8.11.2007 | 11:30
Heitt, kalt, heitt, kalt, heitt, kalt
Aaaargghhh vaknaði með beinverki í nótt og er núna annaðhvort að deyja úr hita eða ligg vafin innan í sængina mína. Þetta er alveg típískt en ég verð að vera búin að hrista þetta úr mér fyrir morgundaginn, ég og Skari eigum nefnilega að vera barnlaus ALLA helgina og ætluðum að njóta þess að vera kærustupar einsog sumir myndu segja. Þetta á að vera þvílík dekurhelgi hjá okkur, njóta þess að gera allt og ekkert. Meira að segja erum við búin að panta okkur borð á Humarhúsinu á laugardagskvöldið, okkur hefur alltaf dreymt um að fara þangað að borða en aldrei leyft okkur það en núna var tími til komin að láta einn draum rætast. Við ætlum líka að kíkja í leikhús annað kvöld á "viltu finna milljón", oh mæ god ég er þvílíkt spennt og búin að bíða eftir þessari helgi í margar vikur enda var þetta ákveðið fyrir ansi mörgum vikum. Verð að hrista þessi veikindi úr mér ekki seinna en NÚNA.
Ætlaði að vera þvílíkt dugleg að læra í dag en það verður því miður ekkert úr því enda ætla ég að liggja fyrir í allan dag en stalst aðeins í tölvuna, úbbss!! Ég þarf kanski heldur ekkert að læra eheh var að fá eina tíu, vííí!! Ég er svo mikið brain! Afhverju hef ég aldrei nýtt þessa hæfileika mína áður? Glitnir mun ekki sjá eftir því að hafa styrkt mig þessa önnina en ég var ein af sirka þrjú hundruð sem sóttu um skólastyrk hjá þeim síðasta sumar og var ein af tíu sem fékk, kanski vegna þess þeir voru svo hrikalega ánægðir með mig sem starfsmann og vilja fá mig aftur þegar ég verð búin að læra hemmhemm!! Þeir borguðu sem sagt skólagjöldin mín þessa önnina og skólabækurnar og sjá ö-a ekki eftir því. Verst að það eru fleiri fyrirtæki sem sækjast eftir hæfileikum mínum og er ekkert að grínast með það enda verður það heppið fyrirtæki sem fær mig í vinnu. thíhí!!
Þuríður mín er einsog síðustu daga, frekar hress og kát. Theodór er náttúrlega litli gaurinn á heimilinu sem lætur ekkert bögga sig nema þegar einhver fer að kúra hjá mömmslunni ehe enda mesti mömmulingur ever sem er nú ekkert svo slæmt. Oddný mín er eitthvað óhamingjusöm, vill fá mömmudag sem hún fær í næstu viku en sem betur fer lætur hún ekkert bögga sig á leikskólanum en þegar hún kemur heim er einsog hún sé eitthvað þunglynd. Æjhi greyjið, þetta allt saman fer ofsalega illa í hana, hún á mjög erfitt og það verður að passa mjög vel uppá hana. Langar svo að gera eitthvað skemmtilegt fyrir hana en veit samt ekki hvað? Veit reyndar að það dugar henni að vera með mömmu sinni í einn dag og gera ekkert en svo er hún líka að biðja um ýmsa hluti sem eru ekki alveg í boði. Hmmm verð að leggja höfuðið í bleyti og reyna finna eitthvað skemmtilegt fyrir hana?
Púúúfffhh núna er mér hrikalega heitt, ætla að leggjast fyrir svo því ég VERÐ að vera góða fyrir morgundaginn. Hlakka svo endalaust mikið til helgarinnar og fá að eiga kósý stundir með Skara mínum.
Setti inn samkvæmt beiðni:"Vigdís Ellertsdóttir er einstæð móðir þriggja barna 9 , 11 og 13 ára.
Fjölskyldan býr í Njarðvík.
Fyrir nokkrum dögum greindist elsti drengurinn, Sigfinnur, með mjög slæmt krabbamein í lifur og einnig fundust meinvörp í báðum lungum þannig að ástandið er ekki gott.
Til að létta undir með Vigdísi og börnum hennar á þessum erfiðu tímum hefur verið opnaður reikningur í Landsbankanum og leitum við til ykkar sem sjáið ykkur fært að láta eitthvað af hendi rakna.
Munum bara að margt smátt gerir eitt STÓRT. Það er engin upphæð lítil.
Reikningur : 0142-05-072955 kkt: 140860-3289 Með kærri kveðju og fyriframm þökk.
VINKONUR.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
31 dagur til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
æi, þetta er nú ekki gott að vera komin með flensufja... þeir sem ég veit að hafa fengið þennanpestarfj hafa legið lágmark 3 daga!!!! en þú verður spræk á morgun, við bloggvinir þínir hljótum öll að leggjast á eitt og senda þér óþrjótandi orkustrauma til að njóta helgarinnar, það er ykkur svo nauðsynblegt. Gott að heyra af Þuríði en æi Oddný litla þarf smá tíma með mömmunni sinni, ekkert skrýtið.
EN njótið helgarinnar og haltu þig í bólinu eins og þú getur í dag dúllan mín.
Skagakveðja
Gunna
Guðrún Jóhannesdóttir, 8.11.2007 kl. 11:38
æi ekki gott að heyra að þú sérst lasin sendu mér bara pestin er lasin líka og munar ekkert um að bæta þinni pest við. kærleiksknúskv. Boston
Guðrún (Boston) (IP-tala skráð) 8.11.2007 kl. 12:09
Æi en leiðinlegt en þá er bara að vera stillt og liggja upp í rúmi og láta dekra við þig (eins mikið og þriggja barna móðir getur :-) )
vona að þið náið að njóta helgarinnar, verið góð hvort við annað og njótið þess að vera saman.
Bkv
amý (ókunnug)
amý (IP-tala skráð) 8.11.2007 kl. 12:47
Sæl Áslaug og takk fyrir síðast.
Já, nú er bara að ná úr sér þessum flensuskít og drífa sig í humarinn!!
Ég á við sömu hluti að stríða og þú mað eldri börnin mín, þetta er ekki auðvelt fyrir þau greyin. Alltaf að hafa áhyggjur af veika systkininu en kunna samt ekki að höndla þetta allt saman.
Vonandi eigið þið Óskar góða helgi því þið eigið það svo sannarlega skilið.
Kveðja frá Þórshöfn, frá mér og mörgum öðrum þakklátum......
Sóley (skb) (IP-tala skráð) 8.11.2007 kl. 13:03
...ég hef farið í Keramik fyrir alla á dekurdegi með stelpunum mínum og það fannst þeim rosa gaman...bara smá hugmynd fyrir þig
Brynja (ókunnug) (IP-tala skráð) 8.11.2007 kl. 15:59
Láttu þér batna sæta og njótið þið helgarinnar í botn,þið eigið það svo sannarlega skilið.Sendi þér ómælt magn af bataorkustraumum svo að þú verðir góð á morgun..knús til ykkar allra.Kærleikskveðjur
Björk töffari (IP-tala skráð) 8.11.2007 kl. 16:37
já ég vona að þið eigið góða helgi og skemmtiið ykkur vel bara svona tvö saman ég veit allavega að þið eigið eftir að hlæja rosalega yfir þessu leikriti það er allgjör SNILLD! en ég vona bara að þið öll fjölskyldan hafi það gott;**
KNÚÚÚs til ykkar elskurnar
Tinna Rut (IP-tala skráð) 8.11.2007 kl. 17:23
Til hamingju með tíuna þína og vonandi koma margar svoleiðis í viðbót Það er vonandi að þessi pest sem er að hrjá þig verði fljótt farin enda frábær helgi sem býður þín greinilega
Katrín Ósk Adamsdóttir, 8.11.2007 kl. 17:52
Áslaug mín er þetta ekki bara gáfnahrollur en ekki einhver pest ?- Gaman að heyra hvað þér gengur vel í náminu sem að ég gersamlega gapandi yfir að skuli vera hægt í þessu erfiðu aðstæðum- þú ert ótrúlega dugleg - vonandi batnar þér svo að þið getið notið rómantískrar helgi og það er sko mikið að hlakka til að fara út að borða á Humarhúsið - bara snilld
Þórdís tinna, 8.11.2007 kl. 18:10
Láttu þér batna strax, elskuleg!!!!
Ylfa Mist Helgadóttir, 8.11.2007 kl. 22:04
Ertu ekki búin að hrista þetta af þér??Annað kemur ekki til greina.Góða ferð á Skagann.Batakveðjur
óðan slu
Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 8.11.2007 kl. 23:20
Er ekki bara verið að "hita konuna upp" fyrir helgin. Eru USApillurnar farnar virka og hvernir er "víman" af þeim?? Gott að þið ætlið að rifja upp tilhugalífið um helginasú vísa er aldrei of oft kveðin kveðja Fríða
Guðsblessun til litlu skottanna
Hólmfríður Bjarnadóttir, 9.11.2007 kl. 13:59
Ástarkveðja til ykkar og njótið helgarinnar sem allra best,kv.linda og co.
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 9.11.2007 kl. 20:23
Láttu þér batna
Einar Bragi Bragason., 10.11.2007 kl. 01:23
K N Ú S I Ð Í B O T N. K V E Ð J A.
Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 10.11.2007 kl. 11:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.