Leita í fréttum mbl.is

Ömurlega leiðinlegt

Ég veit eiginlega ekki hvað ég á að skrifa, hetjan mín er ennþá mjööööög slöpp með yfir 40 stiga (40,2) hita og liggur alfarið bara fyrir.  Var reyndar ágætlega hress í morgun þegar við mættum uppá spítala en þá var hitin að koma aftur og svo bara búúúúmm lögst fyrir og ömurlegt að sjá hana í þessu ástandi.  Er ekki komið gott?   Það var eiginlega komið gott fyrir þremur árum, aaargghh!  Við fengum nú það í gegn að setja hana í allar þessar myndatökur á morgun til að ath hvort það sé eitthvað að bögga hana þannig það verður spítalinn á morgun. 

Hún er ótrúlega föl og það væri óskandi að læknar myndi mæla með því að maður færi í sólina til að láta han líta aðeins betur út ehe!!  Mikil óskhyggja!  .....og auddah heldur hún ekkert áfram að þyngjast, búin að léttast aftur um það sem hún þyngdist í síðustu viku.

Ég er ekki alveg að nenna skrifa hérna, alltof sjaldan sem ég hef góðar fréttir að segja frá.  Hundleiðinlegt!

Enda þessa færslu bara á þremur myndum:

turid.halla
Hetjan mín með bestu vinkonu sinni sumarið '06

theod.kr
Með þeim flottustu KR-ingum sem ég þekki, Theodór Ingi minn nokkra vikna í bangsa-KR-búningnum hans afa Hinriks.

oddny.sumar
Oddný Erla þriggja mánaða, þarna er hún stödd á Þingvöllum í sirka 30 stiga hita.  Bara yndislegt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Alexandra Guðný Guðnadóttir

Æji snúllan ekki gott.En gott að það sé verið að fara í myndatökur... Gegjaðar myndir.. koss og knús Allý

Alexandra Guðný Guðnadóttir, 14.2.2008 kl. 14:50

2 identicon

Leitt að heyra hvað hetjunni okkar líður ílla. Þetta eru erfiðir tímar og stöðugar áhggjur, skil það vel.  Skrifaðu bara bara  það sem Þú vilt vinan, við sem lesum gerum það (vonandi öll) til að styðja ykkur í baráttunni og reynum eftir megni að taka við og bera áhyggjurnar með þér (ykkur) Gangi ykkur sem allra best í læknastússinu  

Jóhanna (ókunnug) (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 15:01

3 identicon

Svo krúttlegar myndir.  Kveiki á kerti og bið þess að ykkur gangi vel í myndatökunum.  Guð blessi ykkur.

Kristín (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 15:04

4 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

Svanhildur Karlsdóttir, 14.2.2008 kl. 15:13

5 Smámynd: Linda litla

Þetta er ekki gott að heyra. Og skil þig að þig langi að setja inn góðar fréttir. Elsku Áslaug gangi ykkur vel og ég sendi ykkur baráttukveðjur.

Ég bið fyrir Þuríði, ég er búin að bæta henni í mínar bænir á kvöldin.

Linda litla, 14.2.2008 kl. 15:58

6 identicon

 Knús á ykkur og baráttukveðjur.

kv. Guðrún

Guðrún (Boston) (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 16:06

7 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Bið Guð að það finnist ástæðan fyrir öllum þessum hita sem er að hella sér í hana Þuríði.  Guð veri með ykkur Fríða

Hólmfríður Bjarnadóttir, 14.2.2008 kl. 16:45

8 identicon

Elsku fjölskylda, ég veit það kemur einföld og góð skýring á hitanum á myndnum eitthvað sára einfalt. Knús og kærleikur til ykkar á degi ástarinnar.

Endilega leyfðu okkur að fylgjast með þótt það séu ekki bara góðar fréttir.

sigga gulludóttir (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 17:05

9 identicon

Alltaf jafn flottar myndir af gullmolunum ykkar.

Slæmt að heyra að hetja litla sé með allan þennan hita dag eftir dag.

Vonandi gengur ykkur vel á morgunn og svo fara að koma inn góðar fréttir frá þér. Vertu vongóð og knús og kossar á ykkur öll

GunnaG (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 17:32

10 Smámynd: Agnes Ólöf Thorarensen

Hún er Þuríður  litla er svo sannarlega heppin að eiga svona yndislega mömmu eins og þig Áslaug mín.Þið eruð svo sannarlega með í mínum bænum.Knús

Agnes Ólöf Thorarensen, 14.2.2008 kl. 19:49

11 identicon

Elskuleg,sendi ykkur stuðningskveðjur.

Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 20:12

12 identicon

Baráttukveðjur

Berglind Elva (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 21:49

13 identicon

Sendi ykkur fullt af ljósi og kærleik, haltu áfram að skrifa, hugsa til litlu Þuríðar Örnu og ykkar.  Gangi ykkur vel

Sæunn (IP-tala skráð) 15.2.2008 kl. 00:33

14 identicon

Elsku Áslaug...hugsa til ykkar og bið að fallega hetjan fái betri líðan og allt verði í lagi.Sendi ykkur kærleiksknús og baráttukveðjur

Björk töffari (IP-tala skráð) 15.2.2008 kl. 03:11

15 identicon

Elsku litla Hetjan fallegasta þetta er sárt að heyra, með allan þennan hita og svo að léttast aftur.

Ég bið alla mína guðs engla að vaka yfir henni og senda henni styrk, hún og þið eruð alltaf í huga mínum.

Þau systkinin eru svo falleg öll sem eitt, ég segi að börn séu kraftaverk og stend fast við það, Þuríður Arna er mjög  mikið kraftaverk og ég trúi á að kraftaverk gerist með hana.

Enn Áslaug mín, þú skrifar bara þegar þú treystir þér til, þú ert ekki þvinguð til að skrifa, láttu engan segja þér annað.

Sendi ykkur risastórt knús og kram   og gangi ykkur vel í dag. Hef trú á því að það komi gott úr myndatökunum og að skýring finnist á þessum hita hjá elsku fallegu hetjunni.

Bestu batakveðjur hér frá DK

Halla Rós í DK (IP-tala skráð) 15.2.2008 kl. 08:01

16 Smámynd: Brynja skordal

Baráttukveðjur og knús til ykkar

Brynja skordal, 15.2.2008 kl. 12:58

17 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

sendi ykkur ljós og orku elsku Áslaug mín, get ekkert annað, því miður. Tala við kallinn þarna uppi um hana Þuríði á hverjum degi.

Knús til ykkar og nú á hún Þuríður svona smá "galdrakerti" sem hefur verið hreinsað og "tileinkað" henni alveg sérstaklega núna í dag hjá skagakellingunni henni Gunnu (hún á nú reyndar alltaf kerti hérna, en það er annað mál)

Enn og aftur knús til ykkar endalaust duglega fjölskylda

Guðrún Jóhannesdóttir, 15.2.2008 kl. 13:29

18 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

p.s. fallegir ungarnir ykkar

Guðrún Jóhannesdóttir, 15.2.2008 kl. 13:31

19 identicon

Sæl og blessuð Áslaug,

                                    takk fyrir þetta fallegu orð sem þú fekkst lánaðan frá Ástu Lóvísu ,Guð blessa hennar minningu.Það er oft sem ég hugsa til þess að fyrir rétt rúmlega ár síðan byrjaði ég að kíkja inn á þessu síða ásamt öðrum í gegnum Þórir í ameríku hreppi.Það er fallin frá Ásta Lóvísa,Hildur Sif ,Gíslína ,Guðbjörg lóa ,Tómas,Þórdís Tinna og Sigríður og margt margt fleira sem er ekki að blogga ,það er alveg rétt hjá þér maður á að meta það sem manni á en ekki að vera að kvarta um lítilsvægi munir sem skiptar ekki máli, en það er allt í lagi að eiga sér von og láta sig dreyma ,Þú ert örugglega orðin hundleið á að heyra að maður fer með bænir fyrir ykkar og fá ráð um hvað á að gera og svo framvegis ,en ég lit nú upp til þín stundum ,ég hreinlega dáist af því hvað þú og Óskar er jákvæð og sterk í gegnum allt þessi veikindi og allt sem gengur á ,ertu samt til í að skrífa og segja tilfinningar þínar og leyfa okkur að fylgjast með, þú ert dásamleg!!!!!!!!!!!!!!!!

Ég vona svo innilega að litla hetjan okkar mun hressast sem fyrst( því já hún er nú einlega hluti af okkurdaglegt líf þessi dásamleg hetja) og að allt gengur upp og hún verð bara hið hressasti þegar hún byrjar í skólan í haust.Hún Þúríðar er algjört kraftaverk og meira til og lífsviljan hennar er bara ótrúlegt ,vægast sagt, allt sem hefur verið lagt á þessa lilta kropp og hún heldur ótrauð áfram að berjast og berjast ,Ég bið Guð að gæta og styrkja ykkur öll ,Guð geyma þig og ganga þér sem allra best,Kær kveðja Dee

Dolores (IP-tala skráð) 15.2.2008 kl. 14:07

20 identicon

 vonandi hefur ykkur gengid vel i dag midad vid adstædur,og gud gefi ad elsku barninu fari ad fá ad lida betur thetta er bara of mikid á litla hetju lagt.

Baráttukvedjur frá DK.

María-ókunnugn (IP-tala skráð) 15.2.2008 kl. 16:24

21 Smámynd: Nanna Katrín Kristjánsdóttir

Æ þetta er svo óréttlátt.  Búið að leggja nóg á hana og ykkur.  Samt ertu alltaf jafn dugleg.  Fallegar myndirnar

Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 15.2.2008 kl. 17:00

22 identicon

Sendi ykkur eins mikið af ljósi og orku eins og ég get - Guð veri með ykkur.

Ása (ókunnug) (IP-tala skráð) 15.2.2008 kl. 20:26

23 identicon

Elskulega Áslaug!

Bið fyrir ykkur öllum daglega og dáist að hversu sterk og dugleg þið eruð. Það er ekki auðvelt að horfa upp á barnið sitt í svona ástandi en á meðan maður trúir á kraftaverk, þá gerast þau.

Bið Lóuengilinn minn að safna liðstyrk og vaka yfir litlu hetjunni þinni.

Kærleikskveðja

Begga, frænka Lóu blómarósar.

Bergljót Hreinsdóttir (IP-tala skráð) 16.2.2008 kl. 00:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband