótín og það á að gefa þér orku. Mikið óskaplega eru strákarinir þínir flottir. Sá litli horfir með þvílíkri lofningu og kærleika á pabba sinn sem ljómar af ást og gleði yfir litla prinsinum sínum. Þvílíkur mannauður og sjá þetta litla skott með bindi, það hefur ekki verið lengi á sínum stað ef ég þekki svona pjakka rétt. Láttu þér batna kæra Áslaug og svo bið ég Guð að geyma ykkur öll og auðvitað að senda Þuríði Örnu bata og fullta af honum. Kveðja Fríða
Fríða (IP-tala skráð) 19.6.2007 kl. 01:08
Yndisleg mynd af pjökkunum þínum.Heilsukveðjur
Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 19.6.2007 kl. 06:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.