Leita í fréttum mbl.is

Hamingjan stóð ekki lengi :(

Hvað er málið?  Afhverju má henni ekki líða vel?  Ég var orðin svo bjartsýn í gær í svo langan tíma og þorði að skrifa um það því ég veit alltaf þegar ég hef skrifað hvað henni líður vel og allt svo yndislegt þá fer henni að "hraka" aftur.  Viti menn það gerðist líka í gærkveldi, ég var varla búin að ýta á "save" hnappan þegar ég leit inní herbergið hennar og fannst hún vera að hitna en hélt kanski og jú vonaði að mér fannst þetta bara því mér var sjálfri svo kalt.  Vitlaus var ég, klukkutíma síðar vaknar hetjan mín og svona líka brennandi heit (ég fékk blöðrur þegar ég kom við hana) og að sjálfsögðu rak ég Skara minn í það að koma með mæli og stíl því ég vissi að það væri ekki góð útkoma.  Andskotans, helvítis (sorrý en ég leyfi mér að blóta þegar ég er orðin virkilega reið og leið) en stúlkan var komin með 40,2 í gærkveldi og nóttin var hræðilega erfið.  Hún kvartaði mikið um verki í tönnunum og svo núna kvartar hún yfir því hvað hún sé þreytt enda var ekki sofið mikið í nótt og svo er hún náttúrlega mjög slöpp.  Tók mér einmitt núna 5 mínútna pásu í að skrifa til að setja hana uppí rúm því hún vildi fara sofa en samt nývöknuð, ég bíð ekki í það ef hún verður aftur svona einsog í des.  Þegar ég var að setja hana uppí rúm hafði hún nú samt að ropa það útur sér að hún væri að fara í skóla eheh, yndislegust!  Er svo ótrúlega spennt þessi elska.

Ég bara skil ekki þennan tilgang með að pína hana svona, er hún ekki búin að fá nóg?  Má hún ekki fara að njóta lífsins og geta leikið sér almennilega?  Afhverju þarf alltaf að láta hana vera svona slappa?  Ég er virkilega reið og hrikalega leið þessa stundina, líðan hennar breytist alltof hratt, þetta er svo mikill rússíbani sem við lifum í.  Ég sem var svo glöð í gærkveldi og fann virkilega góðan líðan í hjartanu sem ég hef ekki funndið lengi.

Þetta líf er svoooo ósanngjarnt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Stórt Knússss til ykkar

Luv Magga

Magga (IP-tala skráð) 8.2.2008 kl. 08:12

2 identicon

Kærleikskveðjur til ykkar allra, kveiki á kerti fyrir hetjuna.

Gróa ókunnug (IP-tala skráð) 8.2.2008 kl. 08:40

3 identicon

Æi elsku litla hetjan mín,það á ekki af þér að ganga..ég segi eins og þú Áslaug mín,,af hverju er þetta svona og hvaða tilgangi þjónar þetta?Sennilega fáum við engin svör við því.En ég bið góðan guð og allar góðar vættir að senda henni orku-og batastrauma með von um betri líðan...kærleiksknús

Björk töffari (IP-tala skráð) 8.2.2008 kl. 08:43

4 identicon

Æi, þetta er svo erfitt.... hugsa til ykkar...

Katrín Ösp (IP-tala skráð) 8.2.2008 kl. 09:40

5 Smámynd: SigrúnSveitó

SigrúnSveitó, 8.2.2008 kl. 10:27

6 identicon

Elsku Áslaug og co

Gefðu henni Þuríði minn

allan kraft sem hún á inni

til að komast í gegnum þessa þraut

láttu alla sjúkdóma hverfa á braut

þið eruð í bænum mínum ALLTAF

kveðja Ása

asa (IP-tala skráð) 8.2.2008 kl. 10:30

7 Smámynd: Sólrún

Ohh ég vildi að ég hefði völd til að geta bætt líðan litlu stúlkunnar ykkar.... Maður finnur til í hjartanu... eða eins og börnin segja.. fær illt í hjartað við þessa lesningu Vona að litla skottið hressist fljótt.. Batakveðjur og risa knús...

Sólrún, 8.2.2008 kl. 10:46

8 Smámynd: Sigríður Jónsdóttir


Haltu uppi trúni - vonini þetta á eftir að ganga vel.

kv sj 

Sigríður Jónsdóttir, 8.2.2008 kl. 10:52

9 Smámynd: Elsa Nielsen

BATA KNÚÚÚÚS !

Elsa Nielsen, 8.2.2008 kl. 11:28

10 identicon

Knúskveðja

Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 8.2.2008 kl. 12:58

11 identicon

en leiðinlegt að heyra þetta - ég brosti einmitt út að eyrum eftir síðustu færslu hjá þér... var virkilega með von um betri tíð hjá Þuríði skvísu.  Ef það væri nú eitthvað sem ég gæti gert til að laga þetta þá væri ég löngu búin að því...  Þessi raun er svo erfið og ég vona svo sannarlega að lífið farið betri höndum um litlu elskuna þína og alla fjölskylduna, því þið kveljist jú líka að horfa svona upp á hana.

Sendi ykkur kærleiksstrauma

Berglind Elva (IP-tala skráð) 8.2.2008 kl. 13:29

12 identicon

En hvað þetta er sorglegt. Ég kveikti á kerti fyrir hana og vona svo sannarlega að það nuni lýsa ykkur og Þuríði fari að líða vel sem fyrst.

Kær kveðja til ykkar.

Guðrún (IP-tala skráð) 8.2.2008 kl. 13:38

13 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

æ og ég var svo glöð

Vonandi lagast þetta fljótt elsku krakkar mínir. Sendi ljós og orkustrauma til ykkar

Guðrún Jóhannesdóttir, 8.2.2008 kl. 13:41

14 identicon

Elsku þið öll, sendi endalaust mikinn kærleik til ykkar það er HRIKAEGT hvað þið eruð að glíma við.

frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 8.2.2008 kl. 13:43

15 identicon

Haltu samt í vonina, þetta gæti verið eitthvað meinlaust, en þar sem hún er svo viðkvæm fyrir þá er það þrefalt erfiðara fyrir hana en aðra. Vertu jákvæð (þó það sé erfitt). Kannski vill kallinn þarna uppi að hún jafni sig alveg, en það þurfi að fórna e-u öðru til að það gangi, eins og að hún fáir allar þessar umgangspestir og svona. Æji skilurðu hvað ég miena...

Bjarney (IP-tala skráð) 8.2.2008 kl. 14:18

16 identicon

Vonandi hressist hún sem fyrst. Knús, Oddný

Oddný (IP-tala skráð) 8.2.2008 kl. 14:41

17 identicon

Vona að þetta sé bara tímabundið bakslag, kinnholubólgur og flensa og að hún verði fljót að hrista það af sér, já ég trúi því, hún er svo mikil kraftaverkastelpa.

Anna Lilja (IP-tala skráð) 8.2.2008 kl. 15:11

18 Smámynd: Fallega fólkið í Leeds

Sendi ykkur innilega batastrauma....  Langar að senda þér link á video sem ég fann og hreyfir alltaf við mér....líkt og baráttuþrekið og trúin ykkar.  Það er einmitt ótrúlegt hvað fólk þolir og gerir þegar á reynir eins og þið hafið svo sannarlega sýnt okkur.

http://www.heilsufrettir.is/viewStory.php?distributor=&curDistributor=xyz&storyID=2739&pageType=prod&noFollowStory=  

Vona að linkurinn virki ef ekki þá er það allavega hér www.heilsufrettir.is/xyz fyrir miðju á forsíðunni....

Kveðja, Halldóra

Fallega fólkið í Leeds, 8.2.2008 kl. 15:26

19 identicon

Æ elsku fjölskylda, þúsund knús og góðar bænir til ykkar .Baráttu kraftaverkskveðjur.Hrönn..

Hrönn (IP-tala skráð) 8.2.2008 kl. 16:38

20 identicon

Æ. mér fannst himneskt af öllu að lesa færsluna þína í gær.Bið að litla kraftaverkabarnið hressist fljótt.

Kristín (IP-tala skráð) 8.2.2008 kl. 17:07

21 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Sendi ykkur bestu batakveðjur til snúllunnar, vona að þetta verði yfirstaðið sem fyrst svo hún geti haldið áfram að valhoppa og hlakka til skólans, elsku dúllan.

Guðríður Haraldsdóttir, 8.2.2008 kl. 18:31

22 identicon

Æi elsku litla stelpan. Það á ekki af henni að ganga. Vonandi getið þið hvílst um helgina og að snúllunni ykkar fari að líða betur, mér finnst þetta löngu orðið gott.

Baráttukveðjur

Ingibjörg (IP-tala skráð) 8.2.2008 kl. 18:45

23 Smámynd: Bergdís Rósantsdóttir

knús

Bergdís Rósantsdóttir, 8.2.2008 kl. 19:39

24 Smámynd: Alexandra Guðný Guðnadóttir

Koss og knús Allý

Alexandra Guðný Guðnadóttir, 8.2.2008 kl. 22:13

25 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Knús knús og kveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 8.2.2008 kl. 22:31

26 identicon

Knúsog kertaljós fyrir ykkur.

Sólveig Jónsd (IP-tala skráð) 8.2.2008 kl. 22:47

27 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Baráttukveðjur

Guðborg Eyjólfsdóttir, 9.2.2008 kl. 08:55

28 identicon

En leiðinlegt að heyra, það var svo æðislegt að lesa færsluna þína í gær.  Vonandi gengur er þetta ekki alvarlegt.  Baráttukveðjur Mæja  PS. ótrúlegt myndband.

María (IP-tala skráð) 9.2.2008 kl. 09:25

29 identicon

Halló elsku fjölskylda.

Fyrst svona rosalega góðar fréttir og svo ömurlegar strax á eftir. Reynið að fara vel með ykkur elsku vinir í þessar endalausu baráttu.   Hugsa mikið til ykkar og bið fyrir ykkur. Knús og kossar Kristín Amelía.

Kristín Amelía (IP-tala skráð) 9.2.2008 kl. 09:39

30 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Batakveðjur til hetjunnar!!!

Ylfa Mist Helgadóttir, 9.2.2008 kl. 11:30

31 identicon

 æ hvad thetta er leidinlegt,eins og var gaman ad hún var svona hress og farin ad likjast sjálfri sér. Alveg ótharfi ad leggja enn meira á hana,má hún bara ekki fá stundarfrid blessad barnid en bara baráttukvedjur hédan frá DK

María-ókunnug (IP-tala skráð) 9.2.2008 kl. 14:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband