Leita í fréttum mbl.is

Einmitt það sem hún þurfti á að halda, uuuu not!

Það er ekki á hana bætandi sko hana Þuríði mína.  Loksins þegar stúlkan er farin að fá nokkra munnbita uppí sig og fá smá orku í kroppinn þá byrjar mín að gubba en það gerði hún svona líka í nótt.  Greyjið litla! Það er greinilegt að það þarf að skoða þennan litla kropp eitthvað, ætlum að heimta smá rannsóknir á miðvikudaginn þegar við eigum að mæta í tjekk, ekki hægt að láta þetta ganga svona lengur.  Alltof mikið álag á þennan litla kropp.

Þuríður mín hefur verið á uppleið um helgina en svo kemur þetta, maður veit ekki hvort þetta er gubban sem litli íþróttaálfurinn minn var með fyrir helgi eða álagið á magan hennar og fynndist það sko ekkert skrýtið ef svo væri?

Reyndar er ég orðin slöpp líka, maginn minn farinn að segja til sín.  Þannig við mæðgur ætlum að liggja uppí rúmi í allan dag og setja eitthvað gott í imbann, hmm hvað ætli verði fyrir valinu?  Kanski Emil í Kattholti sem er orðið mikið uppáhald þessa dagana og kanski fæ ég að setja heilsubælið í Gervahverfi í inná milliW00t, fengum nefnilega flakkara í jólagjöf og það var verið að fylla á hann mikið af skemmtilegum myndum, bara gaman!

Púffhh farin að svima hérna við tölvuna, ætla leggjast undir sæng með Þuríði minni og horfa á það sem hún er að horfa á.

Hérna er ein ofsalega falleg mynd af hetjunni minni sem var tekin um helgina, eitthvað svo hugsi og mér finnst hún svo fullorðinsleg þarna enda barnið nálgast sex ára aldurinn og alveg að byrja í skóla sem hún hreinlega getur ekki beðið eftir.
turidur.hugsi


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Æi vonum að þetta sé samt "bara" gubban.... þá er þetta yfirstaðið hja henni... Hún er svo falleg, æðisleg mynd!

Katrín Ösp (IP-tala skráð) 14.1.2008 kl. 09:00

2 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Mér heyrist gubbupestin hafa náð til ykkar mæðgna. Sem betur fer gengur hún fljótt yfir en eins og þú segir réttilega;Þuríður litla mátt síst við slíkri pest núna. Vona að ykkur gangi að halda einhverjum vökva niðri í dag.

Yndisleg mynd af prinsessuskottinu, gullfalleg

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 14.1.2008 kl. 09:02

3 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Æðisleg mynd af Þuríði

Gunnar Helgi Eysteinsson, 14.1.2008 kl. 12:24

4 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Vonum að Þuríður sé bara með gubbuna sem þið eruð með og þetta taki nokkuð fljótt af. Myndin af henni er algjör gullmoli eins og stúlkan sjálf. Látið ykkur líða vel undir sænginni og Guð veri með ykkur Fríða

Hólmfríður Bjarnadóttir, 14.1.2008 kl. 12:28

5 Smámynd: Guðrún Erla Sumarliðadóttir

Mikið svakalega er þetta falleg mynd af hetjunni ykkar,alveg yndisleg.

Gangi ykkur vel og guð styrki ykkur öll.

Guðrún Erla Sumarliðadóttir, 14.1.2008 kl. 13:22

6 identicon

Falleg mynd af fallegustu hetjunni.  Held að það sé kominn tími á að doktorarnir geri eitthvað til að hjálpa henni til að hressa sig við æi litla skinnið þetta er svo vont.  Bið mínar bænir til ykkar og vona að þessi vika verði betri.

Hamingjuóskir með litla kút

með kærleik 4 barna mamman

4 barna mamman (IP-tala skráð) 14.1.2008 kl. 13:25

7 identicon

Mér heyrist á öllu að þetta sé gubbupestin eða vona það .  Mikið er barnið fallegt , bið áfram fyrir ykkur og vonandi batnar ykkur fljótt. Kærleikskveðjur.

Kristín (IP-tala skráð) 14.1.2008 kl. 13:40

8 Smámynd: Kolgrima

Þetta er falleg mynd af litlu, fallegu telpunni þinni. Ég vona svo sannarlega að  henni fari að líða betur.

Kolgrima, 14.1.2008 kl. 14:17

9 identicon

Æi en ömurlegt að gubbupestin sé að banka upp á hjá ykkur,Þuríður má nú engan vegin við því,en vonandi gengur þetta fljótt yfir.Þetta er alveg dásamlega falleg mynd af uppáhaldshetjunni minni og það er eitthvað svo mikil ró yfir henni...guð veri með ykkur elskurnar..

Björk töffari (IP-tala skráð) 14.1.2008 kl. 14:58

10 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

vona sannarlega að þetta sé "bara" gubbupestin, tekur þá fljótt af.

Farið afar afar vel með ykkur.

Skagakveðja

Guðrún Jóhannesdóttir, 14.1.2008 kl. 16:32

11 identicon

jeminn eini já hún er guðdómlega falleg mig langar í eina svona

Gangi ykkur öllum rosalega vel

Dísa

Dísa (IP-tala skráð) 14.1.2008 kl. 18:47

12 identicon

Flott mynd af prinsessuni

hugsun til ykkar

Dagrún (IP-tala skráð) 14.1.2008 kl. 18:48

13 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Þetta er algjör Hollywood mynd. Rosalega dramatísk og falleg!! Gangi ykkur vel á miðvikudaginn og vonandi er gubbupestin að lina tökin á heimilinu!!

Ylfa Mist Helgadóttir, 14.1.2008 kl. 19:25

14 identicon

Vonandi lagast litli mallakúturinn fljótlega. Það yrði svo sannarlega ekkert skrítið ef lyfin væru eitthvað farin að reyna á svona lítinn maga en vonandi er þetta frekar "bara" gubbupesti - því þá líður þetta fljótt hjá.

Tek undir með öðrum hér að ofan; þvílíkt gersemi og augnayndi þessi stelpa

Óla Maja (IP-tala skráð) 14.1.2008 kl. 20:54

15 Smámynd: Þórunn Eva

Hreinlega FALLEGUST.....

Þórunn Eva , 14.1.2008 kl. 22:27

16 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Þetta gæti verið Audrey Hepburn á barnsaldri Falleg stúlka, falleg mynd.

Rúna Guðfinnsdóttir, 15.1.2008 kl. 08:54

17 Smámynd: Elsa Nielsen

Guðdómlega falleg mynd af Þuríði Örnu

KNÚÚÚS

Elsa Nielsen, 15.1.2008 kl. 09:17

18 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Knús knús til ykkar.

Mestu og bestu baráttukveðjur úr Kópavoginum

Kjartan Pálmarsson, 15.1.2008 kl. 10:54

19 identicon

Yndisleg myndin af fallegustu Prinsessunni. Megi góður Guð blessa hana og vernda.

kveðja

Kristbjörg (ókunnnug)

Kristbjörg (ókunnnug) (IP-tala skráð) 15.1.2008 kl. 13:55

20 identicon

Takk fyrir innlitið og ég get nú alveg sagt að þú átt nú bara guðdómlega falleg börn.

kv. Maggý og fjölskylda 

Maggý (IP-tala skráð) 15.1.2008 kl. 15:47

21 identicon

Bryndís R (IP-tala skráð) 15.1.2008 kl. 19:56

22 identicon

Gvuð hvað hún er ofboðslega fallegt litla dúllan þín.

Maður fær svona sætabrauðssting í hjartað að sjá svona fallega mynd af henni. Gangi ykkur vel að losna við gubbubjakkið.

knús

GunnaG (IP-tala skráð) 15.1.2008 kl. 20:56

23 identicon

Hæ elskurnar, jeminn hvað hún er hugsi þarna þessi fallega dama.  Hún er svo þroskuð eitthvað og fullorðinsleg. Kannski engin furða af þessari líka flottu ætt

Ég er viss um að þetta er bara pestin. Verst að hún náði til ykkar því hún er svo ferlega orkufrek. Endilega liggið bara í bólinu og látið ykkur batna. Það er hvort eð er ekkert betra en kúra í rúminu með þeim sem maður elskar

sigga gulludóttir (IP-tala skráð) 15.1.2008 kl. 21:53

24 identicon

Knús knús til ykkar.

Mestu og bestu baráttukveðjur

Hulda Klara (IP-tala skráð) 15.1.2008 kl. 21:55

25 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Óteljandi kossar og knús til ykkar

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 15.1.2008 kl. 23:10

26 identicon

Elsku fjölskylda, mikið finn ég til með ykkur.  Litla hetjan ykkar er gullfalleg. 

Guð og gæfan fylgi ykkur.

kv. Emma

Emma Vilhjálmsdóttir (IP-tala skráð) 17.1.2008 kl. 01:00

27 Smámynd: Alexandra Guðný Guðnadóttir

yndislega' falleg börn..Er búinn að vera að gæjast hér inn af og til Og hún er svo mikil hetja fallega stelpan og systkynin hennar líka þau eru jú með í þessari baráttu... koss og knúsar kv Allý

Alexandra Guðný Guðnadóttir, 17.1.2008 kl. 14:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband