10.10.2007 | 16:02
Fyndið!!
Við Skari erum aðeins að taka til í fjármálunum sem er kanski ekki frásögufærandi nema hvað, fyrsta skrefið var að segja upp Sýn sem og ég gerði í gærmorgun. Alltílagi konan á símanum tilkynnti mér það að við gætum horft á sýn frammí miðjan nóvember því ég var búin að borga núna um mánaðarmótin sem var bara fínt mál. Hvað haldiði sem mér finnst fyndnast í heimi, síminn hringir hjá mér í gærkveldi og þar var kona sem kynnti sig sem einhverjar frá 365 og var að bjóða mér áskrift af Sýn. Ég hélt að ég yrði ekki eldri, whhhaaaat? Þá var hún alveg ólm í að bjóða mér einhverja afslætti, einhvern silfurklúbb og þá fæ ég einhvern 20% afslátt af þessu sem ég reyndar ekki man því ég var með hugan við eitthvað annað þar sem ég var eiginlega frekar hissa af þessu símtali. Ég afþakkaði pent tilboðið hennar enda ekki að ástæðulausu sem ég hætti áskrift ehe!!
Ég fattaði samt eftir þetta símtal að það er alltaf best að vera ekki áskrifandi í marga marga mánuði hjá sama fyrirtækinu því ég veit ef ég segði upp stöð 2 þá fengi ég strax betra tilboð frá þeim á morgun og þá myndi ég græða. Hmmm kanski ætti ég að gera það?
Statusinn á heimilinu er sæmilegur þessa dagana, Þuríður mín er að "meika" það á leikskólanum og hefur aðeins meiri orku en venjulega sem er best í heimi. Ég er aftur á móti andlaus, loftlaus, svefnlaus og svo lengi mætti telja, sef ekkert á næturnar. Eitthvað stress í gangi. Er að reyna byrja í ræktinni á fullu, fór í tíma í gær og er með harðsperrur í hverjum einasta vöðva í líkamanum. Oh mæ god!! Samt ætla ég að mæta aftur á eftir heehe, þetta er minn sálfræðingur það er að mæta reglulega í ræktina og reyna hugsa aðeins um sjálfan mig. Hef nefnilega ekkert verið að mæta reglulega síðan í vor þannig það er tími til komin að taka sjálfan sig í gegn ásamt mataræðinu. Kókið fæ ég bara um helgar og ég er alveg að deyja mig langar svo í kók núna, dóóhh!! Alltaf erfiðast að byrja en ég finn strax hvað mér líður betur við að mæta svona.
Hetjan mín eitthvað að fíflast
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
343 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gunnar Helgi Eysteinsson, 10.10.2007 kl. 16:13
Sæl Áslaug
Ég vildi bara kvitta fyrir mig en ég les alltaf bloggið þitt, takk fyrir fallegar kveðjur á blogginu okkar.
Ég hef engin orð yfir færslunni hér fyrir neðan, þvílík lítilsvirðing gagnvart veiku fólki að það geti ekki tryggt sig. Þess þó heldur eftir veikindi.
Gangi ykkur vel áfram, þið eruð ótrúlega sterk fjölskylda sem reynið að hafa lífið eins ,,eðlilegt" og hægt er. Það er ótrúlega mikils virði.
Baráttukveðjur,
Freyja Haralds
Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir, 10.10.2007 kl. 18:15
Sæl
Já það er alltaf gott að taka til í fjármálum sínum sem og mataræði, nema hvað það er alltaf frekar erfitt. En ég er mikill kókisti og fyrir tveimur mánuðum hætti ég að drekka kók, og mikið rosalega var það erfiður tími fyrir mig heheheh En það er til mjög góður staðgengill vúhúu!! Í Maður lifandi selja þau "kók" sem er náttúrulegt og alveg óvenju gott. Það kemur reyndar bara í litlum flöskum sem eru dýrar (mig minnir að 0,25 l flaska kosti um 140). Heitir Naturfrisk Classic, og það eru til nokkrar aðrar bragðtegundir sem eru góðar líka. En þetta hjálpaði mér mikið.... kók er nefnilega alls ekki gott fyrir líkaman og ég fann hvernig líkaminn breyttist bara við það eina að hætta að drekka elsku kókið Svo geta börnin líka drukkið þetta án þess að foreldrarnir fái samviskubit!!
En já, ég blaðraði aðeins meira en ég ætlaði mér.... langaði bara að benda þér á þetta. Hef lesið skrif þín í marga mánuði og eins og öllum finnst mér þið vera miklar hetjur!!
Birna (IP-tala skráð) 10.10.2007 kl. 19:54
Það er ekki að ástæðulausu sem maður hættir áskrift, samt vilja þeir halda í mann. Ég las síðustu færslu hjá þér og er að hugsa um að taka til í tryggingarmálum, þeir eru sko ekki að borga þegar loksins maður heldur að maður sé tryggður, og ef þeir borga þá er sjálfsábyrgðin svo há að það tekur ekki að rukka nema ef eitthvað meiriháttar skeður.
Ásta María H Jensen, 11.10.2007 kl. 08:14
gott að taka kókið út, einhverra hluta vegna hætti ég að drekka kók (veit sannarlega ekki af hverju) en ég finn mikin mun á mér, var búin að vera grátlega slæm í fótum, en tataradamm! miiiiklu betri. Koffínið fæ ég svo bara úr einum góðum kaffibolla og svo er kalt vatn í ískápnum :)
Gaman að heyra að hetja litla er svona góð þessa daga, sendi henni og ykkur kærleiksljós og kraft.
Skagakveðja
Guðrún Jóhannesdóttir, 11.10.2007 kl. 12:18
vá fallegust.. guð hvað hún er mikil hetja og Áslaug og Skari ég gleymi ykkur aldrei í bænum mínum.. endalaust stolt af þessari stóru/litlu hetju
Bergrún Ósk ( Viggu vinkona) (IP-tala skráð) 12.10.2007 kl. 16:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.