Leita í fréttum mbl.is

Hér sitjum við mæðgur og bíðum

Þuríður mín nývöknuð og situr í fanginu hjá mér og spyr mig spurninga "mamma viltu hringja á spítalann?".  Það er munur að vera svona spennt að mæta þangað enda líður henni ofsalega vel þar enda besta starfsfólk í heimi.  Fyrir ekki svo löngu hefði hún ekki sitið svona góð hjá mér vildi óska þess að hún væri ekki sitjandi svona góð hjá mér þessa stundina því þá vissi ég að henni liði vel, ég vildi óska þess að hún væri forvitin um alla hlutina í kringum okkur og væri að skoða þá, þá vissi ég líka að allt væri í lagi og henni liði vel.  Vildi óska þess að hún væri ofvirk og hvatvís þessa dagana því þá vissi ég líka að allt væri í lagi en því miður verður mér ekki að ósk minni.  Þuríður mín vill helst sitja í rólegheitunum hjá mér og ekki gera neitt eða mesta lagi horfa á eitthvað í imbanum sem er orðið æj sjaldnar því henni verður ö-a illt í augunum við það.  Ohh afhverju er ekki allt einsog það á að vera?  Ég vildi að ég þyrfti að hafa meira fyrir henni, afhverju er ekki allt eðlilegt eða einsog það var?  Barnið mitt þarf ekki að vera heilbrigt, það má alveg hafa dáltið fyrir sér enda er það ekki það versta í heimi en hún má bara hætt að þjást og líða vel einsog henni leið.  Hafa sinn stuðning á leikskólanum og láta þær hafa dáltið fyrir sér, lauma sér yfir á Oddnýjar deild eða Theodórs án þess að þær taki eftir því eheh, hún er ótrúlega lúmsk þegar henni líður sem best og laumar sér alltaf í burtu thíhí án þess að þær taki eftir því.  Afhverju getur hún ekki verið svoleiðis þessa dagana?  Nei hún getur ekki mætt í leikskólann, við knúsumst allan daginn þó að mér finnist það ofsalega notanlegt en þá væri það miklu betra ef hún hefði orku í hitt.  Ósanngjarnt!

Við mæðgur bíðum bara eftir því að klukkan verði hálf ellevu en þá á hún að mæta uppá spítala en hún er síðust í röðinni í svæfingu og kemt ö-a ekki að fyrr en um hádegi sem er ótrúlega vont því hún þarf að fasta þanga til og þó að hún borði ekki mikið þessa dagana þá þarf hún að borða.  Þurfum líka að láta læknana skoða hana betur því hún kvartar mikið um í maganum og það er ekki allt eðlilegt þarna hjá henni, við höfum tekið vel eftir því.

Þuríður mín farin að kvarta vegna svengdar og ekkert má ég gefa henni, hún er líka lögst hérna í sófan hliðina á mér og farin að kvarta því hún er orðin svo þreytt en samt bara búin að vera vakandi í tuttugu mínútur.

Ætla að veita henni meiri athygli og reyna láta hana "gleyma" svengdinni, megið krossa alla putta og tær fyrir myndatökunum.  Er ekki bjartsýn að við fáum að vita eitthvað í dag en við fengum það síðast en það verður í síðasta lagi á morgun þannig um leið og við fáum góðu fréttirnar þá mun ég blogga.

Slaugan og Þuríður Arna


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég sendi bestu og hlýjustu hugsanir mínar til ykkar.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 8.1.2008 kl. 09:45

2 identicon

Elsku mæðgur, ég vona svo heitt og innilega að góðar fréttir berist ykkur fljótt, og Þuríður litla verði hressari - krossa alla putta og tær og bið þann sem öllu ræður að vera hjá ykkur.

Vala

Vala (ókunnug) (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 09:48

3 identicon

Guð veri með ykkur, við biðjum fyrir góðum fréttum.

Baráttukveðjur Guðrun, Jói og dætur

Guðrún Bergmann (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 09:59

4 identicon

Eldk fjölskylda!

Gangi ykkur vel í dag, er búin að kveikja á kerti fyrir ykkur.  Þið eruð hetjur.

kv Anna

Anna (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 10:07

5 identicon

Elsku fallega fjölskylda.

Hið bjarta ljós sem berst til mín
með blessun sendi heim til þín
og með því kveðju kæra.
Megi það líkna og lækna þá
sem lífið kærleiksríka þrá.
Gleði og frið þeim færa

Gangi ykkur vel í dag. 

Knús á ykkur. 4 barna mamman
                           

4 barna mamman (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 10:15

6 identicon

Elsku mæðgur ,gangi ykkur rosa vel í dag,krossa fingur,sendi hlýja bæn ,baráttukv.Hrönn.

Hrönn (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 11:08

7 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Guð veri með ykkur Fríða

Hólmfríður Bjarnadóttir, 8.1.2008 kl. 11:19

8 identicon

Kæra fjölskylda ég sendi ykkur mína bestu og heitustu strauma.... Ég krosslegg tær og fingur og vona svo innilega að þið fáið góðar fréttir...

Baráttukveðjur elskurnar þið eruð ótrúlegar hetjur, ofurhetjur

Ragnheiður...

Ragnheiður (ókunn) (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 11:41

9 identicon

Knús, kremjur og krossleggingar elsku fjölskylda. Hugsa statt og stöðugt til ykkar.

Lilja Kópavogi (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 12:38

10 identicon

Vonandi verða fréttirnar góðar og ástandið ekki jafn slæmt og það hljómar.

Knús og kram og ég sendi alla mína bestu strauma til ykkar.

marianna (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 12:48

11 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

Elsku mæðgur.

Æ já hvað ég vildi að hún væri bara lítill "óþekktarrass" sem þú þyrftir að' eltast svolítið við, og hafa fyrir, hversu mikil hamingja væri það ekki, en nú er Þuríður mín ofurhetja örugglega komin í svæfingu, ég bið fyrir henni og ykkur báðum Áslaug mín að allt gangi vel.

    Lítil falleg bæn fyrir hetjuna okkar:
 

LEIDDU MÍNA LITLU HENDI

LJÚFI JESÚ ÞÉR ÉG SENDI

BÆN FRÁ MÍNU BRJÓSTI SJÁÐU

BLÍÐI JESÚ AÐ MÉR GÁÐU. 

Guðrún Jóhannesdóttir, 8.1.2008 kl. 13:03

12 identicon

Kveðja

Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 13:09

13 Smámynd: Þórunn Eva

gangi ykkur vel sætu mæðgur...

Þórunn Eva , 8.1.2008 kl. 13:41

14 identicon

Baráttukveðjur

Sólveig Jónsd (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 14:05

15 identicon

VIð krossleggjum allar okkar 100 fingur og tær á heimilinuog vonum svo að Þuríður fara að verða svolítið óþekkstórt knús til ykkar allra

Brynja í vesturberginu (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 14:16

16 identicon

Elskulega fjölskylda,

 ég er buin að fylgjast með ykkur daglega og fer inn á bloggið amk einu sinni á dag til að fá fréttir af Þuríði. Ég hef aldrei kvittað áður fyrir komu minni á þessa síðu en ákvað að gera það núna.

Ég virkilega vona og bið þess að niðurstöðurnar verði góðar og Þuríður hressist og alltaf trúi ég á kraftaverkin.

Ég vil bara segja þér að skrif þín eru falleg og snerta mig djúpt, það er ótrúlegt hvað barn sem ég þekki ekki neitt og hef ekki einu sinni séð hefur mikil áhrif á mig. Ég óska einskis heitar þessa dagana en að Þuríður sigri þennan viðbjóðslega sjúkdóm sem rústar lífi heilu og hálfu fjölskyldnanna.

 Hugur minn er hjá ykkur.  Kærleiksknús

Kveðja, nágrannakona

Nágranni í Norðlingaholtinu (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 16:21

17 identicon

Kristín (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 16:32

18 identicon

Halló elsku mæðgur.

Vonandi gekk vel í myndatökunni og að þið hafið fengið svar strax. Það er ömurlegt að henni skuli líða svona illa elsku litlu prinsessunni. Megi guð og allir englar alheimsins hlusta á bænir okkar allra og gera kraftaverk fyrir hana. Biðjum  fyrir ykkur. Knús og kossar. Kristín Amelía.

Kristín Amelía (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 17:37

19 identicon

Er búin að hafa alla putta og allar tær í kross í alllan dag dag, vona það allraallra besta. Megi allir englar og bjarvættir vaka yfir henni og ykkur öllum

knus Sigga 

sigga gulludóttir (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 17:52

20 identicon

Mikið hvað ég óska þess heitt að myndatökurnar komi vel út, eða eins vel og hægt er. Er búin að vera að biðja mikið fyrir ykkur síðustu daga og held áfram að gera.

Er með kveikt á kertum fyrir elsku fallegu Þuríði Örnu.

Knúsar og kram og það má sko alveg gráta, það er gott að gráta Áslaug mín

Halla Rós (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 18:19

21 Smámynd: Eygló

Stuðningskvitt

Eygló , 8.1.2008 kl. 18:34

22 identicon

Gangi ykkur vel elsku mæðgur.....er með kveikt á kertum fyrir ykkur....

Kv katrín

Katrín (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 19:31

23 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

sendi allar mínar bestu hugsanir til ykkar

Svanhildur Karlsdóttir, 8.1.2008 kl. 20:21

24 identicon

Gangi ykkur super vel, sendi ykkur mínar bestu hugsanir

bestu kv Eydís

Eydís (ókunnug) (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 20:28

25 identicon

Er svoooo krossløgd núna ad ég get mig ekki hreyft Megi gud gefa ad nidurstødurnar verdi svo bara gódar gódar gódar.Elsku litla hetjan okkar allra, hún á bara allt gott skilid,sem og thid øll. Sendi minar hlýjustu hugsanir og bænir til ykkar.

baráttukvedja frá danmørku.

Maria-ókunnug (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 20:41

26 identicon

Er að hugsa til ykkar og vona að myndatakan í morgun hafi gengið vel og niðurstöðurnar séu góðar  bið alla góða vætti að vera með ykkur og hjálpa til við að fá góðar fréttir af hetjunni.  kærleiks knús Guðrún ókunnug

Guðrún (Boston) (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 20:55

27 identicon

Vona að allt hafi gengið vel hjá ykkur í dag...

Kveðja

Kolla

kolla (ókunn) (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 21:53

28 identicon

Kæra fjölskylda

Hugur minn er hjá litlu hetjunni ykkar vonandi verða niðurstöðurnar góðar úr myndatökunni.  Þið eruð í bænum mínum

Bestu kveðjur

Hanna

Hanna Fríða (ókunn) (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 22:30

29 identicon

Hef hugsað mikið til ykkar og bið svo innilega að niðurstöðurnar gefa von um bjartari og ánægjulegri daga.

Kveðja Halla (mamma Lóu)

Halla (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 22:59

30 identicon

Krossleg putta og tær :)  Vonandi fáið þið góðar fréttir.Kveðja María (ókunnug)

María (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 23:16

31 Smámynd: Guðrún unnur þórsdóttir

Knús til ykkar ég krossleggi alla putta og tær og vonadi verða niurstöður góðar .knús Gunna

Guðrún unnur þórsdóttir, 8.1.2008 kl. 23:24

32 Smámynd: Guðrún unnur þórsdóttir

niðurstöður á að standa þarna knús Gunna

Guðrún unnur þórsdóttir, 8.1.2008 kl. 23:25

33 identicon

Elsku fjölskylda, hugur minn er hjá ykkur. Og ég vona að þið fáið góðar fréttir

knús

gunna (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 23:35

34 identicon

Elsku þið öll, leit inn í von um að væru komnar fréttir, en því miður engar.

Óttast að það sé vegna slæmra yfirvofandi frétta, ætla samt að vona að það sé mín endalausa "hjartveiki" og áhyggjuárátta.

En hvað með það, sendi bara ENDALAUST STÓRAR KÆRLEIKSKVEÐJUR í húsið.

frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 9.1.2008 kl. 17:37

35 identicon

Bestu baráttukveöjur til ykkar. Við kveikjum á kertum fyrir ykkur.

Ásta ókunnug og fjölskylda. (IP-tala skráð) 9.1.2008 kl. 17:53

36 identicon

Ég hugsa mikið til ykkar núna.  Vona svo innilega að niðurstöðurnar hafi verið góðar.  Ég kíki mikið hingað inn en hef ekki kvittað áður. 

Góðir straumar alla leið til ykkar

 Ég ætla að kveikja á kerti fyrir Þuríði litlu

Þóra (IP-tala skráð) 9.1.2008 kl. 18:28

37 identicon

Elsku fjölskylda. Hef fylgst með ykkur í langan tíma en aldrei skrifað. Gangi ykkur vel og vona að engar fréttir séu góðar fréttir.

Er búin að kveikja á kerti og bið heitt og innilega að þið hafið fengið/fáið góðar fréttir.

Ókunnug (IP-tala skráð) 9.1.2008 kl. 19:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband