Leita í fréttum mbl.is

Jákvæð og hamingjusöm

Ég er ákveðin í því að vera jákvæð og hamingjusöm, hverjar sem aðstæðurnar eru, því ég hef lært af eigin reynslu að stór hluti af hamingju okkar og að sama skapi vansæld okkar byggist á viðhorfi okkar en ekki kringumstæðum.
Martha Washington

Haldiði ekki að hetjan mín hafi farið í leikskólann og svona líka hamingjusöm með lífið og að sjálfsögðu verður mín það líka að sjá hana líða svona vel en ekki hvað?  Svona án gríns þá var besti dagurinn hennar í marga marga marga mánuði í gær, gekk svona líka vel uppá spítala, beint í sjúkraþjálfun sem hún stóð sig hrikalega vel en síðustu mánuði hefur hún ekki haft orku í að gera neitt þar en þarna flaug hún í gegnum allar æfingarnar einsog atvinnumanneskja, þegar heim var komið fór stúlkan út að leika með systkinum sínum og var eiginlega að sofna eftir það því hún ákvað ekkert að leggja sig um daginn sem hefur heldur ekki gerst í endalaust marga mánuði, fyrst að það lá svona vel á minni ákváðum við fjölskyldan ásamt mömmu og pabba að kíkja á Fridays og ís í eftirrétt í Smáranum.  Oh mæ god hvað þetta var góður dagur hjá hetjunni minni og ég meir að segja mátti setja teygju í stúlkuna sem var frábært því ég hef ekki mátt gera það í ég veit ekki hvað lengi því hún er ö-a alltaf með hausverk, bara yndislegast.  

Núna liggur vel á mér......Grin

Ætlum að skreppa í sumarbústað um helgina með mömmu og pabba, borða góðan mat, ég kokkurinn á að elda handa þeim í kvöld.  Slurp slurp.  Afhverju er ég ekki að læra kokkinn?  Kanski vegna vinnutíma?  Er búin að vera horfa á Jóa Fel og læra af karlinum, jiiii hvað ég er spennt.  Vonandi verður hægt að kíkja í pottinn og svo ætlum við bara að hanga á náttfötunum alla helgina.  Ekki leiðinlegt.

Það er mömmudagur í dag hjá okkur Oddnýju Erlu minni í dag, stúlkan er núna að klæða sig í pils og gera sig fína.  Erum að fara með Oddnýju systir að máta brúðakjóla því stúlkan er að fara gifta sig í sumar, ætli við röltum ekki einn hring í Toys'r us, hún mun ö-a biðja mig að koma með sér í einhverja glingurbúðina til að koma við allt glingrið eheh og svo lengi mætti telja.

Var að fá eina einkunnina í enskunnni, ekki sátt við kennarann.  Jújú ég fékk 7,75 (fékk 9,13 í síðasta prófi) sem ætti nú að kallast gott á mínu mælikvarða í ensku en hún kellan lækkaði mig um einn eða tvo heila (man ekki hvort) því ég gat ekki skrifað mína skoðun um álverið hérna á klakanum, hvernig í andskotanum (sorrý) á ég að geta skrifað um eitthvað sem ég hef enga skoðun á  eða hugmynd um?  Sendi henni líka mail tilbaka, ótrúlega pissst.  Ætla samt ekkert að grenja lengi útaf þessu ehe.

Vávh hvað mér líður annars vel í dag, ætla njóta dagsins í botn og helgarinnar og krossa alla putta og tær um að hetjan mín fái ekki hita á morgun en það er tíminn hennar ef þetta ætti að vera einsog síðustu mánuði.  Hey hún er hress í dag og að sjálfsögðu njótum við þess og bíðum sallaróleg eftir niðurstöðum úr blóðprufunum samt væntanlega einhver enn ein önnur sýkingin sem væri sú þriðja á þessu ári.

Eigiði yndislega helgin og munið "hamingja er ákvörðun".
Knúsumst fast í tilefni dagsins.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vá hvað maður hefur lært að meta það sem maður á af því að lesa bloggið þitt, viðhorf þitt til lífsins er einstakt og mættu sko margir taka til fyrirmyndar og reyna að læra af. Takk fyrir að leyfa okkur hinum að fylgjast með og eigið góðan mæðgnadag!

Kveðja EH

Eyja (IP-tala skráð) 7.3.2008 kl. 09:24

2 Smámynd: Sigríður Þóra Magnúsdóttir

Til hamingju með þetta allt , ég er svo glöð að lesa það að allt gangi vel . Njóttu þín og þinna.

Eigðu yndislega helgi   

Kv

Sigga  

Sigríður Þóra Magnúsdóttir, 7.3.2008 kl. 09:44

3 identicon

Rosalega er gaman að heyra þetta. Les alltaf síðuna ykkar en hef aldrei kvittað. Gangi ykkur rosalega vel. Þið eruð sannar hetjur ;)

Njótið helgarinnar og mömmudagsins í botn.....

Hrönn (IP-tala skráð) 7.3.2008 kl. 09:50

4 identicon

Mikið er yndislegt að lesa þessa færslu!  Bara alveg frábært að heyra hvað snúllunni líður vel   Vonandi er þetta bara byrjunin á einhverju góðu og langvarandi! 
Eigðu yndislega helgi með fjölskyldunni,

Kveðja Heiða

Heiða (IP-tala skráð) 7.3.2008 kl. 09:54

5 identicon

Gott að heyra hvað ykkur líður vel. Góða helgi. kveðja, Helga.

Helga (IP-tala skráð) 7.3.2008 kl. 10:16

6 Smámynd: Elsa Nielsen

Yndisleg færsla Áslaug mín :) Ofsalega er ég líka glöð að lesa að þið fenguð ekki bara snjó í gær - hehe - þó að ég hafi "beilað" ;) Njótið mömmudagsins í botn og mundu að taka myndir af litlu siss í flottustu kjólunum!

Góða hamingjusama helgi ;) KNÚÚÚS 

Elsa Nielsen, 7.3.2008 kl. 11:01

7 identicon

æðislegt að lesa þessa færslu !! Njótið helgarinnar

kveðja Unnur og Sigurður Garðar

Unnur (IP-tala skráð) 7.3.2008 kl. 11:17

8 Smámynd: Helga Linnet

Það sem er gull hjá einum er öðrum einskis virði.

Þessi málsháttur á vel við hér. Því miður reikna allt of margir með einhverju í lífinu en taka aldrei tillit til þess að ekkert í heiminum er sjálfsagt.

Frábært að heyra hvað ÞA er hress. Vonandi helst það hér eftir.

Njótið lífsins. Eins og mitt blogg ber yfirskriftina: Slakaðu á og njóttu lífsins, þú munt aldrei lifa þennan dag aftur

Helga Linnet, 7.3.2008 kl. 11:23

9 Smámynd: Hulla Dan

Frábært að heyra hvað gengur vel núna
Óska ykkur góðrar helgar...

Hulla Dan, 7.3.2008 kl. 11:24

10 identicon

Frábært að heyra, njótið helgarinnar.  Kveðja Mæja

María Valdimarsdóttir (IP-tala skráð) 7.3.2008 kl. 11:32

11 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Var að skríða á fætur og þá er tilvalið að kíkja á bloggið þitt. Þvílík morgunhressing, þetta er bara á við heilann kassa af vitamími, orku og kærleika. Mikið eruð þið undursamleg fjölskylda og þú undursamleg manneskja Áslaug. Hún Þuríður Arna er undursamlegt kraftaverk. Guð blessi ykkur oll og góða helgi.      Fríða

Hólmfríður Bjarnadóttir, 7.3.2008 kl. 11:34

12 Smámynd: Linda litla

Frábært að henni líður betur, það er bara vonandi að það haldist.

Eigið góða helgi.

Linda litla, 7.3.2008 kl. 12:15

13 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Yndislegt hvað ykkur líður öllum vel og til hamingju með það, mér líður ekki eins vel þar sem ég ligg í flensu, en það er eitthvað sem lagast þannig bara horfa fram á við og vera glaður

Guðborg Eyjólfsdóttir, 7.3.2008 kl. 12:26

14 identicon

Hæ hæ svo langt síðan að ég hef kíkt hér inn , frábært að lesa að hún sé hressari og það verði áfram  

Eigið góða helgi , við erum með hugan hjá ykkur .

knús

Dagrún (IP-tala skráð) 7.3.2008 kl. 13:28

15 identicon

Yndislegt að heyra og vonandi helst hún hitalaus sem lengst.  Æðislegt að lesa þetta, kemur öllum í gott skap.  Með hækkandi sól og bjartsýni í hjarta líður öllum betur.  Eigðu góðan dag með Oddnýju litlu, áhyggjurlaus í smá stund, þið hafið báðar gott af því.

góða helgi 

Lísumamma (ókunnug) (IP-tala skráð) 7.3.2008 kl. 13:53

16 identicon

En gott að heyra! Komin tími til að Þuríði, og ykkur öllum líði betur... njótið helgarinnar, knús, Ásdís.

Ásdís Ásgeirsdóttir (IP-tala skráð) 7.3.2008 kl. 14:23

17 identicon

Mikið til í þessum upphafsorðum, við ættum öll að reyna að tileinka okkur þau. Kíki reglulega á bloggið þitt en hef aldrei kvittað áður en ég varð bara svo glöð að sjá hvað gengur vel hjá ykkur að ég gat ekki þagað lengur:)

Vonandi eigið þið frábæra helgi saman!

Kristín Akureyri (ókunnug) (IP-tala skráð) 7.3.2008 kl. 15:16

18 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Yndislegt að lesa þetta Áslaug, gefur manni gott kickstart inn í helgina! Guð blessi ykkur og hamingju ykkar!

Ylfa Mist Helgadóttir, 7.3.2008 kl. 15:17

19 Smámynd: María Guðmundsdóttir

 til hamingju med thetta,thetta er BARA ædislegt ad lesa oh hvad madur getur rétt ímyndad sér hvad thid erud glød  eigid svo bara ædislega helgi í bústad og slakid vel á i pottinum og étid á ykkur gat

baráttu og kærleikskvedjur frá DK

María Guðmundsdóttir, 7.3.2008 kl. 16:03

20 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

 FRÁBÆRT!!!!

Góða helgi!!!!

Bergljót Hreinsdóttir, 7.3.2008 kl. 17:00

21 identicon

 Æ, mikið voru þetta góðar fréttir. Megið þið eiga yndislega helgi saman.

Kristín (IP-tala skráð) 7.3.2008 kl. 20:54

22 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Yndisleg færsla
Maður fylgist svo mikið með ykkur fjölskyldunni hérna á blogginu að þið eruð orðin þekkt á þessu heimili. Ég er viss um að ég myndi biðja um eiginhandaráritun ef ég hitta ykkur á Íslandi næst þegar ég er þar
 

Gunnar Helgi Eysteinsson, 7.3.2008 kl. 21:45

23 identicon

Innilegar hamingjuóskir með þennan góða dag og vonandi eigið þið frábæra helgi þið eigið það svo sannarlega skilið.

ókunnug frá Eyrarbakka (IP-tala skráð) 7.3.2008 kl. 22:00

24 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Knús knús og bestu kveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 7.3.2008 kl. 22:16

25 identicon

Frábært að heyra í þér í dag, reyndar alltaf, því þú ert svo mikil hetja og þá meina ég að geta gert og hugsað á þeim nótum sem þú gerir.

Sendi ykkur stórfamilíunni mínar stærstur óskir um góða helgi og ósk um að þú sláir í gegn i eldamenskunni og svo verði allir í náttfötum sem lengst og "okkar" hetja nái að njóta með sínu fólki.

kærleikskveðja frá Sólveigu.

Sólveig (IP-tala skráð) 7.3.2008 kl. 22:23

26 identicon

Frábært Áslaug, hvað allt hefur snúist til bjartari og betri vegar.

Njótið ykkar í botn um helgina og knúsist, pottist og slakið á.  Kærar kveðjur til m&p. þíns.   Stella A.

Stella A. (IP-tala skráð) 7.3.2008 kl. 23:16

27 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

Svanhildur Karlsdóttir, 8.3.2008 kl. 01:13

28 identicon

Mikið rosalega var gaman að lesa þessa færslu, vonandi heldur þetta svona áfram. Hef aldrei kvittað fyrr en kíki alltaf á ykkur á hverjum degi og kveiki iðulega á kerti fyrir ykkur. Gangi ykkur vel.

Sólveig (IP-tala skráð) 9.3.2008 kl. 18:27

29 identicon

Hamingjan er svo sannarlega ákvörðun Ég fékk að sjá það svart á hvítu í Indlandi.. þar voru fátæk börn oft þau sem brostu mest og bros þeirra var svo innilegt og heillandi að maður gat ekki annað en brosað sjálfur og því fylgdi ótrúleg gleði þrátt fyrir skelfilegar aðstæður.
Mikið fanst mér gott að lesa þessa færslu. TAKK

Vona að þið hafið átt góða helgi. 

Díana (IP-tala skráð) 9.3.2008 kl. 23:51

30 identicon

Yndislegar fréttir af hetjunni Þuríði Örnu. Megi kraftverkið umvefja hana og gef henni langa og farsæla ævi.

kveðja

Kristbjörg

Kristbjörg (ókunnnug) (IP-tala skráð) 10.3.2008 kl. 11:56

31 identicon

Rosalega er gaman að heyra svona góðar fréttir af ykkur! Vonandi verður þetta bara svona hjá ykkur framundan.

Arna (IP-tala skráð) 10.3.2008 kl. 17:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband