Leita í fréttum mbl.is

Jólin snemma í ár :)

Ég er ennþá brosandi hringinn og er ekki alveg að ná mér niður enda þarf ég heldur ekkert að ná mér niður ehe!!  Þetta er svoooo mikill léttir, ég er loksins farin að sofa þessu lyf sem ég fékk alla leið frá Boston eru að gera það gott.  Well ég kalla það að vera farin að sofa þó ég vakni nokkrum sinnum yfir nóttina og get alltaf sofnað aftur heldur en að liggja andvaka alla nóttina.  Hin lyfin gerðu mig þunglynda, mjög svo, þreytt allan daginn þó ég hafi sofið um nóttina en þessi sem ég er á núna þá er ég meira vakandi og get gert meira heldur að liggja bara uppí rúmi.  Bara gott.

Jú svo fékk maður þær góðu fréttir frá henni Jóhönnu Sigurðar að hún ætlar að reyna gera betur fyrir foreldra langveikra barna.  Hverju mun það breyta fyrir okkur?  ÖLLU.  Fyrir 5 manna fjölskyldu sem er bara ein fyrirvinna og ég fæ 0kr í "laun" fyrir að eiga veikt barn breytir þetta öllu fyrir okkur.  Það er nú ekki búið að samþykkja þetta en ég trúi ekki öðru en þetta verði samþykkt, ég meina það eru 10 fjölsk. sem eru að fá greiðslur vegna langveikra barna sinna en það eiga 220 fjölsk. rétt á þessu.  Hvursu asnaleg lög eru þetta?  Fáránlegasta í heimi.  Við vorum bara svo "óheppin" að barnið okkar veiktist fyrir 1.janúar 2006 og þá eigum við engan rétt.  Ég verð eiginlega kjaftstopp að hugsa um þetta.  Það er nógu erfitt fyrir foreldra þessara barna að hugsa um barnið sitt og vera með magapínu yfir því hvernig barninu mun líða og hvernig það mun takast á við veikindin sín heldur en líka að þurfa vera með magapínu yfir því hvernig það eigi að borga reikningana sína um mánaðarmótin?  ...eða hvort þau geti haldið jólin?  Ég meina foreldrar eiga ekki að þurfa líka að hafa peningaáhyggjur hitt er barasta miklu meira en nóg.   Ég allavega hrópa húrra fyrir Jóhönnu Sigurðar og hennar fólki fyrir að taka þetta skref því þetta er stórt skref frammá við.  Knús til hennar.

Annars var önnur tían að bætast í hópinn (var í prófi á sunnudadaginn), hmmm leiðinlegt eða ekki.W00t Ótrúlegt en satt þá er ég alveg að brillera í þessu námi held að það sé bara einum of létt fyrir svona mikið brain einsog mig eheh!!  Skil ekki afhverju bankinn sé ekki búin að hafa samband við mig og bjóða mér einhverja forstjórastöðu?  Ekki það að ég gæti tekið henni en skil  það samt ekki ehe!

Púúúfffh ég hef svo mikið að segja en get bara ekki skrifað meir núna, þarf nefnilega að þjóta.  Dagarnir fljúga frá mér og það er alveg brjálað að gera, prófin að byrja.  Þó ég þurfi kanski ekkert mikið að læra fyrir þau en þá er kanski ágætt að kíkja rétt yfir bókina svo ég fái bara tíur, maður fær fullkomnaráráttu þegar maður verður svona "gamall" og sættir sig ekkert við neitt annað en 10.  Ohh boy!!

Endilega kveikið á kertum fyrir hetjurnar sem eiga erfitt núna, megið nota síðuna hennar Þuríðar minnar.  Var nefnilega að frétta af annarri hetju í gær sem á erfitt, erfitt að vera í þessa litla "samfélagi" (styrktarfélaginu) og tengjast öllu þessu fólki sem eiga veik börn.  Svoooo ósanngjarnt.  Nei þessar hetjur eru ekki með heimasíður eða kertasíður en þá er líka alveg hægt að nota okkar.

Þið eruð best og flottust, takk fyrir allt sem þið hafið gert fyrir mig og mína.

P4292176

Hérna eru stelpurnar mínar á afmælinu sínu ásamt bestu vinkonum sínum Skoppu og Skrítlu sem kíktu við í afmælið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

Guðrún Jóhannesdóttir, 15.11.2007 kl. 14:21

2 identicon

 Gleði ,gleði ,gleði, til hamingju með árangurinn Áslaug

Guðrún ( Boston) (IP-tala skráð) 15.11.2007 kl. 14:36

3 identicon

Þú ert ótrúleg - að fá 10 - með allar þessar áhyggjur og álag - ég tek ofan fyrir þér og hneigi mig djúpt!! Þú ert æðisleg!!!

Ása (ókunnug) (IP-tala skráð) 15.11.2007 kl. 16:00

4 identicon

Vá yndislegt hvað fallega hetjan fékk góða skoðun, já og auðvitað til hamingju með tíurnar allar   

Eydís (ókunnug) (IP-tala skráð) 15.11.2007 kl. 18:15

5 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

O happy days.  Já það eru virkilega góðar fréttir að nú skuli Jóhanna vera farin að taka til í flórnum  eftir Dabba og Dóra. Og það er enginn smá flór.  Hún er mjög mikill vinnuþjarkur og rekur stíft á eftir sínum nefndum.  Svo það koma örugglega fleiri góð frumvörp frá henni á næstunni. Hennar tíma er kominn svo tekið verður eftir. Það væri nú skárra ef þingið mundi ekki samþykkja málin frá þessari réttsýnu konu. Ó hvað þau eru sæt litlu skottin í myndinni í nýjast blogginu þínu.  Þú ert nú meiri garpurinn, með tíurnar í bunum, það munar ekki um það. Gleðifréttir smita og ég fer bara á smá flug með ykkur.   Guð blessi ykkur öll og ég kveiki á nokkrum kertum fyrir litlu hetjurnar sem eru svo veikar. Fríða

Hólmfríður Bjarnadóttir, 15.11.2007 kl. 21:42

6 Smámynd: Inga Steina Joh

  til hamingju með 10urnar. Gangi þér vel.

Inga Steina Joh, 16.11.2007 kl. 05:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband