24.1.2008 | 09:50
Iceland next top model
Þegar þið labbið frammhjá blaðarekkanum í Bónus eða Hagkaup næstu daga látið ykkur þá ekki bregða þegar þið sjáið framan á Vikuna. Gullfalleg kona þar á ferð sem er á leiðinni í "Iceland next top model" og þessi fallega kona heitir því fallega nafnið Áslaug Ósk sem sagt ÉG. Oh mæ god ég vissi ekki að ég myndaðist svona vel og svo ef þið flettið blaðinu í sirka miðju þá kemur svaka flott viðtal. Ég er mjög sátt við viðtalið, vel unnið enda góður blaðamaður þar á ferð. Endilega kaupið blaðið ef þið viljið eiga fallegar úrklippur uppá vegg, tilboðin eru allavega farin að streyma til mín. Stundum er erfitt að vera falleg, mhúhahaha!!
Gjöfin hans Theodórs Inga míns reddaðist, ég vil þakka Toy's rus fyrir góða þjónustu en þeir áttu öll tæki og tól sem vantaði í gjöfina og meira að segja settu hana saman fyrir okkur. Frábær þjónusta þar á ferð.
Afmælið hans var líka snilld, allir grannarnir mættu í pizzupartý og held að þeir skemmtu sér vel ehe. Leynigesturinn mætti á svæðið en nei það voru ekki Skoppa og Skrítla en góð ágiskun samt því þær hafa reynst börnunum okkar mjög vel í þessari veikindasúpu og alltaf tilbúnar að koma í heimsókn ef við biðjum þær um. Frábærir listamenn þar á ferð og tilbúnar að gera góðverk. En það var besta vinkona Þuríðar minnar sem mætti á svæðið engin önnur en Halla hrekkjusvín og það er alltaf svo gaman að sjá hvernig Þuríður mín tekur á móti henni og vill ekki sleppa takinu. Hún er einmitt búin að koma í heimsókn til Þuríðar minnar öðru hvoru frá því hún fór til Boston í aðgerðina sína, frábært listamaður einsog hinar tvær og gefur mikið af sér til Þuríðar minnar og búin að panta koma í afmælið til þeirra systra í vor. Bara gaman!! Ætli ég skelli ekki nokkrum myndum af því á morgun, ég er nefnilega ekki heima núna og er ekki með myndirnar hjá mér. Þetta var bara gaman og þuríði minni langar að senda henni Höllu sinni sætu hrekkjusvín stórt knús fyrir heimsóknina og að sjálfsögðu hin líka en það eru einhver ákveðin tengsl á milli Þuríðar og Höllu. Gott að eiga góða að.
Kíktum uppá spítala í morgun í lyfjamælingu sem við fáum reyndar ekki úr fyrr en seinni partinn í dag en svo var það vikulega vigtunin en hetjan mín er ekki búin að þyngjast um gramm en hún er farin að borða meira en venjulega þannig ég held að þetta sé að koma hjá henni. Hún er farin að mæta í tvo tíma í leikskólann á dag sem er ágætt, ágæt byrjun. Hún hefur ekki orku í meira en mér finnst þetta svakalega gott og vonandi allt í áttina þó ég sé ekki farin að fagna strax en allavega léttari yfir manni. Vííí!!
Við skari erum líka að fara í sumarbústað, húbbahúbba!! Reyndar ekki fyrr en eftir eina og hálfa viku en ég get ekki beðið. Oh boy hvað ég ætla að liggja í leti og gera EKKERT og svo er annað program í vændum fyrir okkur TVÖ. Trallalala!! Jú svo erum við mamma að undirbúa ömmu og mömmu helgi fyrir Oddnýju Erlu mína, reyndar erfitt að finna helgi en það mun takast sem verður líka bara gaman. Oh það er svo margt skemmtilegt framundan einsog ég hef oft sagt áður þá er svo gott og gaman að hafa eitthvað til að hlakka til. Bara nauðsynlegt.
Ætli ég fari ekki að reyna rembast við að læra eitthvað áður en ég næ í hetjuna mína, alltof erfitt að koma sér í þann gírinn en það gengur ágætlega nema eitt fagið. Það kemur vonandi þegar ég get farið að einbeita mér almennilega að lærdómnum og Þuríður mín kanski að mæta meira í leikskólann.
Endilega kaupið nýjustu Vikuna og klippið út myndirnar af verðandi "Iceland next top model" þær verða verðmætar síðar meir, sjáið bara til.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
343 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Elsku Áslaug,þetta er rosa gott viðtal svo ég tali nú ekki um myndirnar,þetta eru ekki svo ágætar myndir svo sum,því þú ert BARASTA svona falleg sjálf,gegnumfalleg og kemst alveg örugglega í keppnina "Iceland næsta top MÓÐIR ,ekkert minna fallega kona. Baráttukveðja.Hrönn.
Hrönn (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 11:04
Ég efast ekki um það eina mínútu að þetta viðtal er örugglega frábært og ég ætla að kaupa vikuna og lesa,ekki spurning.En gott að heyra að hetjan mín er á uppleið,smáhænuskref betra en engin...sendi ykkur kærleiksknús og eigið þið góðan dag elskurnar..knús
Björk töffari (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 11:15
OMG hvað ég er spennt að kaupa Vikuna og sjá þessa flotti skvísu sem þar er á myndum. Mikið er gott að Þuríður er að styrkjast og hressast, byrjuð í leikskólanum og alles. Afmælisbarnið glatt með gjöfina sína og hjónin á leið í letiferð í sumarbústað. Sem sagt allt á uppleið og hvað er hægt að hafa það betra. Fríða
Hólmfríður Bjarnadóttir, 24.1.2008 kl. 11:52
Ekki spurning að blaðið verður keypt!!
Gott að heyra að Þuríður sé farin að borða meira, nú rífur hún þetta úr sér litla skruddan.
Kveðja Sóley
Sóley (skb) (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 12:33
kaupi blaðið sæta og p.s æfðu stútin þær komast alltaf langt á honum ehehehehehehe ;)
Þórunn Eva , 24.1.2008 kl. 13:14
kvitt-kvitt og kveðjur
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 24.1.2008 kl. 13:15
Já módel ég fer að kaupa blaðið núna verð að sjá þetta Og það er gott að afmælið reddast og það er gott að eoga góðan að koss og knus Allý
Alexandra Guðný Guðnadóttir, 24.1.2008 kl. 13:23
Kaupi vikuna ekki spurning. Gaman að heyra góðar fréttir af litlu hetjunni og frábært að heyra að hún er farin að mæta í leikskólann þó að það séu bara 2 klukkutímar þá er það bara til að styrkja hana og hressa. Kærleikskveðjur.
Kristín (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 15:26
Glæsó Yndislegt að heyra að skottan er á uppleið og mamman í klassagír. Ég er búin að sjá myndirnar af næsta top modeli íslands, þú ert bara flottust.
Hugheilar baráttukveðjur,
Ragna
Ragna (ókunn) (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 17:48
Glæsilegt viðtal við glæsilega konu, gangi ykkur vel í baráttunni, les alltaf bloggið þitt og læri að ekkert er sjálfgefið í henni veröld.
kveðja Sæunn
Sæunn (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 18:06
Myndin af þér er rosalega góð sá blaðið í Bónus áðan á eftir að lesa en myndirnar eru fallegar . Gangi þér vel
kv
Sigga þóra
Sigríður Þóra Magnúsdóttir, 24.1.2008 kl. 18:43
Búin að sjá myndina. Ótrúlega flott
Bryndís R (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 21:01
Er einmitt nýbúin að lesa viðtalið og loksins fattaði ég á hverja þú minnir mig :)
tadarada ...... Alison Dubois miðilinn í Medium, þú ert nú reyndar myndarlegri en þið gætuð sko verið systur.
Þetta eru mjög fínar myndir af þér og viðtalið stórfínt.
Vonandi er allt að hallast í rétta átt hjá ykkur núna, þetta er alveg orðið gott.
Nú fer að vora (ein voða bjartsýn.. híhí) og þá fer að birta til.
Myndin af Þuríði þarna þegar hún er 3 ára er alveg svakalega sæt.
Kveðja,
Þórunn
Þórunn (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 22:35
Ég sá vikuna áðan og ekki hægt að neita því að þarna er glæsikona á ferð Til hamingju með afmæli drengsins Hafið það sem allra,allra best
Katrín Ósk Adamsdóttir, 24.1.2008 kl. 23:44
Kíkti í blaðið og las í fljótheitum. Rosalega falleg mynd af þér!! Og viðtalið gott!
Bless you ;o)
Ylfa Mist Helgadóttir, 25.1.2008 kl. 01:47
hef verið að fylgjast með ykkur og veit af eigin raun, óskyld mál að vinna með barnið sitt alla daga í trú, von og kærleika er verkefni sem á stundum er nær óbærilegt. Bið alla góða að hjálpa með huga og hönd ykkur öllum til bata.
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 25.1.2008 kl. 03:36
Það er rétt flott mynd.
Þú ert Mamma Vikunar!
Bestu kveðjur til Þuríðar! Þeirrar miklu hetju.
Kjartan Pálmarsson, 25.1.2008 kl. 09:18
Bestu kveðjur og njótið helgarinnar sem allra allra best elskurnar mínar og eins og Kjartan segir elsku Áslaug mín, þú ert mamma vikunnar
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 25.1.2008 kl. 10:33
uhhh,,, Flott mynd af þér, varstu eitthvað photo-shoppuð? Nei bara spyr djók í mér ehehhehehe
Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 25.1.2008 kl. 21:59
Það hefði verið gaman að hafa möguleika á að lesa þetta blað...
Gunnar Helgi Eysteinsson, 25.1.2008 kl. 23:15
Skellti mér í Hagkaup í dag og viti menn beint við kassann var Vikan svo ég kippti því með. Kaupi annars aldrei þetta blað !
Er reyndar ekki búin að lesa greinina en það verður gert rétt á eftir :) Hlakka til.
LáraH. (IP-tala skráð) 27.1.2008 kl. 01:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.