Leita í fréttum mbl.is

Afsakið hlé

Bara rétt að láta vita af mér, mikið að gera á stóru heimili eða svona hjá frúnni á heimilinu.  Komum heim í gærkveldi frá Legolandi, erfið en skemmtileg ferð.  Set inn nokkrar myndir við tækifæri.  Er á fullu að koma mér inní lærdóminn, Þuríður mín að byrja í nýju meðferðinni sinni á morgun eða allavega undirbúningur fyrir hana á morgun.  Er búin að vera á "fullu" að undirbúa London-ferðina fyrir foreldrana í styrktarfélaginu sem ég var búin að segja ykkur frá þannig það er frekar lítill tími fyrir skriftir en vonandi get ég gefið mér tíma á næstu dögum.

Mig langar annars að þakka henni Fríðu diggum aðdáenda mínum fyrir ljóðið sem hún sendi mer, veit ekki hvort margir lesa kommentin til mín en svona hljóðaði það:

Augun ljóma og er þar von
Ástarbros um varir
Á gæjann, Óskar Guðbrandsson
Glæsikonan starir.

Hún sendi mér það við síðustu færslu, en þá langar mig líka að nefna að mér finnst svakalega gaman að fá svona ljóð sérstaklega þegar þau eru samin beint til mínWink.  Sjálf er ég mikil ljóða kona og samdi mikið þegar ég var yngri en lítill tími hefur verið fyrir það síðustu ár, einsog þegar ég var yngri þá fékk ég oft ljóð frá afa mínum Steina skrifuð í afmæliskortin og þau voru samin beint til mín en það voru gjafirnar sem mér þótti vænst um og geymi vel.  Það þurfti sko ekkert að gefa mér einhvern pakka, það var nóg fyrir mig að fá ljóð frá afa mínum þó ung ég var.

Lærdómurinn kallar og húsverkin sem  er mitt helsta áhugamal þessa dagana eða ekki.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Því miður kann ég ekki að semja ljóð en ef ég kinni það myndi ég semja eitt fyrir ykkurkv. Brynja

Brynja í vesturberginu (IP-tala skráð) 19.9.2007 kl. 12:19

2 identicon

Velkomin heim aftur elskurnar og vona að allt gangi sem best á morgun.Hugsa til ykkar og verð með ykkur í huganum.Ég trúi því að einsdags ferð út hafi verið erfið,en örugglega þess virði..baráttukveðjur og knús

Björk töffari (IP-tala skráð) 19.9.2007 kl. 16:46

3 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Velkomin heim! Ég vildi að ég kynni að yrkja, en ég verð að láta öðrum mér fremri það eftir :)

Ylfa Mist Helgadóttir, 19.9.2007 kl. 17:19

4 identicon

Dugnaðarstúlkur.Kveðja

Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 19.9.2007 kl. 19:46

5 Smámynd: Bergdís Rósantsdóttir

Gott að heyra að þið hafið skemmt ykkur vel.  Ég er alveg sammála þér með ljóðin, þetta er eitt það skemmtilegasta sem maður fær

Bergdís Rósantsdóttir, 19.9.2007 kl. 20:30

6 identicon

Mikið er ég glöð að þér skuli hafa líka vel við litlu vísuna mína. Ég er svo heppin að Guð gaf mér færni til að gera vísur, setja saman ritað mál og koma sæmilega fyrir mig orði. Það er ekki alltaf sem við kunnum að meta það sem okkur er fært og ekki mörg ár síðan ég var að öfundast yfir þessu og hinu sem aðrir gátu en ég ekki.

Já það er mikið að gera á stóru heimili, sérstaklega þegar ein og sama konan leikur mörgum skjöldum. Njóttu þess að vera til og vasast í öllum þínum verkefnum. Guð blessi ykkur öll Fríða

Fríða (IP-tala skráð) 20.9.2007 kl. 00:40

7 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson


Gunnar Helgi Eysteinsson, 20.9.2007 kl. 06:20

8 identicon

ÚFFFFF betra að þessi kona er í formi, fer þá trúlega í form í annríkinu, ef ekki.

Gott að allt er í fínu bara hlé annríkisins.

kær kveðja frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 20.9.2007 kl. 08:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband