Leita í fréttum mbl.is

Draumar

Svo ég haldi áfram með draumatal en þá létum við einn draum Þuríðar minnar rætast í gær og sjálfsögðu voru hin tvö með í för en voru ekki jafn spennt fyrir þessu einsog þuríður eheh!!  Ég ætla ekki að segja ykkur frá þessum draumi alveg strax eða ekki fyrr en í næstu i viku þegar við erum búin að uppfylla drauminn 100%.   Trallala!!  Þá fáiði að sjá myndir, spennt?  Woundering

Draumar þurfa ekki að kosta neitt einsog þessi sem við létum verða af í gær bara eitt lítið símtal ok þau voru tvö ehe.  Þuríður mín mun allavega muna vel eftir honum og talar mikið um hann sem er alveg yndislega gaman að hlusta á, þessi draumur er nú ekki stór í augum margra en hjá Þuríði minni var hann einn af þeim stærstu hjá henni.  Bara gaman!!

Ég á mér líka marga drauma og einsog allir vita er minn stærsti að Þuríður mín verði "heilbrigð" að ný en ég veit líka að hún getur aldrei orðið alheilbrigð en ég á mér samt þann draum. 
Draumarnir mínir með Skara mínum verða væntanlega að bíða þanga til börnin verða uppkomin og við förum í draumaferðina okkar, dekurferðina ALEIN, liggjum í sólinni, engar búðir í kring og helst með einn golfvöll hliðina á hótelinu bara fyrir Skara minn eheh. Svo á ég mér einn draum sem er í vinnslu en það er "góðverka" draumurinn minn en meira fáiði ekki að vita allavega ekki strax.

Að sjálfsögðu í lokin fylgir mynd af börnunum mínum sem var tekin í gær uppá Skaga en tengdamóðir mín og ein lang-ömmusystirin tóku sig til og prjónuðu lopapeysur á öll börnin mín en það var einn minn draumur að fá svona peysur á börnin.  Yndislega flott!!

P7184428


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Mikið eru þau falleg og sæt í fínu peysunum! Vildi að ég væri svona myndarleg í höndunum!

Draumar eru nauðsynlegir. Alveg sama þó einhverjir þeirra rætist. Það er algjört möst að koma sér upp nýjum. Hvernig væri líf okkar ef allir okkar draumar væru uppfylltir og engar langanir eða þrár væru eftir? Það er svo gaman að láta sig dreyma....

Ylfa Mist Helgadóttir, 19.7.2007 kl. 14:56

2 identicon

Góðan daginn

Það eru bara hálfkveðnar vísur í dag hmmm. Ég bíð spennt efir að fá alla botnana. Þau eru flott systkinin í nýju peysunum, það er svo gott að eiga duglegar frænkur. Mér finnst það frábært að þið skulið vinna í að láta draumana ykkar rætast. Ég er að láta einn minna stærstu drauma rætast og það er að stofna fyrirtæki þar sem ég mundi vinna með mörgu fólki. Fyrirtækið mitt er með ferðaþjónustubát sem gerður er úr á sela- fugla og náttúruskoðun á Húnaflóanum. Svo höfum við prófað sjóstöngina og hún er bæði skemmtileg og gríðarlega vinsæl. Svona eru draumarnir misjafnir sem betur fer og það er bara að þora að láta þá rætast. Þessi draumur minn var doltið strembinn til að byrja með, fullt af ljónum en ég er steingeit og get klifrað uppá svo örmjóar sillur að ljónin ná ekki í mig. HA HA HA og er þar núna.

Góðar óskir og kveðjur í "draumalöndin ykkar". Það er svo erfitt að lesa að Þuríður geti "aldrei" orðið alheilbrigð. Eigum við ekki bara að segja "verður kannski ekki".

Nú er ég farin að skipta mér af og það var ekki ætlunin. Þið eruð frábærar manneskjur og gott að geta sent ykkur línu við og við. Kveðja - Fríða

Fríða (IP-tala skráð) 19.7.2007 kl. 15:20

3 identicon

Vá flottar lopapeysur Núna langar Evu Natalíu í svona líka hehehe

Og geggjaður dreumur

Oddný sys (IP-tala skráð) 19.7.2007 kl. 15:33

4 identicon

Til þess að komast af verðum við að halda í draumana okkar og það er yndislegt að fá að fylgjast með ykkur fá að upplifa eitthvað af ykkar.  Börnin ykkar bara fullkomin, falleg og yndisleg.  Við höldum bara í drauminn áfram....... vonin fleytir okkur vonandi langt.

Lilja mamma Nadíu (IP-tala skráð) 19.7.2007 kl. 15:41

5 identicon

Já vá ég er sammála,ef við ættum enga drauma,þá væri framtíðin ekki mjög skemmtileg og ég tala nú ekki um að láta drauma sína rætast,en þú talar í hálfkveðnum vísum í dag og gerir mann forvitin.Bíð spennt eftir framhaldinu.En mikið eru englarnir þínir fallegir í nýju peysunum sínum.En ég ætla að segja þér eitt að minn draumur er að allir sem eiga um sárt að binda fái bata og að lítil börn þurfi aldrei að þjást og ég bið sérstaklega fyrir prinsessunni ykkar sem er stóri engillinn og hetjan í mínum augum..baráttukveðjur

Björk Andersen (IP-tala skráð) 19.7.2007 kl. 17:03

6 identicon

Já þú lætur mann hugsa hverjir eru draumarnir manns... mínir eru að sjálfsögðu að dóttir mín yfirstígi sín veikindi sem fyrst... Eru það ekki draumar allra foreldra, að sjá börnin sín heilbrigð og hamingjusöm? Ef "heilbrigði" er ekki fyrir hendi þá er það eins og þið segið í okkar hring að láta drauma þeirra rætast og hjálpa þeim að vera hamingjusöm:) Hlakka til að sjá hvaða draum þið uppfylltuð;)

Katrín og Ólöf Alda (IP-tala skráð) 19.7.2007 kl. 22:49

7 identicon

Ja ja ,

        mér dettur í hug að þú hefur beðið fótbolta maður sem hún heldur uppá að koma og hitta hana. glott ,heh heh ég er að deyja úr forvitni  og bara gott hjá ykkar að láta draumanna rætist  ,mín alstærsta draum er að klára að mennta mig  þó svo að ég er Írsk og er að reyna að skrífa og tala Íslensku það verður svona erfitt að klára þetta en wow ef eitthvað tími verður, að ég klára það þá verð ég ánægð!!!!!!  Meira er það nú ekki, ég óska ykkar alls hins besta og mun alltaf biðja um kraftaverk handa ykkar og hver veit það er alltaf hægt að fá einn og einn kraftaverk ,

Guð geymið ykkar fallega fjölskylda og eigðu góðan helgi.

Kær kveðja Dee

Dolores Mary (IP-tala skráð) 20.7.2007 kl. 00:18

8 identicon

Mig langadi bara ad kvitta á síduna tína sem ég kíkti frá annari sídu tar sem tid fjölskyldan erud ad takast á vid stórann pakka ef svo má segja.

Yndislegt ad lesa um jákvædni ykkar. Gangi ykkur áfram vel í baráttu ykkar vid sjúkdóminn (kúkalabbann)

kv .frá sumrinu í danmörku GH 

gudrún danmörku (IP-tala skráð) 20.7.2007 kl. 09:47

9 identicon

Myndarleg börn í peysum eftir myndarlegar konur. Það er gott að eiga góða drauma.

kv Unnur

unnur Einarsdóttir (IP-tala skráð) 21.7.2007 kl. 18:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband