Leita í fréttum mbl.is

Dagskammtur Þuríðar

lyfjamynd
Hérna er dagskammtur Þuríðar minnar og finnst ykkur skrýtið að hetjan mín sé þreytt eða ekki alveg einsog hún á að vera og þurfa taka þessi lyf daglega? Hrikalega ósanngjarnt.  Þetta gleypir hún án þess að þurfa drekka vatn með, geri aðrir betur.  Sjálf get ég varla tekið verkjalyf án þess að drekka vatn með og kúgast aðeins.  Töflurnar í hægra horninu (þessar fjórar löngu) eru krabbalyfin hennar en hinar allar eru flogaveikistöflur sem sagt fimm gerðir af lyfjum.Crying

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Elsku litla hetjan......mikið dáist ég að henni.....

Það er sko ekkert grín að koma niður svona skömmtum (með reynslu) og það án þess að nota vatn....ótrúlegt....

Já hún Þuríður er sko hetja með stóru H....

Maður verður svo sterkur þegar maður má til........(sagði þekkt barnasögupersóna)......og þetta sannast sko á henni Þuríði ykkar....Stelpan er sterk.....og veit greinilega hvað svona lyf gera.......ég dáist mikið að henni....

Fullt af góðum straumum og hlýju til ykkar .....

kv

Sigga Sig

Sigga Sig (IP-tala skráð) 27.11.2007 kl. 19:50

2 identicon

Hrikalegt, elsku besta skinnið, hún er hreint út sagt ótrúleg að geta tekið þetta allt inn og án þess að fá sér vatn, hvernig er það hægt.  Hún er bara flottust og duglegust. 

Margrét (IP-tala skráð) 27.11.2007 kl. 19:57

3 identicon

Elsku elsku fjölskylda. Langt síðan ég hef skrifað og langt síðan ég hef hitt ykkur. Hugsum til ykkar oft á dag. Hún Þuríður Arna er hetjan okkar og þið öll auðvitað líka. Þið eigið alltaf stað í bænunum okkar á kvöldin og litla mín sem er rétt rúmlega tveggja ára fór með bænirnar ein í kvöld og viti menn hún endaði á því að biðja fyrir Þuríði Örnu frænku sinni sem væri illt í höfðinu og bað Guð að laga. Hún hugsar sko líka til hennar...

Svo vildi ég segja þér að við fórum á Gosa og já alveg rétt hjá ykkur sýningin var geggjuð og það eru sko komnar þrjár vikur síðan og þau tala ennþá um Gosa sýninguna!

Unnur, Sigurður Garðar og kríli (IP-tala skráð) 27.11.2007 kl. 20:31

4 identicon

Mikið er elskan litla dugleg að gleypa þessi ósköp. Hún er sannkölluð hetja.

Kristín (IP-tala skráð) 27.11.2007 kl. 21:13

5 identicon

æj litli kroppurinn, hún er svo dugleg. Knús til hennar.

Guðrún (IP-tala skráð) 27.11.2007 kl. 22:23

6 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Ótrúleg hetja og þið öll reyndar. Tek undir þau orð sem skrifuð eru ap ofan. Það er með ólíkindum hvað lítil börn hafa mikla aðlögunarhæfni. Við fullorðna fólkið mættum líta svolítið í eigin barm

Baráttukveðjur

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 27.11.2007 kl. 22:44

7 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Oj bara. Þetta lítur nú ekki fallega út. En eins og kerlingin sagði: illt skal með illu burtrekast! Og Guð gefi að þessar pillur reki allt illt úr þessum litla fallega kroppi sem á að vera heilbrigður og sterkur!

Guðbless.

Ylfa Mist Helgadóttir, 27.11.2007 kl. 23:00

8 identicon

Sæl og blessuð,

                           ég vildi bara óska þér og hinum góðs gengis á morgun ,þú segir satt þetta er ekki skrítið að hetjan ykkar er þreytt af öll þessu lyf wow maður hvað er hægt að leggja á svona litil kropp.Guð verið með ykkur kæra fjölskylda þið eruð ótrúlega duglegur öll sömul.Ganga ykkur sem best.Kær kveðja Dee Stórt knús líka til ykkur öll sem er að leggja þetta ferð á sig á morgun Guð blessi minning hans Tómasar,og guð verið með fjölskyldan hans

Dolores (IP-tala skráð) 27.11.2007 kl. 23:07

9 identicon

Er orðlaus.Þvílík hetja.Tek endalaust að ofan fyrir henni og ykkur.Kveðja

Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 27.11.2007 kl. 23:20

10 identicon

Elsku litla snúlla! Vá, fullorðinn yrði saddur af svona dagskammti! Hún er svo dugleg og að taka þetta án vökva!! Hún er algjör hetja í mínum augum.  Guð gefi ykkur áfram styrk og kraft í þessari baráttu.

hm (IP-tala skráð) 28.11.2007 kl. 00:08

11 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

Hetjan Þuríður, ekki spurning, ekki auðvelt að gleypa allt þetta

Guð veri með ykkur öllum og gefi Hetjunni okkar styrk og heilbrigði

Guðrún Jóhannesdóttir, 28.11.2007 kl. 00:30

12 identicon

Það er FRÁBÆRT að heyra að ekkert alvarlegt kom út úr rannsóknunum hennar Þuríðar þinnar. En á sama hátt HRIKALEGT að sjá töfluhrúguna hennar.

Litla vinan hvað hún og þið öll þurfið að þola.

Sendi ykkur öllum kærleiks og baráttukveðjur

frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 28.11.2007 kl. 13:34

13 identicon

Sæl

 Ég verð frekar döpur að  lesa að þið mæðgur horfi saman á sjónvarpið og sofnið  út frá því - afhverju ekki að lesa góða sögu og sofna út frá góðu ævintíri'?????

Ólöf Jesndóttir (IP-tala skráð) 29.11.2007 kl. 22:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband