4.4.2008 | 09:03
Hugleiðing um heppni
Ég heyri það oft að ég sé heppin.
Ég velti orðinu heppni fyrir mér vegna þess að það er mjög oft notað í umræðunni um 14 ára dóttur mína sem er langveik og fötluð.
Ég heyri að ég sé heppin að hún hafi svona góða kennara/þroskaþjálfa í skólanum.
Ég heyri að hún sé heppin að fá fullan stuðning í skólanum.
Ég heyri að við séum heppin að skólinn skuli vera svona jákvæður gagnvart veru hennar þar.
Ég heyri líka að hún sé heppin að geta stundum tekið þátt í einu og öðru í tengslum við félagsstarf skólans.
Við séum heppin að hafa fagmenntað starfsfólk sem vinnur með henni.
Ég heyri að hún sé heppin að eiga mig sem móður.
Hvers vegna verður fólk hissa og talar alltaf eins og það sé heppni þegar maður segir að það gangi svo ljómandi vel með skólagöngu fatlaðrar dóttur minnar í almennum grunnskóla?
Er það heppni eða sjálfssögð mannréttindi?
- Kristín Steinarsdóttir
Kristín Steinarsdóttir. (2008, mars). 10 ára afmællisrit - Einstök börn. Hugleiðing um heppni.
Ég "stal" þessari hugleiðingu frá þeim Freyju og Ölmu. Jú við höfum fengið að heyra það ansi oft hvað við erum heppin og hvað fólk verður hissa þegar við erum að segja frá allri aðstoðinni sem Þuríður okkar fær þegar hún fer í skólann sinn hérna í sveitinni í haust. Við erum sjálf dáltið hissa og lítum á okkur heppin þó við eigum ekki að gera það því það er ekki sjálfsagður hlutur því verr og miður að fötluð eða langveik börn fái alla þessa aðstoð sem hetjan mín mun fá og hefur fengið alla sína leikskólagöngu. Auðvidað eru þetta sjálfsögð mannréttindi það eru ekki allir skólar svona, þeir eru líka alltaf að spara en einsog verðandi okkar skólastjóri sagði við okkur "Þuríður fær allt sem hún þarf á að halda og ef það koma ekki peningar með henni þá búum við þá bara til og förum framúr áætlun".
Okkar verðandi skólastjóri er líka svo drífandi og liðið sem við höfum hitt úr skólanum, tilbúnir að leggja allt sitt að mörkum til að gera skólagöngu Þuríðar góða fyrir hana. Þegar hún er í meðferðinni sinni þá þarf hún alltaf að leggja sig í hádeginu og oftast líka þegar hún er ekki í henni, orkan er ekki alveg einsog hjá heilbrigðum 6 ára krökkum og þá var ekkert sjálfsagðara í skólanum sem hún fer í að það verður búið til svokallað "hvíldarherbergi" fyrir hana svo hún muni geta hvílt lúin kropp. Þegar skólastjórinn spurði okkur á hverju hún þyrfti á að halda svona til að létta henni lífið í skólanum þá sögðum við í gríni að hún þyrfti á ipod að halda því henni finndist svo gaman að hlusta á tónlist eheh og viti menn skólastjórinn sagði að það væri ekkert sjálfsagðara að redda því ef þess þyrfti. En við vorum nú bara að grínast ehe enda á stelpan að fá það í afmælisgjöf því hún ELSKAR tónlist, getur gleymt sér í marga í klukkutíma bara að hlusta á tónlist. Yndislegust!!
Jú meðan ég man Halldór minn "takk fyrir plöturnar, afi Hinrik er að breyta þeim yfir í cd svo það verði hægt að setja tónlistina á ipodinn hennar þuríðar minnar". Bara flott!
Auðvidað á það að vera sjálfsagt að börnin okkar fái alla þá aðstoð í skólanum sínum, ég bara skil þetta ekki? Þannig ég verð bara að álita mig heppna að hafa flutt í þetta góða hverfi sem við búum í og lent í þessum frábæra skóla þó ég eigi ekki að gera það.
11 dagar í myndatökurnar sem ég er svona næstum því ekkert stressuð fyrir finn samt hnútinn koma þó henni líði súper vel og kvarti lítið.
6 dagar í helgina okkar Oddnýjar Erlu minnar sem við erum hrikalega spenntar fyrir.
26 dagar í afmælið hennar Oddnýjar Erlu minnar sem hún telur niður dagana í eheh, svo hrikalega spennt og er sko alveg búin að ákveða hvar hún ætli að halda uppá það og hvert þemað eigi að vera sem hún var reyndar búin að ákveða fyrir langalöngu. Reyndar ákváðu þær systur það í sameiningu þar sem afmælið þeirra er alltaf haldið saman (bara þrjár vikur á milli afmæla). Dóra explorer.
Skemmtileg helgi framunda, Skoppa og Skrítla í leikhúsi, barnaafmæli og ferming. Stuð stuð stuð!!
Eigið góða helgi kæru lesendur, verið góð við hvort annað.
Ekkert stress, veriði hress, bless bless.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
32 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Thad á varla ad túlkast sem "heppni" thegar fólk fær thad sem thad á rétt á. Ætti frekar ad athuga betur med thær stofnanir sem virdast ekki geta sinnt theim børnum sem thar eru og fá ekki sitt. Bara frábært ad skólastjórinn tekur svona á málunum,audvitad á hetjan ad fá ALLT og then some
Eigid góda helgi kæra fjølskylda ,Skoppa og Skrítla bara geggjad,getur ekki klikkad baráttu og kærleikskvedjur frá dk
María Guðmundsdóttir, 4.4.2008 kl. 09:23
Elsku Áslaug duglega og frábæra.
Jákvæðnin, gleðin og bjartsýnin þín er svo endalaust yndisleg. Ég er viss um að hjá fólki sem hefur allt og ekki veikt barn er allt svo sjálfsagt að það vantar því miður þessa gleði.
Sendi ykkur mínar kærustu kveðjur í húsið öllum hópnun.
frá Sólveigu
Sólveig (IP-tala skráð) 4.4.2008 kl. 09:31
Það er mjög áhugavert að lesa um þetta heppnina. Auðvitað eru þetta sjálfsögð mannréttindi.
Ég les síðuna þína á hverjum degi og mér finnst ég læra ótrúlega mikið af þér. Það er ekkert sjálfsagt í þessum heimi og við megum ekki gleyma því . Takk kærlega fyrir að leyfa okkur að fylgjast með.
Ég er rosalega glöð að heyra hvað það gengur vel hjá ykkur:o)
Kveðja
Harpa
Harpa (IP-tala skráð) 4.4.2008 kl. 09:58
Hafðið það gott um helgina.
knús og kram
Bergdís Rósantsdóttir, 4.4.2008 kl. 10:09
Les síðar.Góða helgi.
Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 4.4.2008 kl. 12:49
Sæl Áslaug. Ég hef komið hér við svo til daglega í langan tíma. Þið eruð svo jákvæð og gefið mikið af ykkur. Mig hefur lengi langað að skrifa hér inn og læt loksins verða af því. Ég á fatlaða dóttur sem er að verða fimm ára. Ég skil svo vel þessa tilfinningu hjá þér þegar barnið getur eitthvað, þó svo að önnur börn á sama aldri gátu sama hlutinn fyrir ári eða árum síðan. Okkur hlýnar um hjartaræturnar þegar okkar börn geta gert hlut sem er í raun sjálfsagður að geta. Það er ekki hægt að miða sig við normalið, hver áfangi er sigur. Ég kannast líka við þetta heppnis tal. Og við segjum "já við erum heppin að fá gott fólk, góðan stuðning, góðan skilning". En eins og ein benti á þetta eru mannréttindi fyrir börnin/fólkið sem þarf á því að halda. Og það eru ekki allir svo heppnir að þurfa EKKI á því að halda. Góðar kveðjur til þín og þinna
Hermína
Hermína (IP-tala skráð) 4.4.2008 kl. 15:32
Kannski eru allir heppnir miðað við eitthvað annað. Kannski veit fólk bara ekki alveg hvað það á að segja og vill vera jákvætt og hvetjandi. En það er engin heppinn að vera veikur eða þurfa að horfa upp á einhvern sem maður elskar vera veikur. Heppin/nn er mjög óheppilegt orð.
Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 4.4.2008 kl. 15:41
Já það er svo gott að hafa heppnina með sér. Viðhorf okkar skipta svo miklu máli og það sem einum finnst vera heppni, finnst öðrum sjálfsagt. Ekki meira um það en mikið er gott að skólakerfið á Íslandi skuli vera eins gott og raun ber vitni. Þar erum við öll heppin. Bið Guð að blessa ykkur öll Fríða
Hólmfríður Bjarnadóttir, 4.4.2008 kl. 17:38
Nanna mér finnst ég reyndar heppin að vera fötluð .. Ótrúleg forréttindi!
En eins og þú segir Áslaug þá dettum við sjálf í að finnast sjálfsögð mannréttindi vera ,,heppni" vegna þess að þau eru ekki sjálfsögð og kosta eilífa baráttu. Auðvitað erum við öll misheppin í lífinu og verðum þakklát þegar hlutirnir ganga vel.
En auðvitað á þetta ekki að snúast um heppni heldur örugg mannréttindi sem við göngum að.
Mér hlýnar nú bara um hjartarætur þegar að ég heyri um mannréttindavirðingu Þuríðar í skólanum. Ég hlakka til að fylgjast með skólaferðalagi hennar í þessum flotta skóla - hún á eftir að rúlla þessu öllu upp daman.
Eigið góða helgi!
Kv. Freyja
Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir, 4.4.2008 kl. 17:56
Góða helgi elskurnar.
Ylfa Mist Helgadóttir, 4.4.2008 kl. 18:38
hææj ég kolbrún sem misti mömmu sína.. en hvílig hepni en verð að fara .Skrifa næst... bæææj bææj...
kolbrún (IP-tala skráð) 4.4.2008 kl. 20:43
Guð minn góður , við erum fallegust ,sterkurst , og ríkust . Þetta sem þú talar um að sé heppni þetta eiga bara að vera mannréttindi á Íslandi , en svo er ekki það er fólk búið að berjast fyrir þessum réttindum í mörg ár , og en er ekki nóg gert . Foreldrar langveikra barna eiga að fá fullan stuðning á allan þann hátt sem þeir kjósa . Við eigum langt í land
Góða helgi
Sigríður Þóra Magnúsdóttir, 4.4.2008 kl. 21:47
Ég kannast aðeins við þessa "heppni"... ég á fatlaðan son sem er að byrja skólagöngu í haust og hann er svo "heppinn" að fá þá þjónustu sem hann á skilið í sínum heimaskóla.
Ég hef einmitt heyrt þetta líka mjög oft hvað við séum "heppinn" með þá þjónustu sem hann er að fá í leikskólanum og kemur til með að fá í grunnskóla...
ókunnug (IP-tala skráð) 4.4.2008 kl. 22:43
Kæra Áslaug og fjölskylda.
Lít við og hugsa til ykkar daglega. Takk fyrir að leyfa okkur að fylgjast með ykkur. HEPPNI er orð sem ekki á að misnota. Það er ekki heppni að veðra að berjast fyrir sínum mannréttindum.
Með bestu kveðju frá Þorgerði. (er mamma Grétu vinkonu Oddnýja)
Þorgerður H.Halldórsdóttir (þhh) (IP-tala skráð) 5.4.2008 kl. 13:40
sannarlega er orðið heppni misnotað, ja eða erum við ekki bara aðeins að mistúlka það, við notum það yfir svo margt sem i raun er ekki heppni en erum kannski að tjá ánægju okkar yfir að eitthvað ákveðið gangi vel eða er það ekki?
Ættum að geta fundið orð í íslenskunni sem tjáir það sama og það sem við meinum þegar við segjum að einhver sé heppinn að fá það sem honum ber, íslensk tunga er rík af orðum svo þetta ætti að ganga, ef við erum HEPPIN
En ákaflega gleðilegt að skólastjórinn sé svona opinn fyrir réttindum ofurhetjunnar okkar og bara yndislegast hversu glöð hún er yfir því að byrja í skóla,það er tæplega hægt að bíða haustsins
Góða helgi öll sömul
Guðrún Jóhannesdóttir, 5.4.2008 kl. 15:03
Hafið það gott og góða skemmtun um helgina..
Agnes Ólöf Thorarensen, 5.4.2008 kl. 17:46
Knús knús og kveðjur til ykkar elsku fjölskylda
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 5.4.2008 kl. 18:07
Kæra Áslaug.
Ég á ekki langveikt barn, ég á ekki barn sem þarf að þola allt það sem þið og dóttir ykkar hafið þurft að upplifa.
Ég á tvo frábæra stráka sem eru svo yndislegir að það hálfa væri nóg Báðir guttarnir eru lesblindir og þvi ekki gjaldgengir í hvaða skóla sem er. Báðir hvílíkt klárir í öllu sem snýr að verklegum þáttum, en ekki nógu góðir á bókina:) En ég veit að þeir eru það frábærir báðir að þeir eiga eftir að spjara sig, sama hvað lífið bíður upp á og ég verð á hliðarlínunni til að hjálpa ef á þarf að halda
Ég efast ekki um það að Þurríður Arna Óskarsdóttir á eftir að gera hluti sem eftir verður tekið. Númer 1 þá verður hún eftirtektarverð fyrir það að sigrast á krabbameini sem hún átti ekki að geta, en ullaði framan í alla og kláraði það, og eftir það þá gerir hún eitthvað svo svakalegt að hvorki ég né nokkur annar getur ímyndað sér það Enda erum við bara að tala um HETJU og maður getur ekki séð það fyrir hvað HETJUR gera
Blómið, 5.4.2008 kl. 23:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.